Leita í fréttum mbl.is

Jón Daníelsson í Viðskiptablaðinu: Ekkert Microsoft, Google eða Dell á Írlandi án ESB - Írar notið góðs af Evrunni

Jón DaníelssonÍ Viðskiptablaði dagsins er að finna áhugavert viðtal við Jón Daníelsson, hagfræðing. Í viðtalinu ræðir hann m.a. málefni  Írlands og segir:

,,Stærstu mistök Íra voru gerði í október 2008 þegar þeir ákváðu að leggja að jöfnu innistæður almennings og aðrar skuldir bankanna. Þeir lofuðu ríkisábyrgð á öllum skuldum bankanna í þeirri von að nægur stöðugleiki myndi skapast til að halda bönkunum starfandi.”

Þetta segir Jón að Írar hafi aldrei  þurft að gera þetta, heldur að Írar hafi einungis þurft að ábyrgjast innistæður, eins og önnur lönd. Þetta hafi valdið gremju meðal annarra ríkja, sem sökuðu Íra um skort á samstöðu.

Í viðtalinu segir Jón að Írland hafi notið góðs af Evrunni:

,,Viðskiptajöfnuður landsins er jákvæður í dag eins og hann var áður. Útflutningsgeiri Írlands, sá hluti þjóðarbúsins sem er viðkvæmastur fyrir gengi gjaldmiðla, er sterkur og mun halda áfram að vera svo.

Vandamál þeirra snýr að einkaneyslu. Ég held því að Evran muni gagnast þeim ágætlega áfram. Ef ekki væri fyrir hana hefðu stórfyrirtæki eins og Microsoft, Google og Dell ekki sett upp starfsstöðvar í landinu. Þau gerðu það vegna þess að Írland er í Evrópusambandinu og vegna þess að það er á evrusvæðinu.”

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Albert Rögnvaldsson

 

Laugardagur, 10. janúar 2009

Dell Computer yfirgefur evrulandið Írland. Bretar farnir að óttast um orkuauðlindir sínar

Dell Computer yfirgefur evrulandið Írland

Einn stærsti tölvuframleiðandi í heiminum, hið bandaríska fyrirtæki Dell Computer frá Texas - og sem einnig er næst stærsti atvinnurekandi á Írlandi ef starfsmannafjöldi er notaður sem mælikvarði - hefur ákveðið að hætta framleiðslu á Írlandi. Um 2000 manns munu missa vinnuna hjá Dell á Írlandi. Framleiðslan verður flutt út fyrir evruland og til Lodz í Póllandi. Dell Computer hefur staðið fyrir um 5% af innanlandsframleiðslu Írlands og einnig fyrir um 4% af öllum peningaútlátum í Írska hagkerfinu. Eina huggunin fyrir Íra er sú að Dell mun um sinn halda áfram með 2000 manna starfsemi á Írlandi, utan framleiðslugeirans, aðallega í bæjarfélögunum Limerick og Dublin.

Dell Computer var stofnað árið 1984 af Michael Dell sem þá var nemandi við háskólann í Austin í Texas. Michael Dell er einn mesti brautryðjandi heimsins í framleiðslu, sölu og dreifingu tölva á góðu og samkeppnishæfu verði beint til fyrirtækja og neytenda um allan heim. Núna starfa um 88.000 manns hjá Dell á heimsvísu og velta fyrirtækisins er um 61 miljarðar Bandaríkjadalir. 

Þetta hefði væntanlega ekki gerst ef Írska pundið hefði ennþá verið gjaldmiðill Írlands því þá hefði gjaldmiðill Íra getað aðlagað sig að efnahagsaðstæðum á Írlandi í stað þess að þjóna Írum sem pólitískur gjaldmiðill Evrópusambandsins, sem er sérhannaður fyrir Þýskaland og Frakkland. Þessi nýi gjaldmiðill Írlands hefur nú hækkað um 100% miðað við gengi stærsta gjaldmiðils heimsins, Bandaríkjadals, frá því árið 2001.

Dell hóf starfsemi sína á Írlandi árið 1987 eða um 11 árum áður en evra varð mynt Íra. Mikill framgangur Írska hagkerfisins hófst um svipað leyti er Írar hófu lækkun skatta í landi sínu og minnkun ofurstærð hins opinbera geira úr 53% af þjóðarframleiðslu Írlands og niður í 34%. Þessi lækkun skatta á Írlandi hefur alltaf mælst illa fyrir hjá stjórnendum Evrópusambandsins sem hafa aðsetur sitt í borginni Brussel í Belgíu á meginlandi Evrópu. Líklegt er að Írland hafi nú fest sig í vef hagvaxtargildru Evrópusambandsins, eins og öll önnur ríki hafa einnig gert eftir að hafa verið nokkuð lengi í Evrópusambandinu.

Arið 1973 var árið sem Írland gékk í Efnahagsbandalag Evrópu og sem - þrátt fyrir loforð margra forsætisráðherra EB landa - breyttist svo seinna meira í Evrópusambandið og það eftir einungis 20 ára sameiningarferli, árið 1993. Núna er þetta Evrópusamband að fá sína eigin stjórnarskrá, að kröfu embættis- og stjórnmálamanna sambandsins, en þó í andstöðu við marga þegna sambandsins, en þeim verður ekki gefinn kostur á að láta í ljós álit sitt á þessu máli.

Gunnar Albert Rögnvaldsson, 2.12.2010 kl. 21:25

2 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Úr Guardian 30.nóv: "Tech Weekly visits Dublin to check out the thriving local startup scene. The tech community has benefited from assistance through development agencies such as Enterprise Ireland that help to foster and fund new tech businesses. Ireland has also benefited from the presence of tech giants such as Google, Apple, Facebook, Microsoft, HP, Dell and others in the country."

Tæknibransinn virðist blómstra þrátt fyrir dómsdagsskrif þín, Gunnar Albert! 

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 2.12.2010 kl. 21:50

3 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Gunnar, Ástæða þess að Dell yfirgaf Írland var ekki vegna evrunnar. Heldur vegna þess að viðskiptasamsteypan sem rekur Dell gengur illa og þeir voru að spara með því að lækka framleiðslukostað hjá sér. Þá með því að flytja hann til landa þar sem laun eru lægri.

Ef þú hefðir kynnt þér málið. Þá hefðir þú vitað þetta...kannski.

Bretar hafa engar áhyggjur af orkuauðlyndum sínum. Nema þá að því leiti að þeir eiga of lítið af þeim og það litla sem þeir eiga er að klárast.

Jón Frímann Jónsson, 2.12.2010 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband