Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2013
26.4.2013 | 17:37
Össur: Klárum samningana
Össur Skarðhéðinsson, utanríkisráðherra, skrifaði grein FRBL þann 26.4 um ESB-málið og segir þar meðal annars:
"Mestu skiptir að okkur hefur tekist að skapa góðan skilning á sérstöðu Íslands, ekki síst varðandi sjávarútveg, landbúnað og aðra mikilvæga þætti. Það kom t.d. fram á nýlegum fundi mínum með Stefan Fule, stækkunarstjóra sambandsins, sem lýsti fullum skilningi á mikilvægri kröfu Íslendinga um bann við innflutningi á lifandi dýrum. Framkvæmdastjóri orkumála, Oettinger, lýsti sömuleiðis yfir í tilkynningu eftir okkar fund að Íslendingar myndu halda bæði eignarhaldi og fullu forræði yfir orkulindum sínum. Fyrir liggur að reglur ESB tryggja að Íslendingar halda rétti sínum sem þeir hafa gagnvart fiskistofnum í hafi."
15.4.2013 | 19:55
Pírati um ESB-málið - góður punktur
Frambjóðandi Pírata í Reykjavík-norður, Þórður Sveinsson, skrifaði grein í Fréttablaðið þann 11.apríl og segir meðal annars:
"Fólk spyr mig gjarnan hver afstaða pírata sé gagnvart ESB. Það er skoðun mín, og margra annarra pírata, að stjórnmálaflokkar eigi ekki að vera með eiginlega afstöðu með eða á móti ESB. Sumir kunna að halda að þannig séum við að forðast þetta gríðarlega mikilvæga mál, en svo er ekki. Á meðal grunngilda pírata er gagnsæi og beint lýðræði.
Gagnsæi snertir málið á þann hátt að allt viðræðuferlið á að vera opið og á almenningur rétt á því að vera vel upplýstur um allt sem því við kemur svo hann geti tekið vel upplýsta ákvörðun. Við viljum veita upplýsingar hvort sem þær eru jákvæðar eða neikvæðar í garð sambandsins. Ef ég veiti þér eftirfarandi upplýsingar: það er rigning úti og maður verður blautur í henni eða það er sól úti og það er mjög heitt þá er ég ekki að segja þér hvort þú eigir að vera inni eða úti heldur er ég einfaldlega að veita þér upplýsingar til þess að þú getir tekið þína eigin upplýstu ákvörðun."
10.4.2013 | 12:48
Össur í DV: Klárum með stæl!
Í nýrri grein eftir Össur Skarphéðinsson í DV segir:
"Viðræðurnar um aðild Íslands að Evrópusambandinu varða grundvallarmál fyrir framtíð Íslands. Það skaðar hagsmuni okkar allra ef þeim verður slitið. Þjóðin á sjálf að fá lokaorðið um aðildarsamning. Það er hins vegar hlutverk okkar stjórnmálamanna að tryggja að endanlegur samningur verði sem bestur fyrir Ísland. Góðu fréttirnar eru þær að viðræðurnar ganga vel og það er farið að sjá til lands.
Skoðanakannanir og þjóðaratkvæði
Þeir sem vilja hlaupa úr viðræðum í miðjum klíðum segja jafnan að skoðanakannanir sýni að Íslendingar vilji ekki ganga í ESB ef kosið væri í dag. Gott og vel. En hvað með þá staðreynd að sömu skoðanakannanir hafa líka sýnt ítrekað að mikill meirihluti landsmanna vill ljúka samningaviðræðunum? Eigum við ekki líka að taka mark á þeirri niðurstöðu? Sú skoðanakönnun sem mestu máli skiptir er vitaskuld þjóðaratkvæðagreiðslan."
7.4.2013 | 10:41
Árni Páll í forystusætinu
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.4.2013 | 08:44
Benedikt Jóhannesson rýnir í stöðu Sjálfstæðisflokksins
Benedikt Jóhannesson, formaður Sjálfstæðra Evrópumanna, skrifar mjög áhugaverða pistla á vefsvæðið www.heimur.is og þar er nú nýr pistill, þar sem Benedikt rýnir í stöðuna hjá Sjálfstæðisflokknum. Hann kemur m.a. inn á Evrópumálin og segir m.a.:
"Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í febrúar síðastliðnum samþykkti flokkurinn að öll lög skyldu vera í samræmi við kristin gildi. Ég var ekki í salnum þegar þetta var samþykkt og kann ekki að segja frá því hver aðdragandi þess var. Þetta var seinna dregið til baka, en skaðinn var skeður.
2.4.2013 | 12:38
Ný Fésbókarsíða Evrópusamtakanna
Ný Fésbókarsíða Evrópusamtakanna var opnuð þann 2.apríl á slóðinni: http://www.facebook.com/Evropusamtokin
Tilgangur síðunnar er að vera opinn og lýðræðislegur umræðuvettvangur fyrir Evrópumál. Allir sem vilja ræða Evrópumálin hjartanlega velkomnir!
2.4.2013 | 10:53
Össur og gáttirnar þrjár
Enn ein greinin eftir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, birtist í DV fyrir skömmu. Í henni fjallar Össur um "gáttir" sem standa Íslandi til boða í samskiptum við erlend ríki. Hann skrifar:
"Evrópuleiðin
Evrópuleiðin fól í sér umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Hún miðar að því að gera Ísland að hluta af stærri og sterkari efnahagsheild, sem tryggir efnahagslegan stöðugleika, og heldur opnum þeim möguleika að taka upp evru í staðinn fyrir krónu ef þjóðin svo kýs. Það væri því glapræði að fresta viðræðum um aðild, og skera þannig endanlega á möguleikann til að taka upp evru í stað krónunnar. Það myndi skaða hagsmuni Íslands.
