15.5.2010 | 13:53
Monní, monní!
Eins og kunnugt er þeim sem fylgjast með fréttum fóru fram umræður um utanríkismál í þinginu í gær. Þar reyndi Ragnheiður Elín Árnadóttir að tortryggja ESB-málið með því að kasta því fram að kostnaðurinn við umsóknina yrði allt að 7 milljarðar króna (7000 milljónir).
Mjög ólíklegt verður að teljast að sú verði raunin. Af hverju? Jú:
- Mikið er lagt upp úr að ferlið verði sem ódýrast, m.a. með því að hafa hluta samningaviðræðnanna hér á landi.
- Mjög margir kaflar af þeim 35 sem verður að "loka" eru nú þegar langt komnir eða frágengnir vegna veru okkar í EES. Sá partur kostar því mun minna en annars væri.
- Íslenska ríkið mun ekki eitt bera kostnaðinn, ESB mun leggja fram fé á móti.
Nú þegar liggur fyrir gróf kostnaðaráætlun upp á um 1 milljarð króna. Hvernig Ragnheiður Elín fær út kostnað sem er sjö sinnum hærri, er vandséð. Það eru ýmsir óvissuþættir í kostnaði sem þessum, t.d. verð á flugvélaeldsneyti (menn þurfa að fljúga til og frá Íslandi!). Bara svo lítið dæmi sé tekið.
Í leiðara MBL í gær er einnig sagt að umsóknin sé sóun. Ekki veit ritari hvor ritstjóranna, Davíð eða Haraldur skrifaði, en Davíð var allavegana Seðlabankastjóri þegar hann fór á hvolf. Kostnaður: 400 milljarðar!
Stundum koma hlutirnir úr allra-hörðustu átt!
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Nú er rétti tíminn til að sækja um aðild að Evrópusambandinu - Jón Sigurðsson fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og seðlabankastjóri
Þorsteinn Briem, 15.5.2010 kl. 15:35
Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum er mikill meirihluti Framsóknarmanna algerlega andvígur ESB aðild eins og reyndar kjósendur allra annarra flokka, nema Samfylkingarinnar, en þar er þó vaxandi andstaða líka og flokkurinn líka að tapa fylgi.
Þeir sem engan flokk styðja er líka að 2/3 hlutum andvígir ESB aðild.
Þannig að veriði ekki að veifa Jóni Sig fyrrverandi framsóknardindli sem einu sinni aldrei komst inná á þing og var svona messagutti Halldórs Ásgrímssonar til þess að niðurlægja flokkinn og koma flestum kjósendum frá honum.
Hann hefur enga vigt í íslenskum stjórnmálum og ekki einu sinni í Framsókn.
Í örvæntingu ykkar útaf fylgisleysinu reynið þið að grípa hvert hálmstráið á fætur öðru.
En staðreyndin er að málefnagrundvöllur ESB trúboðsins á Íslandi er gersamlega hruninn til grunna og þar stendur nú ekki steinn yfir steini.
ESB trúboðið er berstrípað og öll ESB lygin hefur verið afhjúpuð aftur og aftur og hvað eftir annað !
Afhverju breytiði ekki síðunni ykkar í mataruppskriftarsíðu heldur en af þrjóskunni einni saman að halda þessari vonlausu ESB baráttu ykkar áfram.
Gunnlaugur I., 15.5.2010 kl. 16:31
Ályktun flokksþings framsóknarmanna í fyrra um aðildarviðræður við Evrópusambandið:
"Markmið
Að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs og þá sérstaklega sjávarútvegs og landbúnaðar.
Þá er fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum.
Viðræðuferlið á að vera opið og lýðræðislegt og leiði viðræðurnar til samnings skal íslenska þjóðin taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfar upplýstrar umræðu.
Skilyrði
• Skýr og einhliða úrsagnarréttur, sem er þegar viðurkenndur í aðalsáttmála ESB, verði hluti aðildarsamnings.
• Staðfest verði að Íslendingar einir hafi veiðirétt innan íslenskrar fiskveiðilögsögu og að fiskveiðistjórnun verði áfram innanríkismál Íslendinga, enda styðjist hún við reglur ESB um stöðug hlutföll, nálægðarreglu og Lúxemborgarsamkomulagið. Ísland verði sjálfstæður aðili að samningum um flökkustofna.
• Fæðuöryggi þjóðarinnar verði tryggt og viðurkennd nauðsyn á sérstökum ákvæðum vegna fámennis þjóðarinnar.
• Viðurkennt verði að íslenskur landbúnaður sé heimskautalandbúnaður.
• Framleiðsla og úrvinnsla íslenskra búfjárstofna verði tryggð ásamt sérstöðu og hreinleika íslenskra búfjárstofna.
• Staðfest verði að vegna aðstæðna á Íslandi og fámennis þjóðarinnar hafi Íslendingar varanlegan rétt til að setja lög um forgangsrétt manna með lögheimili og fasta búsetu á Íslandi til að eiga ráðandi hlut í jarðeignum, lóðum, fasteignum og atvinnufyrirtækjum, enda styðjast slík ákvæði við núgildandi reglur á Álandseyjum, Möltu, Azoreyjum og víðar innan ESB.
• Í upphafi viðræðna verði gerður stöðugleikasamningur við Evrópska seðlabankann sem tryggi stöðugt gengi íslensku krónunnar þar til Íslendingar taka upp evru.
• Tekið verði tillit til stöðu íslensks efnahagslífs við umbreytingu peninga- og gjaldeyrismála á Íslandi.
• Ákvæði verði um varðstöðu um íslenska þjóðmenningu, þjóðtungu og þjóðhætti á Íslandi. Íslenska verði viðurkennt sem eitt hinna opinberu tungumála ESB."
Ályktun flokksþings Framsóknarflokksins um aðildarviðræður við Evrópusambandið
Þorsteinn Briem, 15.5.2010 kl. 17:40
Eruð þið í þessum óþjóðlegu samtökum búin að gleyma því, að Össur hafði sjálfur, nokkrum mánuðum eftir umsóknina, viðurkennt, að kostnaður yrði líklega um 1,5 milljarðar?
Og hafið þið líka gleymt því, að þegar hann talaði um, að Evrópubandalagið myndi greiða kostnað, þá tók hann skýrt fram, að það væri í því tilfelli, að Ísland yrði tekið inn í bandalagið?
Hvort eruð þið svona fáfróð um þetta eða í beinni blekkingarstarfsemi? Ef það fyrra á við, þá getið þið allt eins lagt niður þessa vefsíðu ykkar.
Og nei takk, þið verðið aldrei bloggvinir mínir!
Jón Valur Jensson, 16.5.2010 kl. 03:10
JVJ: Okkur finnst það allt í lagi að þú viljir ekki vera bloggvinur okkar. Ástæðan er m.a. þessi og þessi!
Evrópusamtökin, www.evropa.is, 17.5.2010 kl. 08:54
Ég sé að það stoppar fátt bullarana Gunnlaug I og Jón Val Jensson.
Það eina sem hefur verið sannað með óhyggjandi hætti aftur og aftur eru lygar andstæðinga ESB. Enda vita andstæðingar ESB uppá skömmina þegar það kemur að ESB málefnum. Það er nefnilega staðreynd að andstæðingar ESB á Íslandi vita fullvel að ástandið í Evrópu er ekki eins og þeir lýsa því, og það sem meira er. Þeir hafa vitað þetta frá upphafi.
Efnahagskreppan bítur núna í Evrópu, eins og annarstaðar í heiminum um þessar mundir. Hinsvegar er alveg ljóst að efnahagskreppan mun ganga yfir, þó svo að það taki smá tíma. Þegar efnahagskreppan verður gengin yfir þá mun málfutningur andstæðinga ESB sem snýr að því falla um sjálfan sig eins og svo margt annað bull frá andstæðingum ESB á Íslandi og annarstaðar.
Jón Frímann Jónsson, 17.5.2010 kl. 08:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.