Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
24.11.2010 | 21:31
Ögmundur virkilega gramur (VG) vegna Baldurs
Viðtal Spegilsins í fyrrakvöld við Baldur Þórhallsson (mynd) hefur valdið titringi í dómsmálaráðuneytinu, þ.e.a.s hjá dómsmálaráðherranum, Ögmundi Jónassyni.
Hann er fúll vegna ummæla Baldurs um "tveggja-mánaða-leiðina" að ESB, sem Ögmundur setti fram um daginn í blaðagrein.
Eyjan fjalllar um þetta og Ögmundur skrifar sjálfur um þetta. Nú svo er hægt að hlusta á Spegilinn (fyrsta efni þáttarins)!
24.11.2010 | 21:08
Þorgerður Katrín í MBL: Málið þarf að klára!
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ritar grein í Morgunblaðið í dag um ESB-málið. Fyrirsögnin er: Engan hringlandahátt.
Þorgerður vill klára samningferlið og hún segir m.a.: ,,Það hafa ýmsir stigið fram á síðustu vikum og mánuðum og sagt að best væri að hægja á umsóknarferlinu eða hætta við umsóknina og draga hana til baka, m.a. til að spara í ríkisfjármálum. Undir þetta sjónarmið hefur síðan verið kynt á ýmsum stöðum, öllum frekar fyrirsjáanlegum. Það er að sjálfsögðu virðingarvert að menn vilji spara þótt það væri óskandi að óumflýjanleg sparnaðarskref í fjárlögum væru tekin af meiri festu og framsýni í stað þess að láta skoðanakannanir stýra tillögugerð í þeim efnum.
En það verður líka að segja hlutina eins og þeir eru. Fyrir suma er einfaldlega aldrei rétti tíminn til að sækja um aðild að ESB, líkt og fyrir aðra er aldrei rétti tíminn til að lækka skatta eða virkja einkaframtakið í velferðar- eða menntamálum."
Síðar segir Þorgerður: ,,Þrátt fyrir umdeilda aðferðafræði ríkisstjórnarflokkanna tveggja fór málið í gegnum þingið og þann lýðræðislega farveg sem fylgir því að fá mál samþykkt. Meirihluti Alþingis Íslendinga samþykkti að fara í aðildarviðræður og er það ferli nú hafið. Málið þarf því að klára, á endanum með aðkomu þjóðarinnar, og hætta að tala um það í viðtengingarhætti. Það ætti að vera hagur jafnt stuðningsmanna sem andstæðinga að sá vilji verði hið endanlega úrskurðarvald.
Það væri óskandi, í ljósi þess að aðildarferlið er hafið, að forystumenn íslenskra stjórnmála bæru gæfu til þess að sameinast um að ná sem bestum samningi fyrir Íslands hönd þannig að þjóðin geti verið þess fullviss, þegar hún gengur að kjörborðinu í fyllingu tímans, að allir hafi lagt sitt af mörkum í þágu íslenskra hagsmuna. Leitum frekar að því sem sameinar okkur í málinu en sundrar.
Að stoppa viðræðurnar á þessu stigi og afturkalla umsóknina bæri vott um hringlandahátt og er ekki í samræmi við þá festu sem þarf að vera í sem flestum málaflokkum - ekki síst utanríkismálum."
(Leturbreyting ES-blogg)
22.11.2010 | 22:30
Um að halda opnu - leiðari FRBL
Í leiðara Fréttablaðsins í dag fjallar Ólafur Þ. Stephensen um ESB-málið, sérstaklega í ljósi atburða helgarinnar og skrifar: ,,Þrír stjórnmálaflokkar eru klofnir í afstöðu sinni til aðildar að Evrópusambandinu. Þetta eru Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Framsóknarflokkurinn. Í stað þess að horfast í augu við að skoðanir eru skiptar og finna leiðir, sem færa deiluna af vettvangi flokkanna, reyna flokksmenn í öllum þremur stjórnmálahreyfingum að knýja fram "skýra afstöðu", sem stuðlar fyrst og fremst að því að viðhalda klofningi og deilum innan flokkanna."
Síðar segir: ,,Hagsmunir allra þessara flokka eru að halda málinu opnu, halda aðildarviðræðunum áfram og útkljá málið svo í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það eru sömuleiðis hagsmunir þeirra að baráttan fyrir atkvæðagreiðsluna fari fram á vettvangi já- og nei-hreyfinganna en rífi ekki flokkana í sundur. Það er ennfremur líklegt til að þjóna hagsmunum allra þessara flokka að sem beztur samningur náist við ESB. Þá geta Evrópusinnar innan þeirra ekki sagt, segi þjóðin nei við aðildarsamningi, að brögðum hafi verið beitt til að koma í veg fyrir að Ísland fengi bezta hugsanlega samning.
Vilji Framsóknarflokkurinn til dæmis ná betri fótfestu í þéttbýlinu, heldur hann málinu opnu. Sama á við um VG, vilji flokkurinn halda í ýmsa þá kjósendur, sem komu til hans í síðustu kosningum og eru jákvæðir gagnvart ESB-aðild. Og þetta á við um Sjálfstæðisflokkinn ef hann vill ná aftur til sín kjósendum, sem fóru yfir til Samfylkingarinnar vegna stefnunnar í Evrópumálum og ef hann vill hindra að fyrir næstu kosningar verði til nýr Evrópusinnaður hægriflokkur."
22.11.2010 | 19:07
Árni Finnsson um ,,græna aðlögun" á Smugunni
Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarráðs skrifar áhugaverðan pistil á Smuguna, sem hann kallar ,,Græn aðlögun."
Árni ræðir umhverfismál og segir m.a: ,,Þau eru einn mikilvægasti málaflokkur evrópskra stjórnmála og til að ná árangri verður eitt yfir alla að ganga. Markmið Evrópusambandsins eru sameiginleg. Í gildi eru sameiginleg lög um náttúrvernd, útstreymi gróðurhúsalofttegunda, mengunarvarnir og síðast en ekki síst aðkomu almennings að stefnumótun í umhverfismálum í samræmi við Árósamninginn um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum.
Í kjölfar aðildarumsóknar Íslands fer framkvæmdastjórn ESB í Brussel fram á að íslensk lög og stjórnarhættir standist þær kröfur sem gerður eru í umhverfismálum innan sambandsins."
Og síðar segir Árni: ,,Ísland hefur áður aðlagast umhverfislöggjöf ESB í samræmi við ákvæði EES-samningsins, t.d. lög um mat á umhverfisáhrifum. Til að Ísland geti öðlast fulla aðild verður íslenska náttúruverndarlöggjöfin að standast evrópskar kröfur áður en aðildarsamningur verður undirritaður. Aðildarviðræður eru því mikilvægt tæki til umbóta í löggjöf um náttúruvernd og bæta réttindi almennings til þátttöku í ákvarðanatöku í umhverfismálum hér á landi.
Alveg óháð því hvort aðild að Evrópusambandinu verður samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu stöndum við því frammi fyrir grænni aðlögun að lagaramma Evrópusambandsins. Það yrði mikið framfaraspor og allir þeir sem vilja auka veg umhverfisverndar á Íslandi hljóta fagna slíkri aðlögun." (Leturbreyting ES-blogg)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2010 | 19:00
Aðalsteinn um ESB og auðlindamál á morgun
Aðalsteinn Leifsson, lektor við HR, mun á morgun fjalla um auðlindamál og ESB, í hádeginu, á Sólon í Bankastræti. Þetta er einn af hádegisfundum Samfylkingarinnar um Evrópumál.
Bendum hér einnig á góða grein eftir Aðalstein frá því í fyrra.
22.11.2010 | 18:35
„Vér einir vitum“ eftir sr. Þóri Stephensen
Í Morgunblaðnu um helgina ritaði sr. Þórir Stephensen m.a: ,,Fyrirsögn þessarar greinar er tilvitnun í Friðrik 6., einn af okkar gömlu konungum, sem taldi sig þiggja vald sitt milliliðalaust frá Guði. Þá var rætt um breytingar á prentfrelsisákvæðum í Danmörku. Svar konungs, Vi alene vide, kom í veg fyrir aukið frelsi og hefur gjarnan verið notað um þvermóðsku og yfirgang stjórnvalda. Það hefur oft heyrst i þjóðfélagsumræðunni að undanförnu.
Í umfjölluninni um ESB og Sjálfstæðisflokkinn hefur nokkrum sinnum verið að því vikið, að Davíð Oddsson, formaður nefndar þeirrar, er samdi Aldamótaskýrslu Sjálfstæðisflokksins, hafi breytt um skoðun í Evrópumálum. Ummæli hans í skýrslunni eru mörg á þann veg, að þau hefðu getað verið skrifuð af ESB-sinna í dag. En nú er komið annað hljóð í strokkinn. Davíð útskýrir þetta í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 10. júlí sl. Hann segir þar: Fyrrnefnd skýrsla virðist um margt ágæt, en ekki hefur þó allt það, sem þar var sett fram, staðist tímans tönn. Hann segir ennfremur: [nú] hafa allar þær upplýsingar sem áður vantaði, komið fram, meðal annars í fjölmörgum samtölum fyrrverandi formanns skýrslunnar .... við menn eins og Delors, Santer og Prodi, sem allir voru formenn framkvæmdastjórnar ESB, auk helstu forystu Evrópuríkja.
Öll greinin, sem við fengum frá Þóri
21.11.2010 | 21:21
Þorsteinn um "villta vinstrið" í FRBL
Þorsteinn Pálsson ritaði bréf af Kögunarhóli sínum í Fréttablaðið í gær. Þar segir m.a.:
,,VG spratt upp úr Alþýðubandalaginu sem áður óx af meiði Sósíalistaflokksins. Þessir flokkar voru lengst af einangraðir í afstöðunni til þátttöku Íslands í vestrænni efnahags- og varnarsamvinnu. Vatnaskil urðu þegar landsfundur Sjálfstæðisflokksins ákvað á liðnu sumri að skipa flokknum við hliðina á vinstri væng VG varðandi kröfuna um að afturkalla aðildarumsóknina að ESB.
Í síðustu kosningum byggðist neikvæð afstaða Sjálfstæðisflokksins þó á hagsmunamati sem endurskoða þyrfti á hverjum tíma. VG var á grundvelli hugsjóna alfarið andvígt aðild en sagði jafnframt að málið myndi ekki koma í veg fyrir stjórnarmyndun. Framsóknarflokkurinn, Borgarahreyfingin og Samfylkingin voru hins vegar með aðildarumsókn.
Þeir þrír flokkar sem höfðu aðildarumsókn á dagskrá fengu hreinan meirihluta þingmanna. Í atkvæðagreiðslu um umsóknina gekk meirihluti þingmanna Framsóknarflokksins og Borgarahreyfingarinnar úr skaftinu. Á hinn bóginn var meirihluti þingmanna VG fylgjandi. Þrátt fyrir þessa víxlun atkvæða var niðurstaðan í samræmi við skýran vilja meirihluta kjósenda.
Fyrr á þessu ári fundu forystumenn Heimssýnar upp á því að fullyrða að Alþingi hefði alls ekki samþykkt að sækja um aðild. Það hefði aðeins heimilað könnun á þeim möguleika. Ríkisstjórnin hefði því farið út fyrir umboð sitt og rétt væri að afturkalla umsóknina.
Allir læsir menn vita að þessi röksemdafærsla á enga stoð í raunveruleikanum. Hún er hrein hugarleikfimi. Í pólitík getur áróðursskáldskapur af þessu tagi þó orðið að raunverulegu vandamáli. Flokksráð VG glímir við það á fundi í dag.
Vandi VG liggur ekki í því að hafa gert málamiðlun um hugmyndafræðilegt grundvallaratriði. Hann skýrist miklu fremur af þeirri tvöfeldni að byggja málamiðlunina á því að vera bæði með og á móti."
21.11.2010 | 21:16
Írar biðja um og fá stuðning ESB og AGS
Ríkisstjórn Írlands bað í kvöld með formlegum hætti um stuðning ESB og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins vegna þess vanda sem bankakerfi landsins stendur frammi fyrir. Óvíst er um hve miklar fjárhæðir er að ræða, en talið er að það geti verið allt að 80-90 milljörðum Evra.
Einnig er talið að hluti pakkans fari í að glíma við mikinn fjárlagahalla sem hrjáir Írland.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2010 | 09:33
Einar K: VG er ESB-flokkur
Einar K. Guðfinnsson, fyrrum sjávarútvegsráðherra og nú þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lýsir því yfir á bloggi sínu að VG sé orðinn ESB-flokkur.
Það eftir að tillaga um að hætta aðildarviðræðum við ESB var felld í flokksráði VG um helgina.
Samkvæmt þessu aðhyllist þá VG aukna Evrópusamvinnu, sem m.a. miðar að auknum viðskiptum á milli landa, frjálsum markaði, vestrænni samvinnu og virðingu fyrir mannréttindum.
Þetta eru, við nánari skoðun, ein helstu leiðarljós sjálfstæðisstefnunnar, stefnu Sjálfstæðisflokksins.
20.11.2010 | 20:18
Örvæntingarfullur Ásmundur Einar
Nei-sinni númer eitt á Íslandi, Ásmundur Einar Daðason, neitar að horfast í augu við staðreyndir: Flokksráð hans eigin flokks felldi tillögu um að hætta við umsóknar og viðræðuferlið sem hafið er við ESB. Þetta sést best í fréttum Stöðvar tvö í kvöld, en textafrétt má sjá hér. Svo virðist sem Ásmundur geti ekki sætt sig við lýðræðið inna hans eigin flokks.
Spurning er hvort öldurnar lægi innan VG?
VG vill ekki með neinu móti stuðla að því að fyrsta "norræna velferðarstjórnin" falli. Sem er skiljanlegt. Slíkt myndi hafa hörmulegar afleiðingar í för með sér fyrir flokk eins og VG. VG myndi "falla á prófinu."
En í hverju er velferðin fólgin? Lækkun vaxta, þverrandi verðbólga (sem hvortveggja helst!), nothæfur gjaldmiðill, sem stuðlar að fjárfestingum og alþjóðaviðskiptum, aukin samkeppni og lægra vöruverð, eru sennilega mestu velferðarmál þessarar þjóðar.
Þetta fæst með samtvinnun íslensks samfélags í samfélag þjóðanna. Evrópa liggur þar næst, enda um 70-80% allra viðskipta okkar við Evrópu.
Einangrunarsinnar berja hinsvegar höfðinu í steininn, varðhundar hins óbreytta ástands gelta sem aldrei fyrr.
Fólk sem aðhyllist skynsemishyggju sér í gegnum málflutning þeirra.
Evrópumál | Breytt 21.11.2010 kl. 09:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir