25.3.2011 | 15:53
Valþór Hlöðversson: Við erum Evrópuþjóð!
Með Morgunblaðinu í gær fylgdi "kálfur" (aukablað) sem ber yfirskriftina SÓKNARFÆRI:FRUMKVÆÐI OG FAGMENNSKA Í ÍSLENSKU ATVINNULÍFI.
Leiðara blaðsins skrifar Valþór Hlöðversson (framkvæmdastjóri Athygli ehf) og hann gerir Evrópumálin að umfjöllunarefni. Einn af punktum Valþórs er sú staðreynd að Íslendingar eru Evrópuþjóð og við sækjum menntun til Evrópu og við stundum umfangsmikil viðskipti við Evrópu.
Þá gerir Valþór einnig gjaldmiðilsmálin að umfjöllunarefni og telur hann upptöku "alvöru gjaldmiðils" (eins og hann segir sjálfur) hafa gríðarlega jákvæð áhrif hér á landi.
Hann telur mjög mikilvægt að ná hagstæðum aðildarsamningi við ESB.
Grein Valþórs fylgir hér með á myndformi (þarf að tvísmella til að fá hana stóra).
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Málið snýst um skerðingu á þjóðfrelsinu sem við fengum fyrir tæpum 70 árum. Það hafa ýmsir látið sig dreyma um að skerða það eða skemma t.d. kommúnistar og nú Samfylkingarmenn. Rök þeirra eru rýr í roðinu og það finna þeir sjálfir. Þeir reyna að bæta það upp með því að níða niður sjálfstraust þjóðarinnar. Helsta trikkið er að hrópa upp „Ónýt króna!! Okkur er borgið ef við komumst í skjól Seðlabanka Evrópu“ Fullyrða að með töku Evru leysist öll okkar vandamál. En sleppa auðvitað að mynnast á t.d. Grikkland,Spán ,Portúgal og Írland þar sem gengi Evrunnar passar alls ekki.
Ef samtök atvinnuvega mótmæla inngöngu í EU þá munar þá ekkert um að rægja þá og gera þá tortryggilega. Í mínu ungdæmi var atvinnu rógur talið eitt það andstyggilegasta sem menn stunduðu. Nú er atvinnurógur ekkert mál. Bara krydd í umræðuna . Jafnvel þó menn stundi sína vinnu af samviskusemi og samkvæmt lögum,er þeim úthúðað eins og um forhertum glæpamönnum.
Kæri lesandi. Stöndum vörð um sjálfstæði þjóðar okkar . Hættum atvinnurógi og stöndum með atvinnuvegunum .
Snorri Hansson, 26.3.2011 kl. 01:46
Snorri: Allt tal um afsal sjálfstæðis of fullveldis er froðusnakk.
Hvernig getur þú sagt að krónan sé að hjálpa íslendingum? Útflutningur hefur aukist lítilega, það er ekkert miða við þær skuldir sem þjóðin situr uppi með vegna veiks gjaldmiðils. Hefurðu reiknað út hvað það kostar þjóðfélagið á mánuði að halda úti þessu rusli sem heitir íslensk króna? Hver borgar mismuninn á gengi krónunnar á íslandi og svo gengi aflands krónunnar? Það eru skattgreiðendur!
Ef Grikkland, Spánn, Portúgal og Írland væru ekki með evru væru þau mun verr stödd en þau eru í dag og lífskilyrðin þar væru mikið verri vegna veiks gjaldmiðils.
Tökum ekki þjóðrembing fram yfir skynsemi!
The Critic, 26.3.2011 kl. 10:12
Valþór náfrændi minn (við erum systrasynir, vorum góðir vinir og í miklu bréfasambandi á yngri árum) er fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans og fv. forseti bæjarstjórnar Kópavogs, sem fulltrúi Alþýðubandalags. Sína róttæku, sósíalísku fortíð á hann sameiginlega með ekki aðeins Svavari Gestssyni, Steingrími J. Sigfússyni og Má Guðmundssyni, heldur einnig ESB-ráðamönnum eins og sjálfum Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB, sem er fyrrverandi Maóisti (1), og stækkunar-(þ.e. útþenslu-)kommissarnum (þ.e. í reynd: ráðherranum) Štefan Füle, sem gekk í kommúnistaflokk Tékkóslóvakíu 1982, en ekki úr honum fyrr en kommúnisminn féll árið 1989 (2).
Draumur margra sósíalista og kommúnista um Evrópu sem eitt, sameinað ríki fær útrás hjá ýmsum þeirra áratugum seinna í þeim undarlega áhuga að koma löndum sínum inn í Evrópusambandið. Valþór hefur fallið fyrir sömu freistingu, en illa þekki ég hans ágæti, ef samvizka hans samþykkir við rækilega skoðun, að ESB hrifsi af okkur allt æðsta löggjafarvald, en það er nákvæmlega það, sem mun gerast, skv. skilmálum sem undirskrifaðir eru í aðildarsáttmála ríkja við ESB.
Að hann tíundar hér "upptöku "alvöru gjaldmiðils"" (og meinar evru) er heldur seinheppið, þegar ekki einu sinni er ljóst, hvort hún lifi af næstu 5 ár! – fyrir utan staðreyndirnar um gagnsleysi hennar fyrir Grikkland, Spán, Portúgal og Írland, eins og Snorri tíundar hér ofar.
Vonandi endurskoðar Valþór afstöðu sína og hættir við að gerast enn eitt hjólið undir vagni íslenzkra ESB-innlimunarsinna.
1) Um Barroso: "He was one of the leaders of the underground Maoist MRPP (Reorganising Movement of the Proletariat Party, later PCTP/MRPP, Communist Party of the Portuguese Workers/Revolutionary Movement of the Portuguese Proletariat)," segir um hann á Wikipediu.
2) Um Štefan Füle: Stækkunarstjóri ESB, gamall kommúnisti frá Tékkó, vill Tyrki í bandalagið! (með mynd).
Jón Valur Jensson, 26.3.2011 kl. 10:36
Þetta er nákvæmlega það sem einkennir ESB umræðuna á íslandi, alskonar bull um samsæriskenningar og endalok Evrunnar og ESB.
The Critic, 26.3.2011 kl. 14:17
Ég er afar ánægður með þetta svar við athugasemdinni minni.“ FROÐUSNAKK, ÞJÓÐREMBINGUR“Afsal sjálfstæðis og fullveldis við inngöngu í EU er STAÐREIND. T.d. munum við ekki getað samið sjálfir við aðrar þjóðir. Eftir hrunið gátu útflutningsfyrirtækin haldið áfram starfsemi og skilað hagnaði. Það er frumatriði. Þökk sé lágri kr.
Þegar gjaldeyrisstaðan er orðin nægilega góð þá getur Seðlabankinn boðið í aflandskrónurnar. Þessar þjóðir stæðu betur með sína mynt. Lífskilyrðin verða erfið um einhver ár vegna skulda,á hvorn vegin sem er.
Um þjóðrembing: Ég er afar ánægður með að vera íslendingur. Frelsi þjóðarinnar er eitt af frumatriðum í minni lífsýn.
Taktu eftir því að öfugt við þig hreyti ég ekki ónotum í þig. Þú og þínir líkar hafið ekkert annað.
Snorri Hansson, 26.3.2011 kl. 15:11
Svo er þetta harla klént hjá Valþóri frænda mínum: "Við erum Evrópuþjóð!" – Þýðir það, að við eigum að kasta fullveldisréttindum okkar inn til þeirra í Brussel, rétt eins og Gunna kastaði skjóðunni með sál Jóns síns inn fyrir hlið himnaríkis í leikriti Davíðs? – Gunna var þó að reyna að bjarga sáluhjálp hans, en ESB-sinnarnir væru að afsala okkur hinum beztu bjargráðum: stjórn fiskveiðimála hér við land og æðsta löggjafarvaldi, svo að hér er býsna ólíku saman að jafna!
Ég er ekkert minni Evrópumaður en Valþór frændi minn, ég lærði úti í Englandi, hef ferðazt um fallega álfuna, þykir gaman að spreyta mig á því að tala þýzku, dönsku, sænsku og jafnvel frönsku, ber virðingu fyrir evrópskri menningu og uni mér vel, þegar tími gefst frá vinnu og nauðsynlegri baráttu, að sökkva mér i sögu Evrópu og hugmyndaarf. Það blekkir mig hins vegar ekki til þess að samsinna pólitískri stórveldishugsun sem vill fá fullkomið tak á landi mínu, bæði vegna auðlinda þess og af því að þar eigi þeir "strategisches Interesse".
Jón Valur Jensson, 26.3.2011 kl. 15:59
Snorri og Jón: Eigið þið svar við þessari spurningu: Er það velmegandi atvinnulíf/efnhagskerfi sem býr við gjaldmiðil í höftum? Er það frelsi?
Evrópusamtökin, www.evropa.is, 26.3.2011 kl. 17:47
Snorri, ekkert þjóðfrelsi hefur skerst hjá þjóð sem hefur orðið aðili að ESB síðan það var stofnað eða hjá EEC sem var undanfari ESB.
Þessi fullyrðing þín er því ekkert annað en markleysa með meiru og stenst ekki nánari skoðun. Ekkert frekar en önnur þvæla andstæðinga ESB um ESB og aðildarríki þess.
Þvælan sem kemur frá Jóni Vali er vel þekkt. Enda er þetta bara endurtekning hjá honum. Þess má einnig geta að andstæðingar ESB á Íslandi hafa verið að spá endalokum evrunar frá árinu 2008 þegar efnahagskreppan skall á með fullum krafti. Þetta hefur síðan verið endurtekið reglulega síðan þá ef að neikvæðar fréttir berast af stöðu mála í Evrópu.
Þetta er auðvitað tóm þvæla. Enda er hvorki ESB eða evran að fara neitt á næstunni.
Jón Frímann Jónsson, 26.3.2011 kl. 18:01
Við erum vissulega Evrópuþjóð. Það hefur ekkert með pólitík að gera. Ég er sammála Valþóri. Ég hef séð það hér í Berlín hversu margir sækja hér nám og einnig starfa. Það er gaman að sjá svo marga Íslendinga sækja sér menntun og reynslu hér í borginni.
Ég hef alltaf verið á móti þessum gjaldeyrishöftum. Áform Seðlabanka veita erlendum aðilum afslátt af "gæðum" landsins langt umfram Icesave. Það hefur verið ljóst alveg frá því að gjaldeyrishöftin voru sett. Mér finnst að menn ættu að setja meiri orku í þá baráttu. Höftin ættu að sameina Evrópusinna og aðra um það að afnema þau.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 26.3.2011 kl. 18:08
Jæja, var það ekki evrókratinn Árni Páll Árnason sem ásamt Má í svörtu höllinni var að tilkynna um að gjaldeyrishöftin skyldu framlengjast frá 31. ágúst nk. til 2015?
Ég var ekkert að ræða hér um gjaldeyrishöft, og ég skil ekki, að þið hafið neitt upp úr því að snúa umræðunni að þeim. Ekki bað ég um, að þau yrðu til 2015, en stjórnvöld gera það auðvitað líklegra en ella að hafa þau hangandi yfir okkur, ef þeim tekst að fella á okkur Icesave-klafann, sem myndi valda flóði erlends gjaldeyris frá Íslandi og veikja krónuna.
Spjall þitt (og mitt) um Evrópu, Stefán, hefur ekkert með ESB að gera.
JFJ minnir á einhverjar spár um evruna frá 2008. Ég er að tala um raunveruleg vandræði hennar. Hefur hann ekki fylgzt með þarna norður á Hvammstanga?
Evrópusamtökin spyrja mig eins: um frelsi – vilja sem sé ræða "eitthvað annað". Væntanlega ber að skilja það sem svo, að þau viðurkenni með þögninni orð mín, að ESB myndi hrifsa af okkur allt æðsta löggjafarvald og að það sé nákvæmlega það, sem muni gerast, skv. skilmálum sem undirskrifaðir eru í aðildarsáttmála ríkja við ESB. Ennfemur hafa þau ekkert svar við ábendingum okkar Snorra um gagnsleysi evrunnar fyrir Grikkland, Spán, Portúgal og Írland.
En frelsi lýsir sér í mörgu. Ég og flestir Íslendingar erum ágætlega frjáls, þótt sum fyrirtæki vilji vera frjálsari. Gengislækkun krónunnar kom illa við marga, en sumt af því er verið að lagfæra með dómstóla-úrskurðum og niðurfellingu hluta skulda. Sú gengislækkun er hins vegar um leið mikil orkusprauta fyrir útflutnings-atvinnuvegina og ferðaþjónustuna.
Jón Valur Jensson, 26.3.2011 kl. 22:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.