12.11.2009 | 16:15
Bókhald ESB samþykkt
Annað árið í röð hefur Evrópska endurskoðendaskrifstofan gefið út heilbrigðisvottorð á bókhald og reikninga ESB. Skv. skrifstofunni gefa reikningar ársins 2008 "sanna og rétta" mynd af fjármálum ESB. Fyrirkomulag greiðslna á styrkjum ESB hefur almennt færst í betra horf, en úrbóta er samt þörf og þá helst við útborgun á styrkjum til uppbyggingarmála, en það er á hendi aðildarlandanna að greiða út þá styrki. Það að athugasemd hafi verið gerð við tiltekna greiðslu þarf ekki að þýða að misferli hafi átt sér stað heldur að ekki hafi verið farið nákvæmlega eftir reglum um útborgun.
Stundum er því haldið fram að innan ESB sé óheyrilegum fjárhæðum eytt í botnlausa skrifræðishýt. Veruleikinn er hins vegar sá að aðeins 6% af fjárlögum ESB er varið til stjórnsýslu sambandsins. Hlutfallslega eru fjárlög ESB heldur ekki há, aðeins rétt rúmlega 1% af vergum þjóðartekjum aðildarríkjanna. Framkvæmdastjórnin hefur tekið saman lista yfir helstu goðsögur og staðreyndir um fjárlög og bókhald ESB. Lesa meira hér
Enn meira: www.esb.is
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Þetta er ekki rétt samkvæmt frétt dagblaðsins Børsen í gær:
Er Evrópusambandið í Brussel gjaldþrota?
Það veit enginn ennþá, nema kannski þeir sem sjá um peningakassa ESB. Børsen skrifar að núna sé fimmtánda árið sem endurskoðendur kveikja á rauða ljósinu yfir ársreikningum Evrópusambandsins. Þeir neita að skrifa undir ársreikninga sambandsins, einu sinni enn. Það eru ennþá vandamál með greiðslur úr vissum sjóðum ESB. Endurskoðendurnir sögðu að það væru stórar villur í greiðslum úr peningasjóðum eins og til dæmis “structural funds”. Þar var að minnsta kosti greitt 11% of mikið út sjóðnum. Þessi 11% eru um 720 miljarðar íslenskar krónur. Þau lönd sem voru nettó-greiðendur til ESB á síðasta ári borga þetta: Hverir fá og hverjir þurfa að borga
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 12.11.2009 kl. 16:54
Það er ekki nóg að lesa fyrirsögnina sem vísað er í, heldur greinina til enda. Reikningar Framkvæmdastjórnar ESB fengu grænt ljós, annað árið í röð. En ársreikningur ESB hlaut ekki staðfestingu endurskoðenda, 15. árið í röð. Þarna er farið vægt í hlutina en í fréttatilkynningu Open Europe er orðalagið hreinna:
Aðal vandinn er samt ekki að kvitta fyrir hverja evru; finna hvaðan hún kemur og hvert hún fer, heldur hvað er gert við hana.
Prófið að skoða þetta plagg. Athugið að við hvert einasta dæmi eru linkar (neðst á síðunum) sem vísa í official gögn frá Evrópusambandinu sjálfu. Betri geta heimildirnar ekki orðið.
Haraldur Hansson, 12.11.2009 kl. 17:18
Open Europe haha. Já já. Einmitt.
Það vita allir sem hafa kynnt sér umrætt mál 1% eða meira að andsinna endurskoðunnar bla bla er grænurisa saga. Ein af mörgum ævintýrasögum andsinna. Allt og sumt.
Í ranveruleikanum er ekkert athugunarvert við viðkomandi atriði og hefur aldrei verið.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 12.11.2009 kl. 21:00
Heyrðu Hvað kemur okkur bókhald ESB við. Ég spyr bara.
Valdimar Samúelsson, 13.11.2009 kl. 12:02
Þessi síða er alltaf jafn spaugileg
Gullvagninn (IP-tala skráð) 13.11.2009 kl. 12:17
Eins og komið er inn á hér að ofan er langur vegur frá því að bókhald Evrópusambandsins sé í lagi þó tekin hafi verið pólitísk ákvörðun um að láta eins og svo sé.
Það má geta þess að frá 1994-2002 var því að sama skapi haldið fram opinberlega að bókhald sambandsins væri í góðu lagi allt þar til fyrsti faglegi bókhaldarinn var ráðinn 2002 og reyndi að vekja athygli yfirboðara sinna á því að það gengi ekki að bókhald þess hefði ekki verið samþykkt í átta ár. Þeir vildu ekkert gera í málinu nema sópa því undir teppið sem endaði með því að bókhaldarinn gerði það opinbert og var rekin fyrir. Aðrir hafa ekki axlað ábyrgð í málinu. Eftir þetta var bókhaldið ekki samþykkt 2003, 2004, 2005, 2006 og 2007.
Í fyrra var s.s. ákveðið að þetta gengi ekki lengur en í stað þess að eitthvað væri raunverulega gert í málinu var ákveðið að láta líta út fyrir að allt væri í góðu þó ekki væri enn vitað um afdrif stórs hluta útgjalda Evrópusambandsins! Sama á við um í dag. Ekkert hefur breytzt nema að einhverjir PR menn hafa sennilega komið að málum.
En þó svo það væri rétt að bókhald Evrópusambandsins væri í góðu lagi í ár og hafi verið að sama skapi í fyrra. Hvað með bókhaldið 1994-2007? Í 13 ár? Það bókhald er allt ófrágengið og ósamþykkt. Hvenær verður það "lagað"?
Hvernig eigum við að treysta svona batteríi sem fyrir utan allt annað getur ekki einu sinni haft bókhaldið sitt nokkurn veginn í lagi??
Hjörtur J. Guðmundsson, 16.11.2009 kl. 13:49
Hvað síðan varðar opinberar tölur um útgjöld Evrópusambandsins þá er lítið að marka þær enda aðeins toppurinn á ísjakanum. Stærstur hluti útgjalda vegna skriffinsku sambandsins er greiddur af hinu opinbera í ríkjum þess.
Hjörtur J. Guðmundsson, 16.11.2009 kl. 13:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.