9.11.2012 | 18:29
Anna Margrét Guðjónsdóttir: Tölum saman um mikilvæg mál
Anna Margrét Guðjónsdóttir, ráðgjafi, ritaði grein um Evrópumálin í Fréttatímann, þann 9.11 og hefur hún gefið Evrópublogginu góðfúslegt leyfi til að birta greinina í heild sinni.
Tölum saman um mikilvæg mál
Engum hefur dulist að umræðan í samfélaginu um hugsanlega aðild að Evrópusambandinu hefur á stundum einkennst að öðru en hógværð og háttvísi. Má jafnvel ráða af orðræðunni að um sé að ræða smávægilegt málefni, sem hægt sé að afgreiða með upphrópunum og vafasömum fullyrðingum. En svo er ekki. Aðild að ESB snýst um hagsmuni þjóðarinnar, velferð hennar og stöðu Íslands á alþjóðavettvangi. Það er ekki hægt að taka upplýsta afstöðu til slíkra stórmála á grundvelli rangra upplýsinga.
Aðildarumsóknin snýst um hvað bætist við EES samninginn ef til aðildar kemur, ekki um EES samninginn sjálfan og innihald hans.
Hvað á að koma í staðinn?
Stjórnmálasaga 20. aldar á Íslandi einkennist af átökum um stöðu Íslands á alþjóðavettvangi og samstarf við aðrar þjóðir. Síðustu stórátökin snérust um aðild að EES samningnum og þá voru stóru orðin ekki spöruð. Þegar við horfum til baka sjáum við að flestar hraksprárnar reyndust ekki á rökum reistar og enginn hefur stigið fram fyrir skjöldu og krafist þess að Íslendingar segðu sig frá samningnum. Engu að síður hefur málflutningur andstæðinga aðildar að ESB snúist að miklu leyti um atriði, sem þegar eru hluti af EES samningnum. Er það sanngjarn málflutningur? Er gagnrýni á efni, sem þegar er í EES samningnum til þess fallið að varpa ljósi á þær breytingar sem kunna að verða við fulla aðild? Það er augljóst að svo er ekki og að mínu mati er þetta dæmi um ómálefnalegan málflutning sem lýsir óvirðingu gangvart þjóðinni. Hún verður að geta tekið upplýsta ákvörðun, sem byggist á staðreyndum um efni málsins en ekki óskylda hluti. Þeir sem nota efni EES samningsins sem rök gegn fullri aðild að ESB eiga að sýna þann kjark og heiðarleika að segja það hreint út að þeir vilji að EES samningnum verði rift. Og fyrir kurteisis sakir að greina jafnframt frá því hvernig við eigum t.d. að haga útflutningi okkar gegnum þá tollmúra, sem risu í kjölfarið.
Það er augljós vilji þjóðarinnar og sjálfsögð krafa að stjórnmálamenn tali saman af virðingu við menn og málefni. Má gera einnig þá kröfu til þeirra, sem halda úti vefsíðum og skrifa í fjölmiðla um þjóðfélagsmálefni? Væri það ekki okkur öllum til heilla ef umræðan í samfélaginu um sameiginlega hagsmuni okkar væri hófstillt og málefnaleg? Svarið er augljóst.
Sýnið ykkar rétta andlit!
Flest það sem samið verður um við ríkin í Evrópusambandinu er hægt að meta til kosta eða ókosta með hlutlægum hætti. Því er hægt að rökræða aðild að ESB á málefnalegum hátt ef menn svo kjósa. Og nota staðreyndir máli sínu til stuðnings. Því miður er ranghugmyndum haldið að fólki í mörgum deilumálum og umræðan um aðild Íslands að ESB hefur ekki farið varhluta af því. Hver kannast ekki við talið um ferköntuðu tómatana, herskyldu ungra bænda og vitleysu af því tagi. Að mínu mati er það óvirðing gagnvart fólkinu í landinu, sem á kröfu til að fá sannar og réttar upplýsingar, og málefnalega umræðu, að slíku sé haldið á loft. Ég skora á andstæðinga ESB aðildar að mæta okkur, sem tölum fyrir aðild, á málefnalegum grunni og tala um það sem breytist við aðild að ESB en ekki um óskyld málefni. Þá skora ég á andstæðinga EES samningsins að sýna sitt rétta andlit en ekki fela sig á bak við aðildarumræðurnar. Þjóðin á skilið heiðarlega og málefnalega umræðu.
Anna Margrét Guðjónsdóttir
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
8.11.2012 | 18:12
Guðmundur Steingrímsson lætur móðann mása á Eyjunni

"Ég ætla að demba mér beint í bununa hér og nú. Ástæðan fyrir því að íbúar þessa lands þurfa að greiða svo háa vexti af húsnæðislánum sínum og verðtryggingu í ofanálag er einfaldlega sú að fjármálakerfið treystir ekki krónunni. Skyldi engan undra: Hún hefur fallið í verði mörg þúsund falt frá upphafi, stundum hrunið. Stundum kippst til í stundarbrjálæði.
Út af þessu háu vöxtunum og verðtryggingunni þurfa Íslendingar að vinna miklu lengur fyrir eigin húsnæði heldur en aðrar þjóðir sem við berum okkur saman við. Þetta er rótin að stritinu endalausa. Mig hefur lengi langað að sannreyna kenningu og lagði reyndar drög að því að skrifa um hana meistaraprófsritgerð í hagfræði. Kannski verður það einhvern tímann.
Kenningin er þessi: Stór hluti þjóðarinnar mun aldrei og hefur aldrei náð endum saman og mun ekki gera það nema eitthvað sé gert. Lánin eru of dýr. Og það sem meira er: Það má ekki hækka launin, því þá hækkar verðlagið, og þá hækka lánin. Við erum föst í gildru."
Síðan ræðir Gumundur gjaldmiðilsmálin:
"Ég sé ekki betur en að ríflega 20 milljarðar muni renna beint úr ríkiskassanum á næsta ári bara vegna krónunnar.[2] Þetta fé verður tekið af striti og púli almennings, beint af skattfé, ofan á allt annað sem krónan kostar fólk í vöxtum og verðtryggingu.[3] Þennan krónukostnað má lesa út úr fjárlögum á ári hverju, en einhvern veginn segir aldrei neinn neitt.
Hundruð milljarða liggja í gjaldeyrisvarasjóði Seðlabankans og hann er fjármagnaður með lánum. Við þurfum gjaldeyrisvarasjóð til þess að verja krónuna, til þess að halda úti sjálfstæðum gjaldmiðli. Kostnaðurinn er þá þessi. Ríflega 20 milljarðar á næsta ári úr ríkissjóði. Fyrir þann pening mætti gera ótrúlega margt annað.
Auk þess er krónan bundin í höftum. Höft eru annað orð yfir skerðingu á frelsi. Íslendingar búa ekki við frjálsa fjármagnsflutninga vegna þess að krónunni er ekki treystandi. Hún myndi sökkva ef hún væri sett á flot, með tilheyrandi hörmungum. Óþolið út af þessu mun bara aukast hér á landi, spái ég.
Hver er þá lausnin? Ég sagðist ætla að demba mér í bununa. Ég kýli á það: Ef Ísland gengi í Evrópusambandið, með góðum samningi sem ég held að við ættum vel að geta landað, gæti þjóðin innan mjög skamms tíma hafið gjaldmiðilssamstarf við Evrópska seðlabankann í gegnum hið svokallaða ERM II. Það er fordyri evrunnar.
Þetta myndi þýða að Íslendingar yrðu aðilar að Evrópska seðlabankanum. Evrópski seðlabankinn myndi verja gengi íslensku krónunnar innan vissra vikmarka. Smám saman yrði óþarfi að halda úti digrum íslenskum gjaldeyrisvarasjóði. Tugmilljarða vaxtagreiðslur myndu þar með heyra sögunni til. Það yrði hægt að nota þá peninga í annað.
Frelsi yrði komið á í viðskiptum, engin gjaldeyrishöft lengur. Stöðugleikinn sem þarna fengist myndi lækka vexti og gera verðtrygginguna óþarfa. Í fyrsta skipti á Íslandi yrði hægt að að beina auðæfum þjóðfélagsins, með hærri launum og betri kjörum, til almennings án þess að lánin hækkuðu og snaran hertist um hálsinn. Við yrðum laus úr gildrunni.
Auk þess gætu fyrirtæki vaxið og dafnað. Stöðugt umhverfi er þeim flestum ómetanlegt. Erlendir fjárfestar aðrir en einstaka sérvitringar myndu fá aukinn áhuga. Fjölbreytnin í atvinnulífinu myndi því aukast. Það yrðu góð tíðindi fyrir íbúa landsins, ekki síst ungt fólk sem er búið að mennta sig í alls kyns greinum en bíður fjölbreyttari tækifæra.
Sanngirnin og réttlætið í samfélaginu myndi aukast. Fólk myndi fremur uppskera í kjölfar erfiðis síns og skapandi hugsunar, í stað þess að horfa á fé sitt hverfa til fárra í gegnum áðurnefnda leynistíga með ófyrirsjáanlegum og tilviljanakenndu móti, aftur og aftur.
En þetta er ekki hættulaust. Þegar vextir lækka getur hið langþreytta en þó hamingjusama skv. könnunum stritsamfélag mögulega dottið í lánafyllerí. Það var í raun það sem gerðist í aðdraganda hrunsins eða skakkafallanna eins og sumir kalla það. Ódýr erlend lán urðu þjóðinni ofviða. Sama gerðist í grundvallaratriðum í Grikklandi. Þessari hættu yrðum við að sjálfsögðu að mæta. Ekkert er alveg þrautalaust. Auk þess er yfir höfuð alltaf vandasamt að bæta kjör, án þess að þensla myndist. Það verkefni yrði þó einfaldara.
Það er til mikils að vinna. Hið nýja samfélag sem nú risi með stöðugum gjaldmiðli yrði sterkara, fjölbreyttara og réttlátara. Fyrir almenning allan yrði um fullkomin tímamót að ræða. Í fyrsta skipti á Íslandi yrði hægt að gera plön sem héldu að einhverju ráði, hægt að kaupa bíl og íbúð án þess að vera dæmdur til að vera spákaupmaður, sveittur á efri vör út af striti og óvissu.
Almennt myndi ríkja minna vesen."
Og Guðmundur heldur áfram: "Mér finnst ég heyra í skítadreifurunum.
Til að mótmæla tækifærunum sem okkur standa til boða.
Beinn kostnaður við þetta fyrirkomulag, þennan kerfisgalla í íslensku hagkerfi sem ég hef nú lítillega fjallað um, er æpandi. Ósanngirnin er ömurleg. Andstaðan við hugmyndir eins og þær sem ég hef nú reifað er hins vegar megn. Það getur vel verið að til séu betri hugmyndir. Ég er ein eyru. Ég vil þó segja það strax: Að taka upp gjaldmiðil annars lands, eins og Kanada þar sem við værum t.d. ekki aðilar að seðlabanka þess lands finnst mér mjög óráðlegt.
Eitt á ég í öllu falli erfitt með að sætta mig við, og það er að krónan sé ekki rædd, en sé látin standa eins og bleikur fíll með partíhatt í herberginu á meðan allir aðrir mögulegir hlutir eru til umfjöllunar. Alls konar kanínur úr hatti verð ég að segja til þess fallnar að búa til einhvers konar piss-í-skó-mekanisma fyrir íslenskt samfélag birtast líka með reglulegu millibili og verða oft kosningamál. Flatar niðurfellingar lána, afnám verðtryggingar, bygging álvera strax.
Allt svona, að mínu viti, er til þess fallið að beina sjónum frá aðalatriðinu: Sjálfur grunnurinn er skakkur. Einhverja framtíðarsýn sem felur í sér viðgerð á þessum grunni, almennilega og varanlega, verða stjórnmálamenn að bera á borð fyrir kjósendur í næstu kosningum. Ég tel þetta sigurstranglegast, svo enginn velkist í vafa: Að fara inn í ERM II. Evran kæmi svo í kjölfarið.
Fólk getur verið ósammála þessu. Þá auglýsi ég eftir betri hugmyndum. Vísa ég þá jafnframt á bug ásökunum um landráð, svik við sjálfstæðið, uppgjöf í baráttunni gegn samsæri annarra þjóða og hvað þetta heitir nú allt saman, frussið sem bunar úr dreifurunum um leið og maður minnist á ESB."
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
8.11.2012 | 17:45
Könnun ASÍ opinberar gríðarlegar verðhækkanir
ASÍ kannar reglulega verð á neysluvörum og í nýjustu könnun koma fram gríðarlega verðhækkanir milli ára:
"Sú matvara sem verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á þann 27. október sl. hefur hækkað töluvert í verði frá sambærilegri könnun sem gerð var í október 2011 hjá Bónus, Krónunni, Nettó, Fjarðarkaupum, Hagkaupum og Nóatúni. Áberandi eru miklar verðhækkanir í öllum vöruflokkum hjá öllum verslunum. Vinsæl matvara eins og Fjörmjólk hefur hækkað um 710%, Krakka Lýsi hefur hækkað um 8-15% og Myllu Eyrarbrauð um 3-8%.
8.11.2012 | 17:17
Mörður Árnason í FRBL: Evrópuaðild fyrir fólkið í landinu
Mörður Árnason, alþingismaður, skrifaði grein um Evrópumálin í Fréttablaðið þann 7.11, um Evrópumálin og hefst greinin svona:
"Öllu talinu um aðildarsamningana og framtíðarstefnuna í sambandi við Evrópusambandið hættir til að verða nokkuð fjarlægt og háfleygt, fyrir nú utan að þátttakendur leyfa sér óvenjumikið rugl og nöldur, jafnvel á íslenskan nútímakvarða. Jájá, það þarf að finna leið út úr gjaldeyrishöftunum, og enginn hefur bent á neina aðra í raun og veru en upptöku evru. Jájá, það eru vandamál kringum fullveldisdeilingu, bæði í EES og ESB, og Íslendingar mega ekki rasa um ráð fram. Sjávarútvegsmálin, landbúnaðurinn, byggðirnar, fjármálamarkaðirnir o.s.frv. o.s.frv. En hvað kemur þetta venjulegu fólki við í daglegu brauðstriti og amstri sem eftir Hrun er alvarlegt mál fyrir hver einustu mánaðamót á fjölmörgum heimilum?
Margt er auðvitað óljóst enn þá um stöðuna eftir inngöngu okkar í Evrópusambandið ef af verður. Þess vegna erum við að semja. Ýmislegt af kostum og göllum við aðild kemur ekki í ljós fyrr en á líður. Það er reynsla annarra þjóða sem inn eru gengnar, svo sem Svía og Finna, Eystrasaltsþjóðanna, nýfrjálsu ríkjanna í Mið- og Austur-Evrópu."
Mynd: FRBL
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2012 | 08:09
Guðmundur Andri Thorsson í FRBL: Hlutir sem skipta máli

Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, skrifaði frábæra grein í Fréttablaðið þann 5.nóvember, um ESB-málið og andstæðinga þess. Greinin hefst á þessum orðum:
"Ég heyrði byrjunina á uppgjöri vikunnar í útvarpsþætti nú fyrir helgi. Einn var spurður að því hvað honum hefði nú fundist eftirtektarverðast í nýliðinni viku og svaraði eitthvað á þessa leið: Það var verið að taka upp tvo nýja kafla í aðildarviðræðum Íslendinga og Evrópusambandsins " Smá þögn og maður sá fyrir sér furðu lostin andlit viðmælenda þar til hann losaði um spennuna á hárréttu augnabliki: Djók!" Fór svo að tala um hluti sem skipta máli: landsleikinn og veðrið.
Allir hlógu líka ég. Það var svo fyndið hvernig hann sagði það. Og ekkert gat verið jafn innilega óáhugavert og fréttir af þessum viðræðum við bandalag sem færustu lesendur þjóðarsálarinnar segja að við munum aldrei nokkurn tímann ganga í.
Manni skilst að nú fari aðalsamningamaður Íslendinga um landið og kynni fólki stöðuna í þessum viðræðum. Ætli það séu ekki hálfgerð svipugöng? Um leið og hann byrjar að tala fara allir að halda fyrir eyrun og æpa. Það má enginn heyra það sem hann kann að hafa að segja. Það má ekki byggja Evrópu-umræðuna á staðreyndum. Það má alls ekki komast að því hvað aðild að ESB gæti þýtt fyrir lífskjör á Íslandi.
Hætta skal leik
Andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu vilja ekki ljúka viðræðum heldur hætta þeim. Þeir vilja koma í veg fyrir að niðurstaða fáist úr viðræðunum og kosið verði um aðild í kjölfar þess. Ein skýring er langsamlega nærtækust á þessari afstöðu: Andstæðingar aðildar óttast að aðild verði frekar samþykkt í kosningum um niðurstöður aðildarviðræðna en kosningum þar sem enginn veit neitt um neitt þeir vilja ekki að neinn viti neitt um neitt. Þeir vilja að við rífumst á grundvelli þess sem við höldum, okkur minnir, okkur finnst, við óttumst, einhver sagði að einhver hefði sagt. Þeir vilja að við rífumst um grundvöllinn. Þeir vilja að við rífumst. Þeir deila og drottna. Við deilum og brotnum.
Þeir telja líklegra að málstaður sinn sigri viti þjóðin ekki hvaða kostir bjóðast með aðild að Evrópusambandinu. Þeir telja að eftir því sem fólk viti meira um það hvað aðild að ESB táknar, þeim mun líklegra sé það til að kjósa þá aðild. "
4.11.2012 | 17:23
Andrés Pétursson í FRBL: Meirihluti fyrirtækja gerir upp í evrum

Ein mest lesna greinin á www.visir.is þess fyrstu helgi í nóvember er eftir Andrés Pétursson, formann Evrópusamtakanna, en hún byrjar svona:
"Í nýlegri frétt í Tíund, fréttablaði Ríkisskattstjóra, kemur fram að árið 2011 hafi í fyrsta skipti meirihluti íslenskra fyrirtækja sem gera upp í erlendri mynt ákveðið að gera upp ársreikning sinn í evrum. Hingað til hefur Bandaríkjadollarinn verið vinsælasta uppgjörsmyntin. Þetta er áhugaverð staðreynd því dómsdagsspámenn í bloggheimum og einstaka fjölmiðill hafa í langan tíma reynt að sannfæra íslenskan almenning að evran sé ótækur gjaldmiðill og að Evrópa standi í ljósum logum. Það er greinilegt að þessi íslensku stórfyrirtæki eru ekki á sama máli.
Þegar Alþingi ákvað árið 2009 að sækja um aðild að Evrópusambandinu var eitt af markmiðunum að kanna möguleika á því að taka upp evru og koma þannig á stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Síðan þá hefur ýmislegt gerst í evrópsku efnahagslífi og aðildarviðræðurnar dregist á langinn. En það hefur ekkert breyst varðandi þá staðreynd að íslenskt efnahagslíf er í fjötrum gjaldeyrishafta og fátt bendir til annars en að við þurfum á utanaðkomandi aðstoð að halda til að koma okkur út úr þeirri úlfakreppu.
Hvort það er aðild að Evrópusambandinu sem getur aðstoðað okkur á eftir að koma í ljós því ekki er búið að ljúka viðræðunum. En eina leiðin til að komast að því er að ganga þá götu til enda sem Alþingi ákvað fyrir rúmum þremur árum. Síðan er það íslensku þjóðarinnar að ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort hún er sátt við það sem úr þeim viðræðum kemur."
Ps. Minnum á aðalfund Evrópusamtakanna, 15.11, næstkomandi. Sjá eldri frétt hér á blogginu.
2.11.2012 | 15:27
Skýr skilaboð: Skyr vinsælt í Finnlandi, en stoppar vegna þess að Ísland er ekki í ESB

Þar sem ekki er hægt að flytja meira skyr út hefur MS hafið samstarf við nokkur fyrirtæki á Norðurlöndum sem greiða MS leyfisgjald fyrir að framleiða íslenskst skyr. Í ár munu Norðurlandabúar hesthúsa um 3300 tonnum af skyri."
ESB-aðild býður upp á tækifæri fyrir (umhverfisvænan) íslenskan landbúnað.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
31.10.2012 | 17:03
Heimssýn gubbar á nýja stjórnarskrá á Twitter: Súperhúmoristar á ferð!
Stundum er Nei-sinnar alveg sjúklega fyndnir og svo uppátækjasamir, að það hálfa væri nóg!
Hér er gott dæmi um Twitter-færslu einhvers húmoristans hjá þeim.

Og svo er þetta svo uppbyggileg og málefnaleg umræða :)
"Plís" - reynið að gera betur. Er það virkilega svona sem Nei-sinnar vilja hafa umræðuna?
31.10.2012 | 16:54
Orkumál, ESB og fleira á föstudagsfundi í í H.Í
Í annarri frétt á vef Já Íslands segir einnig þetta:
"Annar fundur í fundaröð Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands Evrópusamræður veturinn 2012-13.
Að hvaða leyti má telja orkuöryggi pólitískt málefni frekar en efnahagslegt í Evrópusambandinu? Hvaða áhrif kann stefna ESB í orkumálum að hafa á Íslandi? Er líklegt að landfræðileg lega landsins auki vægi Íslands í augum ESB með tilliti til málefna Norðurslóða og þeirra auðlinda sem þar finnast? Hvaða áskoranir þurfa Eystrasaltsríkin, sem öll teljast til smáríkja, að takast á við með tilliti til orkuöryggis og hvernig farnast þeim í samskiptum sínum við valdamikla nágranna?
Dr. Amelia Hadfield frá Vrije háskóla í Brussel fjallar um efnahagsleg og pólitískt sjónarmið ESB varðandi orkuöryggi og skoðar sérstaklega það hlutverk sem Ísland kann að leika með tilliti til landfræðilegrar stöðu á norðurslóðum og mögulegrar aðildar að ESB.Orkuöryggi í Eystrasaltsríkjunum
Romas Svedas, sérfræðingur í orkuöryggismálum og fyrrverandi aðstoðarráðherra í orkumálum í Litháen, heldur erindi um þær áskoranir sem Eystrasaltsríkin standa frammi fyrir á sviði orkuöryggis og þá möguleika sem felast í svæðisbundnu samstarfi á sviði orkuöflunar.
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og varaforseti Alþjóða vatnsorkusamtakanna, ræðir orkuöryggi frá íslensku sjónarhorni og tekur þátt í pallborðsumræðum í lokin.
Málstofan hefst kl. 12 í stofu 201 í Odda. Fundurinn fer fram á ensku og allir eru velkomnir. Nánari upplýsingar á vefsíðu stofnunarinnar: www.ams.hi.is
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands heldur tíu málstofur um Evrópusamrunann og Ísland í vetur. Stofnunin hlaut styrki frá Evrópustofu og úr Jean Monnet sjóði ESB til að stuðla að upplýstri umræðu um Evrópumál á Íslandi"
31.10.2012 | 16:32
Guðmundur Gunnarsson: Tryggjum efnahagslegt fullveldi Íslands
Á vefnum hjá Já-Íslandi stendur:"Í grein dagsins fjallar Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, um EES-samninginn og kosti hans, sem og möguleikana sem aðild að ESB veitir okkur, en EES gerir ekki. Þá veltir Guðmundur upp spurningunni um fullveldisframsal og stjórnarskrána, sem og hugmyndir Stjórnlagaráðs um fullveldisframsal.
Ísland hefur verið aðili að EES frá árinu 1970. Kostir þess samstarfs fyrir Ísland hafa verið óumdeildir. Vegna EES samningsins bera u.þ.b. 90% af útfluttum sjávarafurðum frá Íslandi til ESB svæðisins enga tolla samkvæmt þeim skilyrðum sem samið var um í EES-samningnum. Evrópska efnahagssvæðið er stærsta markaðssvæðið sem Íslendingar hafa aðgang að, rúmlega 80% af öllum útflutningi frá Íslandi fer til ESB. Útflutningsverðmæti sjávarafurða á Íslandi er um 40% af heildarverðmæti vöruútflutnings landsins.
Það sem skiptir öllu máli fyrir bæði íslenskan sjávarútveg og landbúnað í tengslum við aðildarviðræður að ESB, er sú staðreynd að í aðild felst eina fyrirsjáanlega tækifæri íslendinga til þess að opna á stóran erlendan markað með fullunnar vörur. Allt slíkt er í dag takmörkunum háð sem myndu falla niður við aðild, en með því að hafna viðræðum að ESB má leiða að því allnokkrum líkum að EES samningurinn verði þá endurskoðaður og þar með muni efnahagslegt fullveldi Íslands glatast og ósigrandi skuldaveggur sem mun leiða til þess að lífskjör munu falla umtalsvert á Íslandi."
Það er alltaf áhugavert þegar Jón Sigurðsson, fyrrum formaður Framsóknarflokksins, lætur frá sér heyra. Í nýjum pistli á Pressunni skrifar hann:
"Afstaða til aðildar Íslands að Evrópusambandinu er ekki sjálfstætt stefnumið, heldur fylgir öðrum almennum sjónarmiðum. Þessi mál eru mikilvæg enda þótt Íslendingar gerist ekki aðildarland.
Þjóðin á valkosti. Annar kosturinn er sérlausnir, sjálfsnægtir að einhverju marki, áhersla á eigið óhæði, forgangur innlendra aðila og eigin öryggismörk t.d. í fæðuframleiðslu, svo og varnaraðgerðir fyrir innlenda framleiðslu á sem flestum sviðum. Kjörorð þessa valkostar eru sérlausnir, sérstaða og óhæði.
Hinn kosturinn er opið hagkerfi og viðskiptalíf, alhliða samskipti við aðrar þjóðir, vaxandi vægi utanríkisviðskipta, þátttaka í fjölþjóðlegu samstarfi með sérhæfingu á tilteknum sviðum, gagnkvæmar skuldbindingar, samstaða og samþætting með öðrum. Kjörorð þessa valkostar eru opnun, sameiginleg þróun og samþætting.
Íslendingar höfðu áður valið síðarnefnda valkostinn með þátttöku í margs konar fjölþjóðasamstarfi og -stofnunum, síðast í EFTA og EES. Aðildin að EES er aukaaðild að Evrópusambandinu, en þar erum við nú annars flokks fylgiríki án áhrifa.
Umræður um aðild Íslendinga að Evrópusambandinu snúast um þetta: Viljum við halda lengra áfram á braut opnunar eða halda óbreyttu - eða velja hinn kostinn? Nú bendir margt til þess að meirihluti á stjórnmálavettvangi Íslendinga hafi skipt um skoðun og vilji til frambúðar hverfa frá valkosti opnunar."
Síðar segir Jón:
"Álitamál um gjaldmiðilinn kristalla þessa valkosti. Hér er um tvennt að velja.
Annars vegar er sameiginlegur gjaldmiðill með stærstu útflutningsmörkuðum þjóðarinnar, Evrulöndunum, með sameiginlegum varasjóði og stofnunum. Hins vegar er krónan. Henni fylgja einhverjar takmarkanir eða höft og kostnaðarsamur varasjóður. Henni fylgja hærri vextir, hún er viðkvæm fyrir sveiflum og þetta markar lífskjaraþróunina. Ár eftir ár koma margar dreifðar ákvarðanir saman eftir nokkra mánuði í gengisfellingum. Allt þetta leiðir til krafna um ríkisábyrgðir, en þeim fylgir pólitísk íhlutun um viðskipti og atvinnulíf.
En málið er flókið og margar blikur á lofti. Önnur álitamál skulu nefnd.
Því er haldið fram að vandi Grikkja, Íra og Portúgala stafi af evrunni. En gengisfall drökmunnar hefði litlu bjargað í Grikklandi því vandinn felst ekki í misvægi í innlendum kostnaði sem erlend tekjuöflun jafnar. Sambærilegt á við um hinar þjóðirnar. Gengisfelling þjóðargjaldmiðils hefði frestað ytri sjúkdómseinkennum, leitt til samfélagsátaka og óeirða - en vandinn legið eftir. Annað dæmi: Ef Íslendingar hefðu haft evru 2008, hefði gjaldmiðillinn ekki hrunið og þá ekki lán almennings heldur."
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
30.10.2012 | 17:48
Elvar Örn um háhælaða Evrópuvakt

Í gegnum tíðina hafa hinar ýmsu goðsagnir um Evrópusambandið lifað góðu lífi hjá almenningi og í fjölmiðlum. Þær eru oftast nær sambland af flökkusögum, ýkjum og hálfsannleik. Sumar hafa verið endurteknar það oft að þær eru nánast orðnar að viðteknum sannindum. Þekktustu dæmin eru sögurnar um að sambandið hafi viljað banna sölu á kengbognum bönunum og agúrkum. Þessar sögusagnir eru öflugt vopn í höndum andstæðinga Evrópusambandsins, því fæstir hafa fyrir því að afla sér upplýsinga um sannleiksgildi þeirra. Í langflestum tilvikum er bara eitt lítið sannleikskorn í sögunum sem síðan er skrumskælt og ýkt."
30.10.2012 | 17:33
Sérstök Evru-fjárlög?
Samkvæmt frétt EurActiv voru hugmyndirnar fyrst settar fram í minnisblaði frá skrifstofu Hermans van Rompuy, forseta leiðtogaráðs ESB, frá því í byrjun síðasta mánaðar. Var minnisblaðið skrifað í tengslum við vinnu innan ESB um hvernig styrkja megi evrusamstarfið með það fyrir augum að koma í veg fyrir að skuldakreppan á svæðinu geti endurtekið sig. Hugmyndirnar eru sagðar njóta stuðnings Þýskalands og Frakklands auk fleiri ríkja.
Samkvæmt hugmyndunum yrðu fjárlögin hugsuð til þess að gera ESB mögulegt að bregðast við fjármála- og efnahagslegum áföllum í einstökum evruríkjum. Þá yrðu þau notuð til mótvægisaðgerða í ríkjum í kreppu. Hugmyndirnar hafa þó enn ekki verið útfærðar af neinni nákvæmni. Þá er málið pólitískt viðkvæmt þar sem í því felst að evruríkin myndu deila ríkisfjármálavaldi sínu upp að vissu marki auk þess sem það kallar á flutning fjármuna milli evruríkja.
Seðlabanki Íslands kynnti í síðasta mánuði ýtarlega skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðilsmálum. Að mati bankans koma tveir valkostir helst til greina í þeim efnum; áframhaldandi notkun krónunnar með vissum umbótum á umgjörð hennar og upptaka evru í kjölfar aðildar að ESB."
30.10.2012 | 17:18
Staða ESB-málsins rædd í morgunútvarpi Rásar tvö
Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands gagnvart ESB ræddi málið í morgunútvarpi Rásar tvö, þriðjudaginn 30.10. Þar sagði hann meðal annars að þrátt fyrir pólitískar deilur um málið, þá gangi samningsvinnan sem slík vel. Verið sé t.d. að vinna að samningsafstöðu í landbúnaðarmálum, en að hún sé klár í gjaldmiðilsmálum, sem Stefán segir vera mjög mikilvægan.
Hann sagði það vera mikið metnaðarmál hjá samningahópnum að vinna vel í málinu og lagði á það mikla áherslu að þetta væri opið og lýðræðislegt ferli.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2012 | 13:12
Stefán Haukur um stöðu viðræðnanna við ESB
Á ríkjaráðstefnunni í Brussel í síðustu viku voru opnaðir þrír samningskaflar til viðbótar í aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og hefur nú alls 21 kafli verið opnaður af þeim 33 sem semja þarf um. Samningum er lokið um 10 kafla og hefur þeim verið lokað aftur til bráðabirgða. Enn á eftir að opna 12 kafla í viðræðunum en næsta ríkjaráðstefna er fyrirhuguð í lok desember á þessu ári. Meðal kafla sem hafa ekki verið opnaðir eru kaflarnir um sjávarútveg og landbúnað, sem ýmsir telja að geti orðið erfiðir.

Fundurinn með Stefáni Hauki í Reykjavík fer fram í húsnæði Evrópustofu að Suðurgötu 10 en fundurinn á Akureyri verður á veitingastaðnum RUB23 í Kaupvangsstræti 6. Báðir fundirnir eru opnir almenningi, veitingar verða í boði og allir velkomnir."
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir