Leita í fréttum mbl.is

Olli Rehn til Íslands

Olli RehnOlli Rehn, yfirmaður stækkunarmála hjá ESB er væntanlegur til Íslands í næstu viku. Morgunblaðið skýrir frá þessu:

,,Olli Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá Evrópusambandinu, flytur í næstu viku erindi um viðhorf Evrópu til Íslands í tengslum við aðildarumsóknina. Er fyrirlesturinn á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, opnar fundinn og fundarstjóri er Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðiprófessor og stjórnarformaður Alþjóðamálastofnunar," segir orðrétt í fréttinni.

Án nokkurs vafa verður áhugavert að heyra hvað hann hefur að segja um stöðu mála.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einn New World Order- sinninn (og frá þessari leynilegri Bilderberg Group-u)  í viðbót hingað til lands.

Er hann Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra bara í því að draga menn hingað til lands frá þessari strengjabrúðu framkvæmdarstjórn ESB + Bilderberg Group,  var það ekki nóg fyrir Össur að fá hingað til lands hann Carl Bildt á sínum tíma, já og einmitt frá þessari strengjabrúðu framkvæmdarstjórn ESB og  þessari Bilderberg Group? 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 00:49

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég held að karlinn ætti bara að vera heima hjá sér.

Tómas Ibsen Halldórsson, 4.9.2009 kl. 09:28

3 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Tómas, Þorsteinn: Komið og kynnið ykkur málið! Sýnið víðsýni!

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 4.9.2009 kl. 10:13

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Mér sýnist nú víðsýni ESB-sinna vera eins og þegar blindur leiðir blindan.  Ég veit ekki hvort það sé ofbirtan sem stafar frá ESB sem gerir það að verkum að þið hafið blindast og sjáið ekkert annað.

NEI takk, ég sé of mikla galla við ESB, ég hef ekki áhuga.

Tómas Ibsen Halldórsson, 4.9.2009 kl. 12:31

5 identicon

Vinsamleg tilmæli hérna til ykkar ESB- sinna

Ekki koma með eða draga hingað til lands fleiri svona strengjabrúður sem eru í þessari framkvæmdarstjórn ESB + Bilderberg Group, þið þarna ESB- sinnar og/eða New World Order- sinnar. 

 Við viljum auk þess ekki sjá þetta skitapakk, eins og þá Josquin Almunia Amann, José M Dumo Baroso, Neelie Kroes og  Andris Piebalgs sem eru einnig í framkvæmdarstjórn ESB + Bilderberg Group, ok?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 13:39

6 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Samtökin vilja beina þeim tilmælum til þeirra sem leggja inn athugasemdir að gera það á tungumáli sem teljast verður siðsamlegt.

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 4.9.2009 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband