Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
VG virðist vera að ná áttum í Evrópumálunum.
RÚV hefur greint frá því að tillaga um að hætta aðildarviðræðum við ESB, var felld á flokksráðsfundi flokksins, sem nú er haldinn í Hagaskóla.
Það má því segja að skynsemin hafi haft vinninginn í þessu máli.
Þetta eykur líkurnar á því að hægt verði að ræða ESB-málið af meiri alvöru en hingað til. Sérstaklega innan VG.
Mögulega eykur þetta einnig líkurnar á því að VG geti farið að hugsa meira um það hvernig flokkurinn geti stuðlað að framförum á sviði umhverfismála (en þetta er sá málaflokkur sem verður hvað fyrirferðamestur, á heimsvísu, á næstu áratugum), með aukinni samvinnu á vettvangi Evrópu.
Segja má að FRAMTÍÐIN hafi sigrað í þessu efni hjá VG og því ber að fagna!
Evrópumál | Breytt 21.11.2010 kl. 09:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.11.2010 | 21:49
Gauti Kristmannsson svarar Bjarna Harðar í FRBL
Gauti Kristmannsson, dósent í H.Í. svarar Bjarna Harðarsyni í grein í Fréttablaðinu í dag, en Bjarni ritaði grein í Morgunblaði fyrir skömmu, sem svar við fyrri grein Gauta um þýðingar og íslenska tungu.
Gauti segir: ,,Bjarni Harðarson, upplýsingafulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og gjaldkeri Heimssýnar, lætur svo lítið að hafa nokkur orð í Morgunblaðið 4. nóvember sl. um athuganir mínar á þeim áhrifum á íslenska tungu sem innganga í Evrópusambandið hefði.
Hann beitir í greinarkorni sínu þeim kunnuglegu brögðum sem sjá má hjá mönnum sem sjást ekkert fyrir þegar þeir vilja afflytja mál annarra. Þau eru hér einkum hálfsannleikur, óvinahatur og sögufölsun.
Hann segir að nú þegar eyði þjóðin „umtalsverðu fé til þýðinga á regluverki EES" og að ég bendi á að „sú vinna öll og kostnaður margfaldast við inngöngu í ESB". Þetta er sígilt dæmi um hálfsannleik, því þó að það sé rétt að kostnaðurinn aukist þá fellur hann ekki lengur á Íslendinga eina heldur ESB allt. Það sparast því umtalsvert fé við það.
Næsta fullyrðing er afbragðsgóð: „Og jafnt þó enginn lesi þýðingar þessar mun þýðingastarfið hafa áhrif á íslensku þar sem samhliða þýðingum munu skriffinnar margskonar starfa við að orðtaka regluverk þessi, yfirfara og kynna nýyrði og talsmáta sem þar verður til og svo mætti lengi telja." Hvernig skriffinnarnir fara að því að gera þetta án þess að lesa þýðingarnar veit ég ekki, en kannski er það þannig sem Bjarni starfar sjálfur við að afla sér upplýsinga."
19.11.2010 | 21:39
ESB-aðild bætir löggjöf um umhverfismál
Á Smugunni má lesa: ,,Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir að aðildarviðræður við ESB séu mikilvægt tæki til að bæta löggjöf í umhverfismálum og náttúruvernd á Íslandi. Í kjölfar aðildarumsóknar Íslands fer framkvæmdastjórn ESB í Brussel fram á að íslensk lög og stjórnarhættir standist þær kröfur sem gerður eru í umhverfismálum innan sambandsins.
Árni segir að allir þeir sem vilja auka veg umhverfisverndar á Íslandi hljóti að fagna slíkri aðlögun.
,,Alveg óháð því hvort aðild að Evrópusambandinu verður samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu stöndum við því frammi fyrir grænni aðlögun að lagaramma Evrópusambandsins," skrifar Árni í pistli hér á Smugunni."
19.11.2010 | 15:41
Verður gremja í VG?

"Búast má við að hart verði tekist á um Evrópusambandsmálin á flokksráðsfundi Vinstri grænna sem hefst í dag. Formaður flokksins reiknar með hreinskiptum skoðanaskiptum, en segir engan vafa á því hver stefna flokksins sé í evrópumálum.
Flokksráð Vinstri grænna kemur saman klukkan fimm í dag. Fyrirfram er reiknað með að hörðustu andstæðingar yfirstandandi viðræðna við Evrópusambandið muni herja á forystu flokksins um að viðræðunum verði hætt. En fyrir nokkrum vikum birtu rúmlega hundrað flokksmenn og stuðningsmenn flokksins áskorun í dahblöðunum til forystunnar um að fara að stefnu flokksins. Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna segir stefnu flokksins í Evrópumálum liggja fyrir og býst ekki við átökum á fundinum."
Lógóið er athyglisvert.
Morgunblaðið hlýtur að verða fullt af fréttum frá VG-fundinum. Reyndar hefur Morgunblaðið verið stútfullt af ESB-fréttum í anda Davíðs Oddssonar undanfarna daga.
Í blaði dagsins eru t.a.m níu fréttir eða greinar sem tengjast ESB. Heilu síðurnar! En allt á neikvæðu nótunum! Það er greinilega dagsskipunin, neikvætt skal það vera.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.11.2010 | 21:12
Valgaður um stjórnarskrá - ESB, á Eyjunni
Valgarður Guðjónsson, leiðtogi Fræbblanna, og "kosningasjónvarpstölvukall" ritar pistil á Eyjunni um væntanlegt stjórnlagaþing og ESB-málið. Það er nefnilega verið að spyrða þetta saman.Valgarður skrifar:
,,Ein algengasta spurningin sem ég fæ um afstöðu til einstakra mála er hvort ég sé fylgjandi eða andvígur aðild að Evrópusambandinu.
Stutta svarið er að ég veit það ekki.
Ég ákvað fyrir nokkuð löngu að sjá hverju aðildarviðræður skiluðu, gefa mér þá tíma til að skoða rök með og á móti og taka afstöðu. Það er einfaldlega talsvert af góðum og gildum rökum á báðum hliðum.
Lengra svar er að mér finnst þetta ekki vera málefni stjórnlagaþings. Mér finnst fráleitt að vinna þingsins sé miðuð við að hanna stjórnarskrá sem annað hvort kemur í veg fyrir eða opnar sérstaklega fyrir aðild. Mér finnst talsvert rökréttara að skrifa stjórnarskrá sem almenn sátt verður um."
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
18.11.2010 | 21:01
Súrrealismi!
Ritari kom við bensínstöð í dag, tók bensín (sem hækkaði í gær,en lækkaði aftur í dag - hvernig er þetta hægt - ekki nema von að allt verðskyn sé farið út í veður og vind) og rakst þar á Bændablaðið.
En samt er Bændablaðið alltaf fullt af fréttum um ESB og yfirleitt hvað ESB sé nú rosalega vont fyrirbæri, rétt eins og Mogginn!
Í Bændablaðinu er t.d. sagt frá fundaherferð samtakanna sem er á dagskrá. Og hvað ætla bændur að ræða - jú, einmitt: ESB!
Og þá verður væntanlega hrópað í kór að ESB vilji leggja niður alla byggð í sveitum landsins.
En að minnast á nothæfan gjaldmiðil, lægri vexti og verðbólgu og betri rekstrarskilyrði bænda verður sennilega ekki gert.
Salvador Dalí gæti ekki gert betur!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.11.2010 | 20:37
Stríðsöxin á lofti innan VG vegna ESB
Enn er blásið til stríða innan VG vegna ESB. Á Eyjunni stendur þetta:
,,Einn ráðherra og tvær þingmenn Vinstri grænna gera það að tillögu sinni á flokksráðsfundi flokksins sem hefst á morgun að hætt verði skilyrðislaust við aðlögunarferli að Evrópusambandinu. Enn aðrir flokksráðsmenn hyggjast leggja fram á sama fundi öndverða tillögu; að samningaviðræðum verði framhaldið.
Segir Morgunblaðið frá þessu og vitnar til heimildamanns. Meðal þeirra sem munu fara fram á að slíta aðlögunarferli Íslands að ESB eins og það er kallað eru Ögmundur Jónasson, ráðherra, og þingmennirnir Ásmundur Einar Daðason og Atli Gíslason."
Það virðist stefna í uppgjört innan VG vegna málsins. Uppgjör meðal vinstri-manna hafa í gegnum tíðina verið illvíg, hvort sem það er hérlendis eða erlendis.
Menn falla í "ónáð", eru settir útaf "sakramentinu" o.s.frv. Í gamla "Sovét" vori iðulega framkvæmdar "hreinsanir" á hinu og þessu.
VG, sem gefur sig út fyrir að vera "umhverfisflokkur" Íslands virðist loga í illdeilum. Þesskonar umhverfi er ekki gott starfsumhverfi.
Í staðinn fyrir að horfa fram á veginn virðast bræðravíg vera meginþemað í starfsemi VG um þessar mundir.
Ps. VG er í sama húsi og ESB hér á Íslandi, gömlu Moggahöllinni! Salvador Dali hefði ekki getað gert betur!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2010 | 20:27
Er Spaugstofan flutt?
Ísland þarf nauðsynlega á góðum grínistum að halda, rétt eins og aðrar þjóðir. Og það er líka sagt að hláturinn lenggi lífið. Við þurfum mikið grín á "þessum síðustu og verstu."
Ritstjórn ES-bloggsins les þetta á Eyjunni: ,,Þá stefni ríkisstjórnin að því að gera Ísland að litlu þorpi í Tyrklandi með aðildarviðræðum sínum við Evrópusambandið."
Þetta er úr grein eftir Árna Johnsen í Morgunblaðinu.
Er Spaugstofan flutt?
(DV-mynd)
18.11.2010 | 15:19
Rýnivinnu um félagarétt lokið
Á Evrópuvef Utnaríkisráðuneytisins stendur: ,,Rýnifundi um 6. kafla löggjafar Evrópusambandsins, félagarétt, lauk í Brussel í gær. Á fundinum, sem stóð í einn dag, báru sérfræðingar Íslands og ESB saman löggjöf í þessum samningskafla en í honum er að finna reglur annars vegar um félagarétt og hins vegar um reikningsskil fyrirtækja og endurskoðun. 6. kafli er hluti af EES-samningnum og var á fundinum rætt um framkvæmd reglnanna hérlendis . Ísland hefur þegar tekið upp löggjöf á þessu sviði og ekki er um neinar undanþágur eða aðlaganir að ræða."
17.11.2010 | 20:31
Aðild að ESB lykilatriði fyrir sprotafyrirtæki, segir Iðnaðarráðherra
Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, setti svokallaða Athafnaviku fyrr í vikunni. Í sambandi við það birtist frétt í Fréttablaðinu, en þar sagði:
Iðnaðarráðherra telur aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) algert lykilatriði til þess að nýsköpunar- og sprotafyrirtæki geti vaxið í alvöru stærðir hér á landi."Þetta eru oftar en ekki útflutningsfyrirtæki sem eru að flytja út hugverk og þá skiptir stöðugur gjaldmiðill gríðarlegu máli," segir hún. "Innan ESB eru gríðarlega mikil tækifæri fyrirnýsköpun og sprota. Mikil áhersla og sívaxandi og þá ekki síst tengt loftslagsmarkmiðum.Ég held að það verði öllum ljóst sem skoða þetta. Þar er markvisst og flott starfsem ég held að muni gagnastokkur gríðarlega vel,"segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. (Mynd VF.is)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir