12.11.2009 | 08:35
Evran tryggir stöðugleika
,,Upptaka evru myndi hjálpa í baráttunni við atvinnuleysi hér á landi, segir Vladimír pidla, atvinnumálastjóri Evrópusambandsins. Sambandið hefur hrundið af stað viðamikilli áætlun til að vinna gegn atvinnuleysi." Svo segir í frétt sem RÚV birti í gærkvöldi í tilefni fyrirlesturs pidla í gær. Fyrir fullu húsi talaði hann um aðgerðir ESB gegn atvinnuleysi. Ræðu pidla má lesa hér
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
ESB hefur barist við atvnnuleysi árum saman með engum árangri.Síðan koma þessir menn hingað og vilja ólmir kenna okkur sem höfum hingað til haft því sem ekkert atvinnuleysi áratugum saman.Fréttastofa rúv er í engum takti við raunveruleikann og hefur ekki verið lengi.Þar til viðbótar er ESB að verða elliheimili þar sem stórhluti þegnanna mun ekki vinna sökum aldurs til viðbótar atvinnuleysi þeirra sem vinnufærir eru.Engin veit í raun hvaða framtíð mun bíða ESB eftir 30 ár, en eins og útlitið er núna þá er það ekki gott.Og eitt er víst að þótt Ísland gangi þar inn þá mun það engu ráða um framtíð þess.
Sigurgeir Jónsson, 12.11.2009 kl. 10:10
Já. Evran tryggir stöðuga eyðni samkeppnishæfni í Finnlandi
Það minnist enginn á að samdráttur í landsframleiðslu Finnlands er núna ennþá meiri og verri en hann var í kreppunni miklu í byrjun 10. áratugs síðustu aldar, þegar Sovétríkin hrundu ofan á Finnland. Enginn minnist á þetta. Enginn talar um að Evrópusambandið og gjaldmiðill þess sé hruninn ofan á Finnland í dag - og hefur reyndar verið að smá-hrynja ofan á landið allar götur frá árinu 2000. Mikill stöðugleiki þar.
Svo eru það
Spánn - rangir stýrivextir evru á röngum tíma bjó til bóluna á Spáni: núna 20% atvinnuleysi þar og 42% atvinnuleysi hjá ungmennum þar í evru-landi. Mikill stöðugleiki þar.
Írland - rangir stýrivextir evru á röngum tíma bjó til bóluna á Írlandi: núna 13% atvinnuleysi. Núna eru raunstýrivextir á Írlandi þeir hæstu í heiminum. Mikill stöðugleiki þar.
Svo eru það
Lettland - í dauðadái ERM. Mikill stöðugleiki þar.
Litháen - í dauðadái ERM. Mikill stöðugleiki þar.
Eistland - í dauðadái ERM. Mikill stöðugleiki þar.
Svo eru það
Ítalía - á barmi hyldýpis skulda. Mikill stöðugleiki þar.
Portúgal - hagvöxtur horfinn til frambúðar. Mikill stöðugleiki þar.
Grikkland - á leið í þrot. Mikill stöðugleiki þar.
Evrópusamtökin á Íslandi
Það er alls ekki undarlegt að þið viljið ekki skrifa undir nafni hér á vef Evrópusamtakanna. Ef þið skrifuðu undir nafni mynduð þið ekki skrifa svona eins og þið gerið. Mikill stöðugleiki hér.
Þið þekkið ekki mikið til raunverulega til mála í Evrópu.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2009 kl. 16:38
Síðasta stóra áætlun ESB
Hafið þið fylgst með síðustu stórkostlegu áætlun Evrópusambandsins? Hún heitir ennþá "Lissabon 2000 markmið Evrópusambandsins". Ekkert gengur með þessi markmið og það eru einungis 50 dagar til stefnu!
Það eru aðeins 50 dagar þangað til við í Evrópusambandinu verðum ríkust í heiminum samkvæmt þessum Lissabon 2000 markmiðum Evrópusambandsins. En er þetta að gerst? Nei ekkert gerist. Enginn er árangurinn, þetta gengur mest afturábak.
- Skoðið árangurinn hér: Lissabon 2000 markmið Evrópusambandsins
- Skoðið atvinnuleysistölurnar hér: Atvinnuleysi í ESB núna
Það sem Evrópusambandið er best til er að framleiða áætlanir. Enda hafa þeir ótakmörkuð fjárráð til að gramleiða markaðsfærsluefni um lofttegundina SÖLU-GAZ. Sölugas Evrópusambandsins og Samfylkingarinnar gengur mest út að boða meðvind á hjólastígum og gott veður í Aðsigi. Það er alltaf gott verður í Aðsigi Samfylkingarinnar og ESB. Áætlanir um gott veður og munnvatn úr gosbrunnum Brussel eru alltaf í Aðsigi.
Hver er munurinn á 5 ára áætlunum Sovétríkjanna og 10 ára áætlunum ESB?
En einn aðalmunurinn, sagði Petr Mach sem var efnahagsráðgjafi Vacalv Klaus, er sá að 5 ára áætlanir Sovétríkjanna lögðu mesta áherslu á að það væri þungaiðnaðurinn sem ætti að fá Sovétríkin til að ná hagsæld Bandaríkjamanna. En í Evrópusambandinu voru það hinsvegar tölvur sem árið 2000 áttu að fá Evrópusambandið til að ná hinni miklu hagsæld Bandaríkjanna fyrir árið 2010.
Þetta voru því tvennar en mjög ólíkar áætlanir. Ein var einungis til fimm ára og studdist við kola- og stálverk. Hin áætlunin var hinsvegar til 10 ára og studdist við tölvur og internet, eða svo nefnda "upplýsingatækni". Ræðan Petr Mach frá þessari jómfrúar Brusselferð er hér.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2009 kl. 16:49
Nefndur Petr Mach er greinilega "maður fólksins" , flokkur hans fékk 1.27% atkvæða í Evrópukosningunum 2009! Minna getur það nú varla verið!
Evrópusamtökin, www.evropa.is, 12.11.2009 kl. 23:27
Sæl/l nafnleysingi á Evrópusamtökunum
Þetta er heimskulegasta athugasemd sem ég hef séð hér á vef ykkar hingað til. Hvað ertu að segja með þessu? Það væri gott að fá svar við því. Ég bíð eftir svari.
Ég vissi ekki að þessi maður hefði verið í framboði neinsstaðar. Ykkur finnst þetta kannski fyndið "maður fólksins" ?
Það er ekkert í sambandi við kosningar til þings ESB sem er "fólksins". EKKERT! Kosningaþáttaka í Tékklandi var 28.2% !! og var jafvel enn lægri en síðast. Þessar svokölluðu þingkosningar eru skrípaleikur. Þér/ykkur finnst þetta kannski snjöll athugasemd.
Hvað hafa kosningar til skrípaleikhúss ESB með efnahagsmál ESB að gera ? Hvað? Hafið þið prófað að vera smáríki í Mið-Evrópu með landamæri að stórríkjum og fyrrverandi keisaradæmum á alla vegu og sem þurfti að búa undir alræði og hryllingi Sovétkommúnista í 45 ár? Smáríki sem skipað var að hafa fána erlends kúgunarvalds blaktandi við hún á öllu því sem ykkur væri kært? Hafið þið prófað það? Tékkland er nýbúið að fá sjálfstæði sitt aftur. Þei þekkja 5 ára áætlanir allt of vel til að vita að 10 ára áætlanir ESB eru loft og munnvatn. Enda gengur ekki neitt með neitt. Ekki frekar en það gerði í Sovétríkjunum.
Yfirskrift þessarar færslu ykkar er um Evru, myntbandalagið og svo minnist ég á þau þau loforð sem ESB í Brussel gaf þegnum þessa sambands þegar þetta var gangsett. Ekkert hafa þeir staðið við. Ekkert. Þið settuð þessa yfirskrift sjálf: stöðugleiki. Svo komið þið með athugasemd sem ætlað er að rýra þá persónu sem ég vísa til. Bara svona út í loftið
Hvað er að ykkur? Eruð þið ekki fær um málefnaleg svör?
Mikhail Gorbachevs fékk 0,5% atkvæða í kosningum til forseta Rússlands. Rýrir það manninn? Nei það gerir það ekki. En athugasemd þín gengisfelldi þennan vef ykkar niður í junk. Engin samtök eða söfnuður verður nokkru sinni betri en þeir einstaklingar sem eru í honum.
Það væri gaman að fá nafn þitt að vita. Ekki er það Petr Mach, svo mikið er víst.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 13.11.2009 kl. 02:42
EKKERT SVAR????
Sigurjón Pálsson (IP-tala skráð) 13.11.2009 kl. 22:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.