Upptaka evru felur í sér lækkun á vöxtum, verðbólgu og verðlagi og er auðveldasta leiðin til að kasta verðtryggingunni. Aðild að ESB mun samkvæmt reynslu annarra smáþjóða sem hafa gengið í sambandið stórauka erlendar fjárfestingar á Íslandi, minnka viðskiptakostnað um tugi milljarða árlega að sögn Seðlabankans og einfalda viðskipti. Hún mun því leiða til aukins útflutnings, meiri hagvaxtar, og fleiri starfa. Evrópuleiðin er langbesti kosturinn til að bæta lífskjör á Íslandi og tryggja stöðugleika fyrir fjölskyldur og fyrirtæki.
Stórsókn fyrir sjávarútveg
Utanríkisstefnan þarf að taka mið af sjávarútvegi, sem burðarási í atvinnulífinu. Innan hans hefur verið tortryggni gagnvart Evrópuleiðinni. Sú tortryggni er á misskilningi byggð. Aðild opnar á stórsókn fyrir sjávarútveg í Evrópu. Hún mun í fyrsta lagi tryggja þær auðlindir, sem sjávarútvegur býr að í dag. Hún mun í öðru lagi afnema alla tolla á 500 milljóna manna markaði Evrópu. Í því felast einstök, ný tækifæri fyrir fjölmörg lítil fyrirtæki í fullvinnslu hringinn í kringum landið, sem í dag eru lokuð frá Evrópu með tollamúr.
Ástæðan fyrir að þau eru flest örsmá er örlítill heimamarkaður. Yrði þeim boðið upp á tollalausan 500 milljóna manna heimamarkað ættu þau gríðarlega sóknarmöguleika. Enginn vafi er á að sum þeirra myndu vaxa upp í stór alþjóðleg fyrirtæki og skapa með útflutningi mikil, ný verðmæti fyrir íslenska samfélagið.
Með aðild myndi einnig útgerð og annarri vinnslu opnast opnast leið til að sækja fram í Evrópu í krafti einstakrar samkeppnishæfni. Í nýju samstarfi við evrópsk fyrirtæki í vinnslu og veiðum gæti íslenskur sjávarútvegur því líka náð miklum slagkrafti utan Evrópu þar sem sjávarútvegur er vanþróaður.
Sama gildir um landbúnað. Millistétt Evrópu er viljug til að greiða hátt verð fyrir heilnæma hágæðavöru einsog obbi íslensks landbúnaðar framleiðir. Evrópuleiðin felur því í sér sóknarmöguleika fyrir báðar þessar gömlu greinar, fyrir nú utan að hún leiddi til vaxtalækkana sem myndu létta 69 milljörðum af sjávarútvegi í vaxtagreiðslur árlega, og líklega rífum milljarði af bændum."
2.4.2013 | 10:11
Aprílgabb!
Færsla okkar í gær um Eurovisjón var að sjálfsögðu í tilefni dagsins, 1. apríl. En kannski var hún ekki úr takti við þá strauma sem umlykja íslenskt samfélag um þessar mundir.
Færslan fékk mjög góðar viðtökur og þökkum við lesturinn! Þökkum V o J sérstaklega!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2013 | 08:15
Vilja láta loka fyrir Euróvisjón - telja keppnina hættulega ungu fólki - djók 1. apríl!!
Fjöldi smáframboða og smáflokka mun slá öll met í komandi kosningum. Samkvæmt heimildum sem Evrópusamtökin telja áreiðanlegar hefur nýr flokkur verið stofnaður sem ber heitið Ættjörðin- flokkur sannra Íslendinga.
Samkvæmt heimildarmanni Evrópusamtakanna fer nú fram málefnavinna og hafa Evrópusamtökin komist yfir vinnuskjal frá flokknum. Þar kemur m.a. fram að loka beri fyrir útsendingar RÚV á Söngavakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva(Euróvisjón), sem fram fer í Malmö, Svíþjóð, nú í lok maí.
Samkvæmt skjalinu sem Evrópusamtökin hafa komist yfir segir í áliti menningarnefndar flokksins að útsendingar á keppninni séu ...,,hættulegar þjóðarsál Íslendinga og keppnin sé tákn um siðferðilega hnignun Evrópu." Íslendingar eigi að ...,,njóta hámenningar en ekki lágkúru frá Evrópu. Þá er keppnin talin ýta undir óheilbrigt peningabrask og óæskilega starfsemi veðbanka, samkvæmt málefnaskjalinu sem Evrópusamtökin hafa undir höndum.
Standa beri vörð um siðferðilega yfirburði Íslendinga og sé það ekki gert sé ...,,hætta á að Íslendingar sökkvi í pytt lágmenningar og yfirborðsmennsku, sem sé eitt helsta aðalsmerki keppninnar að mati nefndarinnar. Þá segir í álitinu að keppnin sé sérstaklega hættuleg ungu kynslóðinni og ómótuðum einstaklingum.
Í álitinu kemur fram að fulltrúar á vegum menningarnefndarinnar munu reyna að hitta útvarpsstjóra á næstu vikum, til þess að reyna að fá hann til að taka keppnina af dagskrá RÚV og ...,,sýna þjóðlegt og uppbyggilegt efni í staðinn, með áherslum á gömul og góð gildi, sjálfstæðisbaráttuna og þjóðlega sveitarómantík.
Takist það ekki hefur nefndin velt fyrir sér þeim möguleika að leigja búnað frá Evrópu, til þess að trufla útsendingarnar.
Evrópumál | Breytt 2.4.2013 kl. 07:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir