Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009
30.11.2009 | 21:53
Lissabon-sáttmálinn gengur í gildi
Á morgun, 1. desember, 2009, tekur Lissabon-sáttmáli ESB, formlega gildi. Í tilefni af því ritar forseti Evrópuþingsins, Jerzuy Buzek, grein í alþjóðaútgáfu Der Spiegel. Þar rekur hann þær umbætur og breytingar sem sáttmálinn hefur fyrir ESB og Evrópu.
Hann segir m.a.:The EU is a Europe based on common values, notably freedom and solidarity. The treaty promotes the Union's values, introducing the Charter of Fundamental Rights into European primary law, ensuring better protection of European citizens. The charter is a guarantee that Union institutions and law cannot violate basic standards of human rights -- European institutions will have to respect them. The charter has the European Union's full support, even though the United Kingdom, Poland and the Czech Republic have all negotiated opt-outs, thus demonstrating the EU's ability to apply flexible arrangements in respect to the sensitivities of individual member states."
27.11.2009 | 16:33
Nei-sinnar í víking til Norjé!
Morgunblaðið birti í gær frétt sem byrjar svona: ,, Í morgun fór sendinefnd níu Íslendinga til Noregs til að taka þátt í aðalfundi Nei til EU í Noregi, en það eru systursamtök Heimssýnar á Íslandi. Í sendinefndinni eru m.a. þrír þingmenn frá jafn mörgum flokkum."
Þeir þingmenn sem um ræðir eru: Ásmundur Einar Daðason (VG), Vigdís Hauksdóttir (Framsókn) og Unnur Brá Konráðsdóttir (S).
Í frétt MBL er einnig sagt: ,,Ísland er eitt meginþema aðalfundarins, sem haldinn er á Gardemoen..."
Sé dagskráin hinsvegar skoðuð er Ísland á dagskrá kl. 14.30-1545 og 16.10-16.30 á laugardeginum. Dagskráin byrjar kl. 06.30 og er til 18.00 þann daginn. Varla getur þetta talist ,,meginþema" ?
Á sunnudeginum er samkvæmt prógrammi ekkert fjallað um Ísland, en þá mun hinsvegar norski Nei-kórinn syngja!
Athyglisvert hlýtur að vera stærð sendinefndar Nei-sinna og af því að við Íslendingar erum alltaf að tala um hina margfrægu höfðatölu, þá væri þetta svona svipað og að Bandaríkjamenn myndu senda nefnd upp á rúmlega átta þúsund (8000) til erindagjörða fyrir sig. Nei-sinnar eru því virkilega GRAND á því um þessar mundir!
Evrópumál | Breytt 28.11.2009 kl. 04:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.11.2009 | 16:04
ESB og "herinn": Grímur Atlason þreyttur á staðreyndabrenglun
Ein draugasaga sem ætlar að verða lífsseig er sú að Evrópusambandið sé að koma sér upp her.
Grímur Atlason, sveitarstjóri í Dalabyggð (mynd), er skemmtilegur bloggari og kemur víða við í hugleiðingum sínum. Hann fjallaði um þetta mál í nýlegu bloggi sínu. Þar segir hann meðal annars:
,,Tökum dæmi um fullyrðingu sem virðist vera álitin staðreynd á Íslandi: Evrópusambandið er að fara að koma sér upp her - það er eitt helsta markmið Lissabonsáttmálans.
Þessi fullyrðing heldur álíka vel og söguskoðun Hriflujónasar sem sumir - sérstaklega Hádegismóri og forveri hans - álíta enn vera rétta. En er Evrópusambandið að fara koma sér upp her? Svarið er nei. Það er undir ríkjunum sjálfum komið hvort þau taki þátt í afvopnunarverkefnum, friðargæslu, mannúðarverkefnum og björgunarleiðöngrum.
Persónulega hef ég ímugust á hernaðarbrölti hvers konar. En ég hef líka óþol þegar rangfærslur eru meðvitaðar settar fram til að afvegaleiða fólk. Lissabonsáttmálinn snýst þannig ekkert um stofnun sameiginlegs hers Evrópu.
Þeir sem vilja skoða hvað þessi sáttmáli þýðir geta lesið um hann hér. Heimssýn og aðrir benda án efa á önnur svör en það er líka bara allt í lagi."
Hægt er að lesa bloggið í heild sinni á þessari slóð:
http://blog.eyjan.is/grimuratlason/2009/11/20/eintona-pip/
27.11.2009 | 14:47
Jón Bjarnason talar: Hvert tækifæri notað...
Jón Bjarnason, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hélt ræðu á þingi um strandfiskveiðar í vikunni. Þar notaði hann tækifærið til þess að ítreka andstöðu sína við ESB. Gott og blessað, allir hérlendis vita að Jón Bjarnason er á móti ESB. En Jón vill kannski líka að eins margir útlendingar og hægt er viti þetta einnig.
Það er hinsvegar athyglisvert að skoða ræðu Jóns, en það má gera hér. Sé textinn settur inn í Word kemur í ljós að hún er 2272 orð. Almennt er talið að það taki um eina mínútu að lesa hundrað orð og Jón flutti þetta á ensku. Reiknum því með 1.5 mín per hundrað orð. Ræða Jóns var því rúmur hálftími að lengd. Erfitt er að halda fullri athygli manna í svo langan tíma.
Eins og skrattinn úr sauðaleggnum kemur svo í lokin 218 orða kafli þar sem Jón lætur þá sem enn höfðu fulla athygli vita að hann sé á móti ESB. Þar segir hann meðal annars (á ensku):,,Last summer the Icelandic Parliament, Althingi, decided, to apply for EU membership. The process has already begun, although nobody knows how much time is needed for the negotiations."
Vissulega vita menn ekki upp á hár hvað ferlið tekur langan tíma, en almennt er talið að undir eðlilegum kringumstæðum muni þetta taka 18-24 mánuði, þegar viðræðurnar hefjast. Þetta veit Jón að öllum líkindum fullvel, en lætur þess ógetið.
Og hann hélt áfram: ,,Iceland is a small island situated in the middle of the Atlantic Ocean with just over 300 thousand inhabitants....We can enjoy wide-ranging international cooperation without being tied up in the EU framework. Given these circumstances, it is my firm belief that the future of our country is will be much better off outside European Union than inside."
En bloggara er spurn: Hvernig vill Jón starfa með Evrópu? Hverjar eru hans hugmyndir um tengsl Íslands og Evrópu? Vill hann auka samstarfið við Bandaríkin, Kanada, Kína? Er þá ekki bara betra að segja Ísland frá öllum tengslum við meginland Evrópu, sem kaupir t.d. 70-80% sjávarútvegsafurða okkar og eru málaflokkur Jóns?
Væri ekki nær að reyna að efla enn frekari viðskiptatengsl okkar við Evrópu, lönd og menningu sem við þekkjum og höfum árhundruða reynslu af viðskiptum við?
Stundum er eins og það sé ekki 21.öldin!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2009 | 16:47
Það er fylgst með Íslandi...
Frændur okkar á Norðurlöndunum fylgjast grannt með þróun mála hér á Íslandi. Á krækjunni hér að neðan er að finna rafrænt fréttabréf, gefið út af danska Alþýðusambandinu.
Þar er fjallað um stöðuna í Evrópumálunum á Íslandi og rætt meðal annars við Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, Eggert Benedikt Guðmundsson framkvæmdastjóra Granda og Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins.
25.11.2009 | 21:49
Mörður "stútar" málflutningi Bjarna Ben!
Þetta segir hann okkur í Fréttablaði dagsins, og árásin felst í því að Evrópusambandið skuli ekki fyrir lifandis löngu hafa boðið EES-ríkjunum að ganga í myntbandalagið og taka upp evru. Það sé nánast rof á EES-samningunum.
Evran var frá upphafi bundin við ríki Evrópusambandsins og byggist á sameiginlegum ákvörðunum þeirra um efnahagsmál, þar á meðal stöðu ríkissjóðs hvers og eins ríkis í myndbandalaginu (sem þeim gengur sjálfum nógu illa að stilla af!). Þessar sameiginlegu ákvarðanir og hið sameiginlega stjórnkerfi sem þeim fylgir með deildu fullveldi í peningamálum, og líkamnast í Seðlabanka Evrópu, er grundvöllur evrusamstarfsins. Þeir sem vilja uppskera, þeir þurfa líka að sá.
Undanfarin ár líka fyrir hrun hefur verið hlaupin hver atrennan af annarri hér heima við að fá evru án þes að ganga í Evrópusambandið, en þær hafa allar fjarað út á þessu einfalda atriði: Evran er gjaldmiðill Evrópusambandsríkjanna í myntsamstarfinu. Ekki annarra."
Öll færsla Marðar er hér
Ps. Bjarni sagði líka: ,,Ég er Evrópusinni og við erum hluti af þessari Evrópufjölskyldu."
Heyr, heyr!
25.11.2009 | 17:28
Aðildarviðræður að hluta til hérlendis
Í fyrsta sinn munu aðildarviðræður við ESB fara að hluta til fram í umsóknarlandinu, í þessu tilfelli Íslandi. Þessu skýrði RÚV frá í dag og hafði eftir Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra. Þessi hluti mun ná yfir þá kafla sem snúa að EES-samningnum. M.a. er þetta gert til þess að draga úr kostnaði við aðildarviðræðurnar, sem og að gefa fulltrúum ESB færi á að kynnast betur aðstæðum hérlendis.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2009 | 23:09
Guðmundur Gunnarsson bloggar
Guðmundur Gunnarsson, Eyjubloggari, skrifar ágætan pistil þar í dag. Þar veltir hann fyrir sér m.a. siðferðinu í íslenskum stjórnmálum. En hann kemur líka inn á Evrópumálin og segir þar: ,,Við búum við lítið hagkerfi, örmynt sem einstaklingar sem hafa aðgang að fjármagni spila á. Það blasir við að öll stærri fyrirtæki verða að flytja höfuðstöðvar sínar erlendis og taka upp Evru. Einhliða upptaka erlenda gjaldmiðils er ekki raunhæfur kostur og því eru aðildarviðræður við ESB eina leiðin til aukins trúverðugleika og trausts og þá verða íslenskir stjórnmálamenn að fara að haga sér eins og kollegar þeirra í nágrannalöndum okkar." (Mynd: DV)
Pistill Guðmundar í heild sinni
Evrópumál | Breytt 25.11.2009 kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.11.2009 | 21:36
Valur Ingimundarson í Krossgötum
23.11.2009 | 17:46
Af dalamönnum (og öðrum mönnum)
Styrmir Gunnarsson(mynd), fyrrum ritstjórarefur Moggans, hefur mikið verið í kastljósi fjölmiðla upp á síðkastið, eða síðan bók hans UMSÁTRIÐ kom út. Þar fjallar hann um ýmis málefni, hrun, fjölmiðla, lýðræði o.s.frv. Styrmir er líka, eins og kunnugt er orðinn fastapenni hjá Mogganum. ,,Það er engin leið að hætta, eins og segir í laginu.
Í síðasta pistli Styrmis segir af dalamanninum og nýjum formanni samtaka Nei-sinna á Íslandi, Ásmundi Einari Daðasyni, en ÁED segist ætla að gera Samfylkingunni lífið leitt sem sem formaður Nei-sinna. Það þýðir með öðrum orðum að hann ætlar að vera leiðinlegur við Samfylkinguna. Bloggari hélt að Dalamenn væru þekktir fyrir að vera skemmtilegir, en það er kannski liðin tíð.
Almenn leiðindi eru því það sem Samfylkingarfólk má því búast við af dalamanninum Ásmundi Einari!
En orðrétt segir Styrmir í pistli sínum: ,, Nú er kominn fram á sjónarsviðið nýr pólitískur foringi á þeirra vettvangi, sem ástæða er til að fylgjast vel með á næstu árum, þar sem er bóndinn úr Dölum. Maður, sem augljóslega er tilbúinn til að berjast fyrir pólitískri sannfæringu sinni. Þetta er Samfylkingarmönnum auðvitað ljóst og þess vegna gera þeir tilraun til að stoppa hann af. En í þeirri tilraun opinbera þeir afstöðu til lýðræðislegra skoðanaskipta, sem er engum stjórnmálaflokki sæmandi.
Þessi viðbrögð við kjöri Ásmundar Einars Daðasonar til formennsku í Heimssýn boða ekkert gott þegar horft er til væntanlegra samningaviðræðna við ESB. Í stjórnarsáttmálanum er lofað gagnsæi í stjórnsýslu. Það eru meiri líkur en minni á, að í framkvæmd verði reynt að halda frá þjóðinni öllum upplýsingum sem máli skipta um gang samningaviðræðna. Þar hljóta Vinstri grænir að láta til sín taka og tryggja, að almenningur á Íslandi fái samstundis aðgang að öllum upplýsingum um gang samningaviðræðna. Í þeim efnum verða aðrir að reiða sig á þá. Það er komin of löng reynsla af því að Samfylkingin segi eitt en geri annað.
Hér setur Styrmir s.s. fram þá tilgátu sína að hætti þeirra sem lifa og hrærast í heimi samsæriskenninga, að Samfylkingin muni reyna eftir fremsta megni að halda frá þjóðinni ,,öllum upplýsingum sem máli skipta...
En það er rétt að benda Styrmi á að fram hafa komið kröfur um hið gagnstæða, m.a. frá ungum Evrópusinnum um að ferlið verði allt opið og gegnsætt. Fullyrða má að það gildi einnig um aðra Evrópusinna.
Svo má spyrja í lokin, hvort var það ,,prívatpersónan Styrmir Gunnarsson eða stjórnarmaður í Heimssýn, samtökum Nei-sinna á Íslandi, sem var að skrifa í helgarblað Moggadoggans?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir