Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2013
28.2.2013 | 22:41
Fínasta aðlögun!
Orðið AÐLÖGUN er notað af andstæðingum ESB-málsins og þá gjarnan þannig að það sé eitthvað hræðilegt fyrir Ísland og Íslendinga að aðlagast regluverki ESB (sem við erum í raun búin að aðlagast í nokkra áratugi).
Einn þeirra sem talar á þessum nótum er Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins einn af áhrifamestu aðilum innan Sjálfstæðisflokksins - og einn helsti andstæðingur ESB hér á landi.
Hann ritar hinsvegar pistil á vefsvæði sitt um aðlögun og þar er sú aðlögun sem hann ræðir hið besta mál.
Það er nefnilega ekki sama, AÐLÖGUN eða AÐLÖGUN!
Stefán Ólafsson, háskólaprofessor gerir þetta að umtalsefni á bloggi sínu og segir þar um þetta:
"Þetta er mjög óvenjulegt og opinskátt. Ég minnist þess ekki að menn hafi talað svona áður á Íslandi. Sjálfstæði og fagmennska í stjórnsýslunni og hjá RÚV eru einskis metin í Valhöll.
Sjálfstæðismenn ætla greinilega að setja eigin pólitíska kommissara inn á RÚV, til að stýra fréttaumfjöllun í eigin þágu.
Það á sem sagt að beinstýra þessu öllu úr Valhöll, ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst til valda.
Þöggun og pólitísk handstýring er aftur komin á dagskrá. Bláa höndin virðist ætla að vera athafnasöm ef færi gefst!"
28.2.2013 | 22:22
Tvöfalt meiri sveiflur hér en í ESB
Á Visir.is segir: "Hagvöxtur hefur verið svipaður á Íslandi og í Evrópusambandinu frá árinu 1960. Sveiflur í hagkerfinu hafa hins vegar verið tvöfalt meiri á Íslandi á þessum tíma en í ESB. Þetta kemur fram í nýju vefriti fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem kom út í dag.
Í vefritinu segir að íslenski efnahagsvandinn endurspeglist því aðallega í óhóflegum sveiflum fremur en í litlum hagvexti undanfarna áratugi. Fjöldi rannsókna styðji þetta enda séu augljósir kerfislegir veikleikar til staðar í hagkerfinu. Útflutningsframleiðslan sé fábreytt með sjávarafurðir og ál sem undirstöðu. Í rannsókn frá McKinsey & Company árið 2012 sé bent á lága framleiðni vinnuafls í þjónustugeiranum og lága arðsemi í orkugeiranum sem helstu hindranir hagvaxtar. Að auki geti skorður við auðlindanotkun í helstu útflutningsgreinum, landfræðileg staða landsins, stærð þess og menntunarstig hamlað hagvexti. Þessu til viðbótar megi nefna óleyst vandamál frá bankahruninu 2008, t.a.m. fjármagnshöftin sem virki letjandi á hagvöxt."
28.2.2013 | 08:12
23.000 milljóna hækkun á einum mánuði!
Verðtryggð lán landsmanna hækkuðu um 23.000 milljónir í febrúar vegna þeirrar óðaverðbólgu sem skall á landsmanna í febrúar. Þetta kom fram í morgunútvarpi Rásar tvö, þann 28.2. Þetta þýðir um 360.00 kr. (án skatts!) á venjulega fjölskyldu.
Alls hafa verðtryggð lán landsmanna hækkað um 67.000 milljónir á síðustu 12 mánuðum.
Menn hljóta að sjá að þetta er raunveruleg GEGGJUN!
Fjallað var um verðbólgumálin í Speglinum, hér og hér þann 27.2.
Einnig var málið rætt á Bylgjunni, Í bítið.
Orsakir verðbólgunnar eru margvíslegar, allt frá framleiðendum, verslunar, hækkana opinberra aðila og gjaldmiðilsins.
Verbólgubölið heldur áfram :(
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.2.2013 | 20:36
Annað hrun?
Friðrik Jónsson, starfsmaður hjá Alþjóðabankanum og Eyjubloggari átti skemmtilegt spjall við stjórnendur Reykjavík síðdegis á Bylgjunni um efnahagsmál í landinu þann 26.2. Í því játuðu báðir þáttastjórnendur að þeir væru alveg til í að fá laun í Evrum!
Hlustið hér.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2013 | 17:34
Íslenskt ho ho og ESB - Sigurlaug Anna um Íslenska hestinn og ESB
Hestar og afurðir af þeim hafa verið mikið í fréttum að undanförnu og þar er Ísland ekki undanskilið. Íslenski hesturinn blandast meira að segja (á öllum fimm gangtegundunum) inn í ESB-umræðuna!
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Já-Íslands skrifaði grein í MBL þann 27.2 og einnig er greinina að finna á Eyjunni. Sigurlaug byrjar svona:
"Í desemberhefti Eiðfaxa skrifar Karola Schmeil undarlega grein sem ber heitið Evrópusambandið og íslenski hesturinn. Megin inntak greinarinnar er það að íslenska hestinum stafi af því sérstök hætta ef Ísland gangi í Evrópusambandið, aðallega vegna sjúkdóma sem kunna að berast hingað til lands og vegna blöndunar við önnur hestakyn. Þetta er mjög sérkennileg niðurstaða því það er ljóst að íslendingar fara fram á varanlega sérlausn varðandi innflutning á lifandi dýrum til landsins og ekkert sem bendir til annars en að Evrópusambandið fallist á slíka sérlausn.
Hræðsluáróður
Gaman hefði verið að lesa grein um þau viðfangsefni sem hestamenn velta sérstaklega fyrir sér í sambandi við aðildarviðræður Íslands og ESB. Grein sem hefði á faglegan og fræðandi hátt haft það að markmiði að upplýsa lesendur. Þess í stað er grein Karolu hlutdræg, gildishlaðin og augljóslega ætluð til að vekja hræðslu. Það er ekki að sjá að höfundur hafi kynnt sér viðfangsefnið sem fjallað er um.
Áfram bann á innflutningi lifandi dýra, fersku kjöti og plöntum
Ef samningsafstaða Íslands, frá því í desember 2012, í 12. kafla um matvælaöryggi og dýra- og plöntuheilbrigði er skoðuð, sést að farið er fram á að viðhaldið verði banni við innflutningi lifandi dýra, að löggjöf ESB um dýraheilbrigði og um viðskipti með lifandi dýr gildi ekki að því er varðar Ísland. Sérfræðingar á þessu sviði telja líklegt að fallist verði á slíka sérlausn fyrir Ísland vegna sérstöðu landsins á þessu sviði, komi fyrir því sterk vísindaleg rök. Hins vegar er ljóst að einungis fullbúinn samningur milli Íslands og ESB getur endanlega sagt til um hvort fallist verði á afstöðu Íslands í málinu. Einnig er farið fram á áframhaldandi bann við innflutningi fersks kjöts og plantna.
Sóknarfæri fyrir íslenskan matvælaiðnað
Íslenskir búfjárstofnar eru viðkvæmir vegna legu landsins og einangrunar og tekist hefur að miklu leyti að halda sjúkdómum í skefjum. Þetta er sérstakt afrek og eftirsóknarvert að viðhalda. Sjúkdóma- og lyfjalausar íslenskar kjötvörur eru einmitt sérstaða og sóknarfæri fyrir íslenskan matvælaiðnað við inngöngu Íslands í ESB. Þess vegna þurfum við að láta á það reyna að semja þannig við ESB að þeir hagsmunir verði tryggðir."
27.2.2013 | 17:08
Hrikalegar verðhækkanir - verðtryggð lán rjúka upp!
RÚV sagði frá rosalegum verðhækkunum í febrúar, sem hafa valdið því að húsnæðislán venjulegrar meðalfjölskyldu hafi hækkað um nokkur hundruð þúsund á einum mánuði! Svo virðist sem fyrirtæki velti kostnaði út í verðlagið og að krónan keyri einnig upp verðbólguna. Þetta er s.s. ekkert nýtt. Þetta gengur hinsvegar ekki lengur og er almenningur að fá nóg!
ASÍ hefur sett í gang sérstaka síðu sem berst gegn þessu og frá henni er sagt í frétt hjá DV.
Visir.is segir einnig frá hækkunum á verðbólgunni, sem er langt umfram spár.
Samkvæmt kvöldfréttum RÚV jafngildir hækkun verðlags í febrúar um 21% ársverðbólgu!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.2.2013 | 17:02
Dollar, Yuan, Himbrimi, Yen, Evra, Pund?
Úr stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokksins:
"Íslenska krónan í höftum getur ekki verið framtíðargjaldmiðill þjóðarinnar ef Íslendingar eiga að taka þátt í alþjóðlegri samkeppni og afla þjóðinni tekna á heimsmarkaði. Landsfundur telur að Sjálfstæðisflokknum beri skylda til þess að setja afnám gjaldeyrishafta efst á forgangslista komist hann í ríkisstjórn.
Kanna þarf til þrautar alla möguleika fyrir Ísland í gjaldmiðla- og gengismálum, þar með talið upptöku alþjóðlegrar myntar."
1) Getur krónan verið framtíðargjaldmiðill Íslendinga án hafta?
2) Er hægt að þrengja þetta eitthvað með "alþjóðlegu myntina" ? Dollar, Yuan, Himbrimi, Yen, Evra, Pund?
Seðlabankinn hefur bent á tvo möguleika: a) Króna í höftum eða b) Evra.
27.2.2013 | 16:43
Allir farnir í flug eða til að ná í mjaltir?
Ragnar Arnalds, einn helsti Nei-sinni Íslands, er yfirleitt ekki mikið fyrir að segja brandara, en svo bregðast krosstré sem önnur tré!
Í sambandi við landsfund hefur hann látið hafa það eftir sér að tillagan á landsfundi VG um að halda beri aðildarviðræðum við ESB áfram hafi verið samþykkt vegna þess að allir nei-ararnir úr dreifbýlinu hafi verið farnir af fundi, þurft að ná flugvél, rútu, eða jafnvel bara að ná fyrir kvöldmjaltir (lengri útgáfa af fréttinni er í pappírs-Mogga).
Það hafi því verið "lýðurinn á mölinni" sem hafi samþykkt þessa tillögu!
Upplýsingafulltrúi VG hafnar hinsvegar þessum skýringum Ragnars. Eyjan fjallar einnig um þetta.
En við gefum Ragnari prik fyrir húmorinn!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2013 | 16:18
FRBL: Umbreytt pólitískt landslag
Í leiðara FRBL, sem Þórður Snær Júlíusson skrifar þann 27.2, segir meðal annars þetta:
"Á einni helgi hefur hið pólitíska landslag á Íslandi umbreyst. VG opnaði skyndilega á raunverulegan möguleika á ríkisstjórnaraðild með því að samþykkja að klára aðildarviðræður ESB, þrátt fyrir að vera andsnúin aðild. Á sama tíma festi Sjálfstæðisflokkur sig í sessi sem eitt róttækasta stjórnmálaafl landsins.
Í grundvallarstefnu Sjálfstæðisflokksins segir að inntak stefnu hans sé að tryggja frelsi og framþróun í þjóðfélaginu". Frá þeirri stefnu var horfið að hluta um helgina. Í fyrsta lagi var samþykkt ályktun á landsfundi um að hætta aðildarviðræðum við ESB og svipta þar með þjóðina frelsi til að kjósa um málið. Samhliða á að loka Evrópustofu, svo almenningur hafi ekki slíkan aðgang að upplýsingum. Í öðru lagi hefur flokkurinn fallið frá þeirri stefnu að hann leggi áherslu á að auðvelda erlendum aðilum að fjárfesta í íslensku atvinnulífi". Fyrir tveimur árum lét Bjarni Benediktsson hafa eftir sér að það væri ekki sjálfsagt að útlendingar gætu keypt stórar jarðir á Íslandi. Hann steig annað stórt skref í átt að því að skapa geðþóttastýrt, en ekki almennt, fjárfestingaumhverfi á Íslandi í síðustu viku þegar hann sagði að afskrifa ætti að verulegu leyti kröfur erlendra vogunarsjóða í þrotabú föllnu bankanna. Þessari skoðun var gerð skil í Financial Times, einni af biblíum viðskiptalífsins.
Í þriðja lagi virðist morgunljóst að hinir ungu forystumenn flokksins hafi beygt sig undir heimsyfirráð eða dauði"-stefnu gömlu harðlínujaxlanna í flokknum. Þessi afstaða kristallaðist ágætlega í ræðu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, sem var vel skreytt af Davíðslegum aulahúmor á kostnað pólitískra andstæðinga. Hún hefur árum saman viljað markaðssetja sig sem sáttastjórnmálamann en steig þarna af þeirri braut."
26.2.2013 | 16:58
Næsta skef: Loka öllum sendiráðum ESB-ríkja á Íslandi?
Á vefsíðu Egils Helgasonar má lesa þetta:
"Það er til marks um að harðlínan hafi sigrað í Evrópumálunum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að fundurinn hafi samþykkt að loka svokallaðri Evrópustofu.
Í ályktun fundarins segir:
Landsfundurinn mótmælir íhlutun sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi í stjórnmálaumræðu þjóðarinnar og telur óhæfu að stækkunardeild ESB haldi úti starfsemi hér þar sem lagst er á sveif með einu stjórnmálaafli gegn öðrum. Evrópusambandinu verði gert að loka kynningarskrifstofu þess hér.
Veit Sjálfstæðisflokkurinn að það er fullt af ESB-ríkjum með sendiráð hér á landi? Það hlýtur að vera einhver skuggaleg starfsemi þar í gangi, sem grefur undan fullveldinu og reynir að heilaþvo alla Íslendinga!
Er þá ekki næsta skref að krefjast lokunar þeirra?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir