28.5.2010 | 22:13
Að vara við her sem ekki er til! Raunverulegt grín!
Samtök ungra bænda hafa eytt hundruðum þúsunda króna í auglýsingar gegn her sem ekki er til! Það gerðu þau í FRBL og MBL í morgun. Þar birtust næstum heilsíðuauglýsingar frá þessum ungu bændasamtökum þar sem varað er við Evrópuhernum!
Af hverju þessi auglýsing kemur núna er ráðgáta. Það er hinsvegar nokkurn veginn á hreinu að hún er greidd af almannafé, þar sem rekstrarfé Samtaka ungra bænda kemur að öllum líkindum frá ríkinu. Varla eru ungir bændur að borga þetta úr eigin vösum, eða?
Bændur nota því sennilega almannafé til þess að birta mynd af amerískum Hummer í Írak (eða Ísrael, sjá pálmatrén i auglýsingunni), til þess að vara við Evrópskum her, sem er ekki til og ekki er nein von til að verði stofnaður á komandi árum. Meðal annars vegna andstöðu margra aðildarríkja!
Í frétt RÚV kemur fram í viðtali við Helga H. Hauksson, formann ungbænda: ,,Í samtali við fréttastofu segir Helgi þetta vera einn af þeim fylgifiskum Evrópusambandsins sem að Íslendingar munu koma til með að þurfa að taka fyrir í aðildarferlinu.
Herinn hafi þó enn ekki verið stofnaður og ekkert komið fram um herskyldu aðildarríkja."
,,...fylgifiskum Evrópusambandsins sem að Íslendingum munu koma til með að þurfa að taka fyrir í aðildarferlinu."
Halló!Hvað á Helgi eiginlega við? Að íslendingar þurfi að ræða við ESB um her sem er ekki til? Þetta er raunverulegt grín!
Evrópusamtökin velta einnig fyrir sér orðalagi fréttamanns RÚV, sem í texta sínum talar um "væntanlegan Evrópusambandsher". Fyrirgefið, en það er enginn ESB-her væntanlegur!
Jörð kallar Helga H. Hauksson!! Snúa sér að landbúnaði, takk!
Að lokum er hér svo bútur úr fréttabréfi Evrópusamtakanna frá því í dag:
...,,..eins og flestir hafa tekið eftir birtu samtök Ungra Bænda stóra auglýsingu í bæði Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í morgun um svokallaðan Evrópuher... Það er alveg ljóst að engar hugmyndir eru uppi innan Evrópusambandsins um stofnun sameiginlegs hers í líkingu við her einstakra landa. Komið hefur verið á laggirnar hraðsveitum skipaðar hermönnum úr herjum aðildarlandanna til að stilla til friðar á átakasvæðum en hverju aðildarlandi er það sjálfvald sett hvort þeir senda sína hermenn í þessar sveitir.
Við vísum á ummæli Alison Bailes, kennara við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, þar að lútandi á opnum fundi hjá Alþjóðamálastofnun HÍ í vetur. Alison er einn helsti sérfræðingur í Evrópu á sviði friðarrannsókna og var meðal annars framkvæmdastjóri SIPRI, sænsku friðarrannsóknar-stofnunarinnar."
(Leturbreyting: ES-blogg)
.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
28.5.2010 | 16:14
Svíþjóð: Meiri hagvöxtur en reiknað var með
Hagvöxtur í Svíþjóð var 3% á fyrsta ársfjórðungi ársins og er það mun meira heldur en menn áttu von á. Þetta kemur mönnum þægilega á óvart. Aukin einkaneysla og útflutningur eru helstu skýringar á þessu aukna hagvexti. Til dæmis jókst sala á nýjum bílum um 45% á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Þessi aukni hagvöxtur er talinn gefa tilefni til hækkunar vaxta í Svíþjóð í sumar, að mati greiningaraðila.
Frétt SR um málið.
28.5.2010 | 09:08
Ungir bændur á lágu plani! Rangfærslur og hræðsluáróður!
Samtök ungra bænda voru stofnuð voru stofnuð síðastliðinn vetur. Afstaða ríkisstyrktra bænda á Íslandi gagnvart ESB er kunn: Bændur vilja ekki í ESB og þeir taka þá ,,lýðræðislegu afstöðu að vilja ekki einu sinni ræða málið.
Nú hafa þessi samtök ungra bænda bæst í þann hóp og framlag þeirra er eins ómálefnalegt og hægt er að hugsa sér.
Samtökin birta í dag í bæði Fréttablaðinu og Morgunblaðinu stórar (og dýrar) auglýsingar þar sem í fyrirsögn segir: ,,Við viljum ekki senda afkomendur okkar í Evrópusambandsherinn
Í fyrsta lagi að þá er ekki neinn Evrópusambandsher til, eins og er gefið í skyn í auglýsingunni. Hún er því í hæsta máta villandi. Það hefur ENGIN ákvörðun verið tekin um stofnun Evrópuhers!
Það er langt í það að slíkur her verði myndaður og andstaða við slíkt í mörgum löndum. Írland er t.d. hlutlaust og verður aldrei með í slíkum her. Þetta vita kannski ungir bændur, en kjósa þá að setja málið fram með öðrum hætti!
Í öðru lagi:Ef af aðild yrði myndu Íslendingar örugglega vera á móti slíkum her, þar sem landið hefur verið hlutlaust í báðu heimsstyrjöldunum.
Í Lissabon-sáttmálanum er kveðið á um heimildir aðildarríkja ESB til að taka þátt í friðarskapandi aðgerðum og fleira (greinar 42-46). Þær eru byggðar á samþykktum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og fara eftir viðmiðum þeirra. Kynnið ykkur þetta, ungu bændur!
Svo er það kostnaðurinn, því ekki eru auglýsingar sem þessar ókeypis og varla eru Samtök ungra bænda fjársterk samtök. Hver borgar þessa ómálefnalegu vitleysu sem þessar auglýsingar eru?
Og eru Samtök ungra bænda með þessum auglýsingum að gefa tóninn í máli sem þau vilja ekki ræða?
Hverskonar endemis vitleysa er þetta!
Það væri nær fyrir Samtök ungra bænda að snúa sér og eyða peningunum í að reyna að stuðla að málefnalegri umræðu um bága stöðu íslensku íslenskra bænda, sem fá 10.000 milljónir íslenskra króna á ári í stuðning úr vösum og veskjum íslenskra skattborgara.
Í framhaldi af þessu má einfaldlega spyrja hvort þessar auglýsingar séu greiddar með almannafé?
Með þessu fara Samtök ungra bænda með ESB-umræðuna niður á áður óþekkt plan!
Þetta er falsáróður og þá er það bara spurningin hvort þetta sé það sem koma skal frá þessum ungu samtökum, eða eiga þau eftir að þroskast?
Yfirlýsing: Evrópusamtökin harma ómálefnalega umræðu sem þessa. Samband Íslands við Evrópu og umheiminn hefur sjaldan eða aldrei verið jafn mikilvægur málaflokkur og einmitt nú, í kjölfar efnahags og gjaldmiðilshruns á Íslandi.
Mjög mikilvægt er að umræða um málefni ESB sé málefnaleg og byggð á staðreyndum, en ekki rangfærslum og hræðsluáróðri.
Evrópusamtökin skora á Samtök ungra bænda að hafa það að leiðarljósi, vilji þeir á annað borð taka þátt í umræðunni.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
27.5.2010 | 19:53
Aðildarumsókn Íslands: Að öllum líkindum sett á dagskrá ráðherrafundarins með viku fyrirvara
Aðildarumsókn Íslands að ESB, verður að öllum líkindum sett inn á dagskrá leiðtogafundar ESB, viku fyrir sjálfan fundinn. Þetta kom fram í upplýsingum sem Evrópusamtökin öfluðu sér í Brussel í dag.
Nokkur umræða hefur spunnist um dagsetningu fundarins, sem er 17.júní, þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga. Að fundurinn sé á þessum degi er hinsvegar alger tilviljun, enda eru fundir sem þessir skipulagðir með að minnsta kosti 18 mánaða fyrirvara, að sögn heimildarmanns Evrópusamtakanna.
Ekki er ár liðið frá því að Ísland lagði inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.5.2010 | 09:51
Kraftaverkið í Dunkirk: 70 ár síðan
Um þessar mundir eru liðin 70 ár frá ,,kraftaverkinu í Dunkirk" í Seinni heimsstyrjöldinni. Þá tókst að bjargar um 340.000 hermönnum bandamanna (mest Bretar) undan hernaðarmaskínu Adolfs Hitlers, sem þá ruddist yfir Frakkland, sem féll skömmu síðar. En fjöldi hermanna lést, týndist, eða voru teknir höndum af Þjóðverjum á þessu tímabili.
Sérfræðingar meta það svo að ef þetta hefði ekki tekist, hefði gangur stríðsins mögulega orðið annar og að mögulega hefðu Bretar gefist upp fyrir Hitler. Í þessum stóra hópi var nefnilega um að ræða bestu hermenn Breta, það sem hét "British Expeditionary Force."
Fleiri hundruð skip og bátar sigldu með hermenn frá Dunkirk í Frakklandi, yfir til Bretlands á tímabilinu frá 24.maí til 6. júní.
Um 700, s.k. "litlir bátar" tóku þátt í aðgerðinni og áttu þeir stóran hluta í þessari stórkostlegu aðgerð, þar sem þeir gátu siglt nánast upp í land, til að ná í hermennina.
Þessa atburðar er nú minnst um þessar mundir í Bretlandi og Frakklandi.
BBC er með síðu um þetta, sem og Wikipedia
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2010 | 09:22
Eyjan: Landhelgin fyllist EKKI af erlendum togurum við ESB-aðild! Beint frá sjávarútvegsnefnd ESB.
"Íslendingar þurfa ekki að óttast að erlend fiskiskip leiti á Íslandsmið, gangi Ísland í Evrópusambandið. Jafnvel þótt Ísland gangist undir sameiginlega fiskveiðistefnu ESB, þá munu fiskveiðiheimildir byggjast á veiðireynslu, sem Íslendingar einir hafa í íslenskri fiskveiðilögsögu.
Þetta kom fram á fundi Giorgio Gallizioli og Armando Astudillo, sem sitja í sjávarútvegsnefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, með fréttamönnum í Brussel í dag, en blaðamaður Eyjunnar var á fundinum."
Þannig byrjar frétt á Eyjunni sem birtist í gær, en eins og fram kemur í tilvitnuninni, var blaðamaður Eyjunnar á fundinum. Síðar í fréttinni segir:
Í prinsippinu gætu spænsk eða bresk skip siglt á Íslandsmið, en þau hafa ekkert þangað að gera því þau munu ekki geta krafist veiðiheimilda, sem verða byggðar á veiðireynslu. Of langt er um liðið síðan þessar þjóðir veiddu á Íslandsmiðum og því munu þær ekki geta krafist veiðiréttar, sagði Astudillo.
Sagði hann þetta eiga við um alla helstu fiskistofna á Íslandsmiðum. Mögulegt væri þó að íslensk skip hefðu ekki nýtt sér einhverja smærri stofna, svo sem einhverja flatfiska, en þetta væru smáir stofnar sem hefðu ekki mikla þýðingu fyrir íslenskan efnahag.
Íslendingar hafa ekkert að óttast við að ganga í Evrópusambandið, hvað fiskveiðar varðar, sagði Astudillo.
Þar að auki sagði hann andstöðu Íslendinga við fjárstyrki ESB vegna fiskveiða óskiljanlega. Ekki væri eingöngu um að ræða styrki til fiskveiða, heldur gætu íslenskar sjávarbyggðir sótt þangað stuðning til að viðhalda sjávarbyggðum og fiskvinnslu." (Leturbreyting: ES-blogg)
Í ummælum tengdum við fréttina var töluvert rætt um s.k., kvótahopp. Í sambandi við það bendum við á:
a) Grein eftir Úlfar Hauksson, okkar helsta sérfræðing um sjávarútvegsstefnu ESB, en þar segir m.a.:
,,Ef Íslendingar sækja um fulla aðild að Evrópusambandinu er ljóst að hlutfallslegi stöðugleikinn myndi tryggja að svo til allur sá kvóti, sem heimilt yrði að taka úr sjó við Ísland, félli okkur í skaut. Í norska aðildarsamningnum - frá 1994 - er meginreglan sú að aflahlutdeild ESB innan norskrar lögsögu og öfugt er byggð á sögulegri veiðireynslu áranna 1989 til 1993. Í samningnum er kveðið á um að samningsaðilar mega hvorki auka sókn í vannýtta stofna í lögsögu hvor annars, né auka veiðar á þeim tegundum sem ekki sæta ákvörðun um leyfilegan hámarksafla. Norðmönnum tókst því að tryggja svo til óbreytta stöðu mála gagnvart ESB frá því sem var í fiskveiðisamningnum í tengslum við EES-samkomulagið.
Norðmönnum var mikið í mun að tryggja að eignarhald á fiskveiðiheimildum yrði bundið við þegna viðkomandi aðildarríkis þannig að hlutfallslegu jafnvægi yrði ekki raskað með kvótahoppi. Einungis norskir ríkisborgarar geta átt fiskiskip sem gerð eru út frá Noregi og vildu Norðmenn halda þessu fyrirkomulagi eftir inngöngu í ESB. Þetta stangast á við grundvallarreglu ESB sem bannar mismunun á grundvelli þjóðernis og var hafnað á þeirri forsendu. Í samningnum var gert ráð fyrir að Norðmenn fengju þriggja ára aðlögunartíma í þessum efnum og í sameiginlegri yfirlýsingu var áréttuð nauðsyn þess að tryggja hagsmuni þeirra svæða sem háð eru fiskveiðum. Með sameiginlegu yfirlýsingunni og áliti Evrópudómstólsins töldu Norðmenn tryggt að þeir gætu komið í veg fyrir kvótahopp.
Norðmenn, líkt og Bretar hafa gert með góðum árangri, hefðu því geta tryggt efnahagsleg tengsl fiskiskips undir norskum fána við Noreg með lögum og þannig komið í veg fyrir kvótahopp. Að sjálfsögðu gætu Íslendingar gert slíkt hið sama ef til aðildar kæmi."
b) Grein eftir Gunnar Þórðarson,af vef Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins, en þar segir m.a.:
,,Fyrir liggur að Íslendingar myndu fá nánast allan veiðikvóta við Ísland, og þyrfti ekki að semja sérstaklega um það. Til að tryggja að fiskveiðiarðurinn renni til Íslendingar væri hægt að semja um sérreglur í anda þess sem Bretar gerðu. Slíkt er í anda ESB en í þessu samhengi er rétt að hafa í huga að aðildarsamningur getur ekki gengið gegn fjórfrelsinu og þar með má ekki mismuna fólki eftir þjóðerni innan ESB. Íslendingar gætu því ekki haldið í kröfu sína um að banna íbúum annarra ESB ríkja að fjárfesta í Íslenskum sjávarútveg."
Í ljósi þessara orða Gunnars hér í lokin má velta því fyrir sér hversu megnugur íslenskur sjávarútvegur er um þessar mundir til fjárfestinga, en skuldir greinarinnar eru um 500 milljarðar, eða um það bil 1/3 af þjóðarframleiðslu Íslands!
LÍÚ birtir í dag frétt um skuldastöðu íslenskra sjávrútvegsfyrirtækja í árslok 2008.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.5.2010 | 17:04
Styrkist krónan eða veikjast aðrir gjaldmiðlar?
Áhugavert er að varpa fram þeirri spurningu í sambandi við gjaldmiðilsmál hvort þannig sé staðan í raun að krónan sé að styrkjast?
Vísir skrifar frétt um þetta í dag og þar segir m.a.: ,,Tæknigreining bendir til þess að krónan sé í styrkingarfasa og horfur séu á áframhaldandi styrkingu. Þetta kemur fram í vikulegum Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa."
Hvað þýðir þetta á mannamáli? Hvað er t.d. ,,tæknigreining"?
Svo má velta því fyrir sér hvort það sé eitthvað að gerast í íslensku efnahagslífi sem er að styrkja krónuna, eða hvort þetta séu fyrst og fremst erlendir þættir sem eru að verki?T.d. lækkun Evrunnar og nú aukin spenna á Kóreuskaga?
Nokkur umræða hefur verið um styrk Evrunnar, sumir segja að hún hafi verið of sterk. Er hún þá að leita í átt til ,,leiðréttingar" ?
26.5.2010 | 16:43
Hera var klassi!
Sjálfsagt er að óska Heru Björk og félögum hjartanlega til hamingju með að komast í úrslitakeppni Júróvisjón, sem fram fer á laugardaginn! Þetta var klassi!
Júrósvisjón er jú keppni sem eiginlega allir hafa skoðun á og margir elska að hata, en flestir gleðjast jú þegar okkar fólki gengur vel! Áfram Hera!
Meira: http://www.ruv.is/frett/minnti-a-operudivu
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.5.2010 | 21:26
ESB-fýla Morgunblaðsins
Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins skrifar pistill um ESB-fýlu Morgunblaðisins á bloggi Sterkara Íslands. Hann segir m.a.:
,,Ólund Morgunblaðsins vegna umsóknar Íslands að Evrópusambandinu vex stöðugt. Enginn er hissa á því sem sagt er um þau mál í þeim hlutum blaðsins þar sem skrifað er nafnlaust í leiðurum, Staksteinum og Reykjavíkurbréfi. Ekkert er við það að athuga að ritstjórarnir, annar eða báðir, sjái rautt þegar aðild Íslands ber á góma. Hitt er verra þegar fréttaflutningur blaðsins er farinn að draga dám af skoðunum ritstjóranna.
Þeir virðast hafa verið fljótir að gleyma hátíðlegum loforðum um annað í bréfi til stórs hluta áskrifenda blaðsins sem sagði upp áskrift að blaðinu þegar þeir tóku við blaðinu og óskuðu eftir að fá að sanna sig með hlutlausum fréttaflutningi."
Lesa má alla færsluna hér
21.5.2010 | 23:57
...þegar stíflur bresta...!
Mikið fjaðrafok hefur orðið hér á landi þegar fréttist að mögulega, við endurtökum; MÖGULEGA, verði tekin sú ákvörðun að formlega hefja aðildarviðræður Íslands og ESB, þann 17. júní næstkomandi, í Brussel.
Það sem gerir mál þetta sérstakt er að ályktun sem snertir þetta mál, var samþykkt í Íþrótta og tómstundaráði Reykjavíkur!
ÍTR hefur ekki beint verið þekkt fyrir að álykta um utanríkismál og sýnir þetta ef til vill að vegir þess eru órannsakanlegir!
Bloggheimar loga! Það er líkt og stífla hafi brostið! Og talandi um stíflur, það er akkúrat það sem gerðist þann 17. júní fyrir 51 ári. Þá brast stífla hér á landi. Um þann atburð má lesa á stórskemmtilegu bloggi Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings.
Svo er það þetta með storminn og vatnsglasið?
21.5.2010 | 18:17
Gunnar á Hlíðarenda Grikki?

Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2010 | 17:13
Vill MBL að Evran hrynji?
Morgunblaðið heldur áfram að dreifa ESB-andúð sinni á síðum blaðsins. Nú síðast í leiðara dagsins í dag, undir yfirskriftinni Áhyggjur ESB. Leiðarahöfundurinn, annhvort Davíð eða Haraldur segja þar t.d. frá ,,myntinni sem er að molna sundur" og eiga þar að sjálfsögðu við Evruna.
Það má lesa á milli línanna að það er næstum eins og leiðarahöfundar MBL nánast óski einskis annars en að Evran hrynji, með öllum þeim ósköpum sem því myndu fylgja, efnahagslegum og pólitískum glundroða. Er það vilji eða ósk leiðarahöfunda Morgunblaðisins? Þeim ætti að vera kunnugt hvaða afleiðingar það hefur þegar gjalmiðlar hrynja! Hvað þá á efnahagssvæðisvæði sem telur um 330 milljónir manna!
Pólitísk upplausn og glundroði hefur farið afar illa með Evrópu og leitt til hluta á borð við tilkomu fasisma og nasisma. Ýmislegt bendir til þess að hægri-öfgamenn séu nú, t.d. í Ungverjalandi, að komast á skrið. Vill Morgunblaðið það líka?
Nei, það er miklu nær að reyna að laga og betrumbæta það kerfi sem fyrir er, að standa fyrir svokölluðum umbótum. Upplausn er ekki það sem Evrópa (og umheimurinn) þarf um þessar mundir.
Og ef Morgunblaðið kynnir sér málin, þá er hið mikla atvinnuleysi á Spáni t.d. ekki ESB að kenna! Þar skipta miklu máli reglur á vinnumarkaði, sem Spánverjar hafa sjálfir sett sér! Spánverjar eru frjáls þjóð og geta sett sínar eigin reglur, t.d. varðandi vinnumarkað. Það skín nefnilega í gegnum málflutning MBL að þar er látið í veðri vaka að ESB stjórni bara öllu sem gerist í Evrópu!
Slíkt er hinsvegar langt frá sannleikanum. En það er kannski ekki algjört lykilatriði hjá Morgunblaðinu og et.v. er lögð meiri áhersla á að koma með s.k. ,,Mogga-sannleika."
21.5.2010 | 08:50
Aukið aðhald á fjármálamörkuðum
Í kjölfar fjármálakreppunnar hafa beggja megin Atlantshafsins komið fram reglur eða tillögur um aukið aðhald og reglur á fjármálamörkuðum. ESB setti nýlega fram tillögur um reglur varðandi áhættu og vogunarsjóði.
Í fréttum í dag kom svo fram að fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt hertar reglur um fjármálamarkaði. Það fer nefnilega lítið fyrir því í umræðunni, en það er staðreynd að í bandarísku samfélagi eru stífar reglur á ýmsum sviðum.
Það er því ljóst að breytingar eru í farvatninu hvað varðar fjármálamarkaði.
20.5.2010 | 19:40
Júró!
Stundum er nauðsynlegt að hvíla sig á pólitíkinni. Hvað er þá betra en að horfa á Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva! Júróvisjón!! Evrópa er jú mikið menningarsvæði og þar á popptónlistin sínar rætur.
Á heimsíðu Júrósvisjón er að finna ALLT um keppnina og keppendur. Keppnin fer fram í Noregi að þessu sinni, en fréttir hafa m.a. borist af því að Norðmenn muni ekki halda hana aftur, þó að þeir vinni! Keppnin hefst á þriðjudaginn.
Bendum einnig á nýja netútvarpsstöð, sem bara sendir Júróvisjón-lög, www.Eurorasin.is
Svo er það bara spurningin: Hvernig gengur Íslandi?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2010 | 08:42
Seðlabankinn og Lúx: Leiðari FRBL
Óli Kr. Ármannsson skrifar ágætan leiðara í Fréttablaðið í dag, undir fyrirsögninni ,,Velvild frá Lúx." Í honum fjallar Óli um viðskiptagjörninginn á milli Seðlabanka Íslands og Lúxemborgar í gær. Óli skrifar:
,,Seðlabankinn í Lúxemborg er hluti af fjármálakerfi evrunnar og stofnaður á sama tíma og Seðlabanki Evrópu (ECB). Bankinn gefur út evrur líkt og Seðlabanki Evrópu. Sú staðreynd að bankinn skuli koma til móts við Íslendinga með þessum hætti endurspeglar í raun velvild í garð þjóðar sem er í þrengingum eftir að hafa farið illilega út af sporinu í stjórnsýslu og eftirliti með fjármálakerfi sínu. Um leið grefur samkomulagið undan málatilbúnaði þeirra sem viljað hafa mála samskipti Íslands við önnur ríki svörtum litum og virðast trúa því að önnur ríki Evrópu vilji fremur leggja stein í götu Íslands en greiða hana.
Á tímum sem þessum er vert að spyrja sig hverjum gagnist að grafa undan sambandi Íslands við önnur Evrópuríki. Getur verið að einhver hafi af því hag að Ísland troði illsakir við Breta og Hollendinga?"
Allur leiðarinn er hér
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir