16.2.2011 | 21:21
Jón Magnússon um bændur, innflutningsmál og samanburð á matarverði
Jón Magnússon, fyrrum alþingismaður gerir bændur og innfllutningsmál að umtalsefni í pistli á www.pressan.is og ræðir þar auglýsingar Bændasamtakanna um matvælaverð í blöðunum í gær. Jón segir: "Í Fréttablaðinu í dag er auglýsing frá Bændasamtökum Íslands undir heitinu: Innlendar búvörur halda niðri matvælaverði og vísitölu neysluverðs.
Óneitanlega var ég ánægður að sjá þetta og bjóst við að verið væri að tilkynna verulega lækkun á verði innlendra búvara. Helstu kröfur sem gerðar eru til auglýsinga er að þær séu sannleikanum samkvæmt og þær séu upplýsandi. Auglýsing Bændasamtakanna uppfyllir hvorugt skilyrðið."
Og hann heldur áfram: "Auglýsingin byggir á verðhækkunum í krónum á innlendum og innfluttum landbúnaðarvörum frá janúar 2007 til janúar 2011. Þessi samanburður er villandi. Í janúar 2007 byrjaði gengi íslensku krónunnar að falla og hún er ekki hálfvirði Evru miðað við það sem hún var í desember 2006.
Hefðu Bændasamtökin viljað byggja á raunhæfum samanburði þá hefðu þau tekið verð á helstu búvörum á Íslandi og t.d. Danmörku og Svíþjóð til samanburðar, en með því hefði fengist raunhæfari samanburður á verði íslenskra búvara og innfluttra.
Væri það rétt fullyrðing hjá Bændasamtökunum að innlendar búvörur haldi niðri matvælaverði og vísitölu neysluverðs þá ættu þau að samþykkja frjálsan innflutning landbúnaðarvara þar sem innfluttar landbúnaðarvörur gætu samkvæmt þessu ekki verið nein ógn við íslenska framleiðslu. Að sama skapi væri brostinn forsenda fyrir andstöðu Bændasamtakanna gegn Evrópusambandsaðild þar sem að hún hefði enga ógn í för með sér fyrir íslenskan landbúnað heldur mundi færa íslenska landbúnaðinum ótæmandi möguleika á 500 milljón manna markaði.
Staðreyndin í málinu er hins vegar sú að því miður eru íslenskar búvörur almennt dýrustu búvörur sem framleiddar eru á Evrópska Efnahagssvæðinu þegar allt er talið til þ.e. verð til neytenda og markaðsstuðningur hins opinbera. Sú fullyrðing að innlendar búvörur haldi niðri matvælaverði og vísitölu neysluverðs er því ekki bara villandi hún er ósönn og það vita þeir sem að þessari auglýsingu standa. Auglýsingin er því sett fram í því eina skyni að blekkja."
Jón lýkur pistli sínum á þessum orðum: "Frjáls innflutningur á matvörum án ofurtolla er þvert á móti til þess fallinn að lækka verð á búvörum og halda niðri matvælaverði og vísitölu neysluverðs það er staðreyndin í málinu. En þessi fullyrðing mín fer þvert á það sem Bændasamtökin halda fram í auglýsingunni.
Vilji talsmenn Bændasamtakanna halda sig við það að innlendar búvörur haldi niðri matvælaverði þá skora ég á þá að birta samanburðartölur um verð helstu búvara án skatta og ríkisstuðnings í Íslandi, Svíþjóð, Danmörku og Bretlandi til dæmis.
Það er auðvelt að auglýsa gæðin sagði jarðaberið þegar ég ber mig saman við hrútaberið."
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.2.2011 | 21:10
Skjálfti í Nei-sinnum?
Já-Ísland hefur vakið athygli meðal landsmanna, en í dag birtust blaðaauglýsingar frá samtökunum um áherslur í ESB-málinu.
Nei-sinnar gera Já-Ísland að umtalsefni og einn þeirra er Styrmir Gunnarsson, einn hatrammasti andstæðingur ESB hér á landi. Á góðu og gildu sjómannamáli brýnir Styrmir "sína menn" og í pistli á Evrópuvaktinni segir hann:
"Stuðningsmenn aðildar Íslands að Evrópusambandinu voru í gær að endurskipuleggja samtök sín. Það bendir til að þeir meti það svo, að þeir hafi ekki náð nægilegum árangri með starfsemi þeirra samtaka, sem fyrir voru. En jafnframt er það hvatning til andstæðinga aðildar um að herða róðurinn af sinni hálfu.
Eitt af því neikvæða, sem fylgt hefur aðildarumsókn Íslands er sú sundrung í íslenzku samfélagi, sem hún hefur leitt af sér."
Ályktun Styrmis um að nægilegum árangri hafi ekki verið náð og að það stýri m.a. tilurð samtakanna, verður hinsvegar að skoðast sem röng.
Skoðanir almennings á jafn stóru máli og ESB-málinu sveiflast, það er eðililegt, jafnvel eftir að lönd hafa gengið í sambandið.
Tal Styrmis um sundrungu er sérkennilegt. Á lýðveldistímanum hafa komið upp nokkur verulega stór mál, sem deilt hefur verið um, en samkvæmt leikreglum lýðræðisins. Nægir að nefna NATO-málið og EES-samninginn á sínum tíma. ESB-málið er elíkt mál.
Það er hinsvegar mjög mikilvægt að geta rætt málið, samkvæmt leikreglum lýðræðisins og afgreiða það samkvæmt þeim, þegar þar að kemur, í þjóðaratkvæðagreiðslu, eftir að lokið er við samningaviðræður við ESB!
Styrmir er einn dyggasti stuðningsmaður þess að fjölga þjóðaratkvæðagreiðslum, þannig að þetta hlýtur að vera honum að skapi.
Já-Ísland er einmitt sett á fót til þess að stuðla að málefnalegri umræðu um þetta mikilvæga mál, ESB-málið!
Í frétt í Fréttablaðinu í dag segir:
"Evrópusamtökin, Evrópuvakt Samfylkingarinnar, Sjálfstæðir Evrópumenn, Sterkara Ísland og Ungir Evrópusinnar standa að baki verkefninu.
Jón Steindór Valdimarsson, formaður Sterkara Íslands, sagði að góð stemning hefði verið á fundinum og mikill hugur í fólki.
Hann kvíðir ekki framhaldinu þó að kannanir sýni að meirihluti sé andvígur ESB-aðild.
"Við trúum því að það þurfi að ræða málin og fara yfir staðreyndirnar til að fólk geti tekið meðvitaða ákvörðun. Ég er sannfærður um að fleiri munu segja já en nei, en hver gerir auðvitað upp sinn hug í kjörklefanum."
Einmitt, Jón Steindór er að tala um lýðræði!
16.2.2011 | 19:52
Áhugavert Evrópuyfirlit framsóknarmanns!
Eins og menn hafa tekið eftir er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mjög upptekinn af Icesave, það er hans hjartans mál.
Hallur Magnússon, annar framsóknarmnaður, vekur hinsvegar athygli á því á bloggi sínu að Framsóknarflokkurinn hefur unnið mikið starf í Evrópumálun.
Í áhugaverðri færslu sinni byrjar Hallur svona: "Framsóknarflokkurinn var um langt árabil faglegasti stjórnmálaflokkurinn þegar unnið var í stefnumótun um aðildarumsókn eða aðildarumsókn ekki að ESB. Framsóknarflokkurinn vann undirbúning Evrópustefnu sinnar á árabilinu 2001 til 2009 afar faglega.
Í kjölfar afar vandaðrar greiningarvinnu Framsóknarflokksins í aðdraganda flokksþings árið 2005 var ljóst að klár meirihluti Framsóknarmanna vildu skoða aðildarumsókn að Evrópusambandinu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
En vegna hatrammrar baráttu stækra andstæðinga Evrópusambandsins gegn því að aðildarumsókn að Evrópusambandinu yrði skoðuð gáfu stuðningsmenn mögulegrar aðildarumsóknar eftir. Flestir þeirra mátu mikilvægara að halda flokknum saman og fresta ákvörðun um aðildarumsókn eða aðildarumsókn ekki að sinni.
Enda börðust meðal annars áhrifamiklir ráðherrar og fyrrverandi ráðherrar með kjafti og klóm gegn meirihlutaskoðun flokksþingsfulltrúa í Evrópumálum. Þar gerði tilfinningaríkt innlegg hins ástsæla leiðtoga Framsóknarmanna, Steingríms Hermannssonar heitins, gegn aðildarumsókn að Evrópusambandinu gæfumuninn.
Fylgjendur aðildarumsóknar að Evrópusambandinu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum drógu sig í hlé í anda samvinnu og frjálslyndis til að koma í veg fyrir alvarlega sundrung flokksins. Andstæðingar aðildarumsóknar unnu fullan sigur þótt færri væru.
Afleiðingar þessa varð sú að fjölmargir góðir samvinnumenn og frjálslyndir miðjumenn hættu þátttöku í starfi Framsóknarflokksins og sumir sögðu sig alfarið úr flokknum."
Lesið alla færslu Halls hér, en eiginlega er um að ræða sögulegt Evrópuyfirlit Evrópusinnaðs framsóknarmanns!
15.2.2011 | 22:33
Já-Ísland vekur athygli
Sjósetning Já-Ísland hefur vakið athygli og Stöð tvö var með frétt um málið, sem og RÚV Á Eyjunni er einnig frétt, með "kommentum."
ES-bloggið hvetur alla áhugamenn um Evrópumál að skrá sig, það er hægt að gera á heimasíðunni www.jaisland.is
Sameinumst í þessu mikilvæga máli!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.2.2011 | 16:54
Inga Dís Richter á Sprengisandi um ESB og landbúnaðarmál
Einn af gestum Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandur, var Inga Dís Richter og þar ræddi hún um ESB og landbúnaðarmál. Inga hefur kynnt sér þetta sérstaklega vel og sér í lagi Finnland.
M.a. segir hún að ferðaþjónusta bænda hafi eflst og fjölbreytni hafi aukist í störfum innan landbúnaðargeirans. Inga segir að Finnar hafi verið mjög duglegir að undirbúa sig varðandi aðild.
Helstu gallar segir Inga Dís vera meira skrifræði, en að það eigi líka við um íslenska kerfið.
Hlustið hér og ritgerð Ingu Dísar má lesa hér
Spjallið var einkar áhugavert!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.2.2011 | 16:46
MBL: Rýnivinna vegna ESB hálfnuð
MBL segir frá því í dag að svokölluð rýnivinna vegna ESB-samningaferlisins sé hálfnuð: "Íslendingar og Evrópusambandið eru um það bil hálfnuð í rýnivinnu sem gengur út á að skilgreina muninn á íslenskri löggjöf og þeirri evrópsku fyrir aðildarviðræður. Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands, segir að þeirri vinnu gæti lokið í júní.
Samningskaflar ESB eru 33 en í tíu þeirra hafa Íslendingar þegar tekið upp alla löggjöf sambandsins í gegnum EES-samninginn. Sagði Stefán Haukur á opnum fundi í Háskólanum í Reykjavík í dag að jafnvel verði hægt að ljúka þeim köflum strax í vor."
Þetta eru góðar fréttir!
15.2.2011 | 15:40
Krónan veikist - enn meira?
Á vef Vísis stendur: "Þó nokkur veiking hefur orðið á gengi krónunnar það sem af er ári. Nú stendur gengisvísitala krónunnar í 214 stigum en um síðustu áramót stóð vísitalan í 207 stigum. Þessa þróun má rekja til nánast allra undirliggjandi mynta sem þarna koma við sögu, en þar spilar þróun á gengi krónunnar gagnvart evru stærsta hlutverkið.
Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þannig vegur evran um helming vísitölunnar þegar tekið er tillit til þeirra gjaldmiðla, eins og dönsku krónunnar og litháensku litas, sem eru festir við gengi evru.
Nú kostar evran rétt tæpar 159 krónur en um síðustu áramót var hún á rétt rúmar 153 krónur. Jafngildir þetta veikingu krónunnar gagnvart evru upp á tæp 4%."
Til "gamans":
Evra - 5 ára sveifla
Dollar-10 ár
(Skjáskot af www.M5.is)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2011 | 13:52
Nýtt afl í Evrópumálum - JÁ ÍSLAND!
Nýju afli í Evrópumálum, JÁ-Ísland, var rennt úr vör í Þjóðmenningarhúsinu í hádeginu í dag, að viðstöddu fjölmenni.
Á nýrri heimasíðu, www.jaisland.is segir:
"Já Ísland á rætur sínar að rekja til undirskriftasöfnunar sem hleypt var af stokkunum vorið 2009 undir kjörorðinu Við erum sammála og hafði þann tilgang að sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu. Um 15.000 manns rituðu undir áskorunina og takmarkið náðist þegar Ísland sótti um aðild í júlí 2009. Það fólk sem stóð að baki því átaki stofnaði með sér félagsskap sem heitir Sterkara Ísland - þjóð meðal þjóða.
Já Ísland er sameiginlegt verkefni og vettvangur Evrópusamtakanna, Evrópuvaktar Samfylkingarinnar, Sjálfstæðra Evrópumanna, Sterkara Íslands og Ungra Evrópusinna.
Já Ísland er sameiginlegur vettvangur Evrópusinna, einstaklinga og samtaka. Það er samfélag þeirra sem vilja vinna að aðild Íslands að Evrópusambandinu með því að stuðla að hagstæðum aðildarsamningi og upplýstri og öfgalausri umræðu um aðildina.
Tíu leiðarstef sem Já Ísland hefur sett sér varðandi umræðuna um aðild Íslands að ESB:
við beitum staðreyndum og rökræðu
við blöndum okkur ekki í dægurpólitík
við erum upplýsandi og sanngjörn
við forðumst gífuryrði
við forðumst þrætubókarlist og kappræðu
við höfum gaman að því sem gerum
við notum einföld en skýr skilaboð
við tölum við fólk en ekki til þess
við virðum skoðanir hver annars
við viljum að Ísland sem rísi undir nafni sem þjóð meðal þjóðaÞeir einstaklingar sem styðja Já Ísland hafa margar og ólíkar skoðanir en eru sammála um að framtíð okkar Íslendinga sé betur borgið í samfélagi þjóðanna innan Evrópusambandsins en utan þess. Hver um sig er sammála á eigin forsendum og hefur fyrir því sínar ástæður og rök.
Já Ísland byggir tilveru sína á virkni stuðningsmanna og frjálsum fjárframlögum.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður, opnaði fundinn með stuttu erindi og síðar tóku fleiri til máls og ræddu Evrópumál á breiðum grundvelli.
Í lok fundarins sagði Jón Steindór Valdimarsson m.a.
Við náum ekki árangri nema vinna vel saman og leggjast öll á eitt um vandaða umræðu og miðlun upplýsinga. Við verðum öll að leggja okkar af mörkum til þess að íslensk þjóð fái notið þeirra sjálfsögðu mannréttinda að taka upplýsta ákvörðun um gríðarstórt hagsmunamál. Upplýsta ákvörðun um framtíðarheill. Upplýsta ákvörðun sem byggist á hlutlægni en ekki hleypidómum.˝
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2011 | 17:04
Félag atvinnurekenda: Tvöfalt fleiri fylgjandi aðildarviðræðum en á móti - krónunni fylgir óstöðugleiki
Í Fréttablaðinu í dag kemur fram: "Meirihluti félagsmanna í Félagi atvinnurekenda er fylgjandi aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið (ESB) og mikill minnihluti telur krónuna vera framtíðargjaldmiðil fyrir Ísland.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun sem félagið gerði meðal félagsmanna sinna í síðasta mánuði. 140 fengu könnunina senda og 77 svöruðu.
Þegar spurt er hvort krónan sé framtíðargjaldmiðill fyrir Ísland segjast 63 prósent svarenda vera því ósammála eða mjög ósammála. Fjórðungur er hlutlaus og einungis tólf prósent segjast sammála eða mjög sammála.
Þegar kemur að ESB-viðræðunum segjast 58 prósent fylgjandi og 28 prósent andvíg. Varðandi inngöngu í ESB sagðist 41 prósent andvígt en 34 prósent fylgjandi á meðan fjórðungur tók ekki afstöðu."
Fram kemur í fréttinni að menn telja mikinn óstöðugleika fylgja íslensku krónunni og að þetta sé ákall eftir stöðugleika."Flest fyrirtækin eiga mikil viðskipti við útlönd og svo lítill og ótrúverðugur gjaldmiðill gerir stöðuna flóknari," er haft eftir Almari Guðmundssyni, framkvæmdastjóra félagsins.
Í lokin segir: "Varðandi ESB aðild segir Almar að menn sjái það sem ákveðna lausn á fyrrgreindu máli."
"Menn eru í raun að segja að það séu of margar breytur hér á fleygiferð," segir Almar við Fréttablaðið.
12.2.2011 | 10:40
Timo Summa: Undantekningalaust góða vinna í ESB-málinu
Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við sendiherra ESB á Íslandi, Timo Summa. Þar kemur margt áhugavert fram og í byrjun þess segir:
"Nú er rýniferlið næstum hálfnað og á að vera að baki í júní. Hvernig hefur þetta gengið hingað til?
Ég held að þetta hafi gengið mjög vel. Vinnuáætlunin sem við gerðum fyrir sjö til átta mánuðum hefur haldið fullkomlega, sem eru góðar fréttir. Við bjuggumst við hágæða vinnubrögðum frá Íslendingum en það kom okkur samt á óvart hvað þetta hefur gengið vel. Allir sérfræðingar og öll ráðuneytin, án undantekninga, hafa skilað góðri vinnu. Það er undravert hversu vel hin litla og fjárhagslega aðþrengda íslenska stjórnsýsla hefur staðið sig í umsóknarferlinu, andrúmsloftið hefur verið gott og þetta hefur verið mikill gagnkvæmur lærdómur. Ekkert óvænt hefur komið upp á og við höldum að framhaldið muni ganga vel líka. Næsta skref í þessu er að íslensk stjórnvöld kynni samningsmarkmið sín í hverjum málaflokki fyrir sig."
Þetta er athyglisvert, sérstaklega í ljós þess að NEI-sinnar hafa hamrað á því í röksemdafærslu sinni fyrir því að draga umsóknina til baka, að stjórnsýslan réði ekki við málið!
Af ummælum Timo má ljóst vera að allt annað er uppi á teningnum!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2011 | 10:12
FRBL: Um 60% vilja annan gjaldmiðil en krónuna - könnun Viðskiptaráðs
Í Fréttablaðinu í dag er vitnað í könnun um gjaldmiðilsmál á vegum Viðskiptaráðs og í fréttinni segir:
"Rétt rúm sextíu prósent forsvarsmanna um fjögur hundruð fyrirtækja telja annan gjaldmiðil en íslensku krónuna þjóna best hagsmunum viðskiptalífsins, samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar Viðskiptaráðs. Tæpur fjórðungur þátttakenda í könnuninni, 24 prósent, telur krónuna gegna hlutverkinu vel.
Í könnuninni var ekki spurt hvaða gjaldmiðill þátttakendur töldu þjóna hagsmunum landsins betur en krónan.
Mestur stuðningur við annan gjaldmiðil er í þjónustu- og orkugeiranum og í smásölu en langminnstur í fiskvinnslu og útgerð."
Hinsvegar er það staðreynd að fjölmörg (og mörg stærstu) útgerðarfyrirtækin hér á landi gera upp reikninga sína í Evrum! Þetta er af vefsíðu HB Granda:
"Uppgjör í evrum
HB Grandi birtir nú uppgjör sitt í fyrsta sinn í evrum. Slíkt uppgjör gefur betri mynd af afkomu og stöðu félagsins en uppgjör í íslenskum krónum, þar sem stærstur hluti tekna er í evrum, sem og stór hluti gjalda. Þá hefur evran mest vægi í samsetningu eigna og skulda og þar með eigin fé. Til samanburðar hefur ársreikningur ársins 2007 verið umreiknaður í evrur miðað við lokagengi þess árs."
Ekki er sagt í könnun Viðskiptaráðs í hvaða gjaldmiðil eða gjaldmiðla menn eru að tala um eða velta fyrir sér í stað krónunnar.
Í fréttinni kemur fram að sú óvissa sem tengist krónunni sé eitt helsta vandamálið.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2011 | 09:56
Mögnuð orðræða!
Viljum vekja athygli lesenda okkar á einstaklega fagmannlegri og málefnalegri umræðu (!!!) um Evrópumál á bloggi Gunnars Rögnvaldssonar, en skrif hans hafa m.a. ratað á síður Morgunblaðsins:
"Hæstvirtur þöngulhaus Össur Skarphéðinsson er orðinn vanur maður. SPORÐUR hlutabréfabrask hans leiddi til þeirrar innri ályktunar að halda mætti útrápinu áfram en nú á nýjum forsendum. Við látum einhvern annan borga fyrir okkur áfram. Eftir að við höfum tæmt allt hér heima þá sækjum peningana í vasa 27 þjóða Evrópusambandsins, hugsar þöngulhausinn. Hann heldur eins og allir nassarar halda að enginn borgi en allir fái greitt. Allt sé ókeypis. Þannig virkar höfuðvíravirki utanríkisráðherrans. Við skulum ekki minnast á tómið í höfði forsætisráðherraínunnar."
Það er alveg magnað hvað maðurinn leyfir sér.
Annars var hann að fjalla um það að hvorki Finnland né Svíþjóð hafi fengið peninga frá ESB á móti aðildargjöldum sínum. Gunnar lætur það náttúrlega líta út eins og það sé ESB að kenna.
Hinsvegar var verið að fjalla um þetta hjá Samtökum sænska atvinnulífsins um daginn og þar er aðalástæðan sögð vera sú að Svíar hafi ekki verið nógu duglegir að nýta sér þetta, sérstaklega eigendur smáfyrirtækja. Það er jú í þeirra höndum hvernig þeir nýta sér styrkjakerfi ESB, en ekki ESB.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2011 | 16:50
Munu Danir taka upp Evru? Lars Løkke Rasmussen opnar á nýja Evru-umræðu í Danmörku
Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Dana sagði í gær að Danir þyrtu ef til vill að taka upp Evru í framtíðinni og varpaði þar með nýjum bolta inn í Evru-umræðuna þar í landi. Rökin sem hann notaði eru meðal annars þau að danska krónan sé of lítil til þess að standast áhlaup spákaupmanna. Aukið samstarf Evru-ríkjanna er líka nefnt og Danir vilja ekki vera útundan.
Danska krónan hefur verið tengd við Evruna í mörg ár og virkar því í raun eins og Evran.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.2.2011 | 20:23
Bændur: Íslenskur landbúnaður þrífst ekki innan ESB án verndartolla - Jóhannes Gunnarsson: Má ekki horfa fram hjá hagsmunum íslenskra neytenda
Í frétt á www.visir.is segir: "Íslenskur landbúnaður getur ekki þrifist innan Evrópusambandsins án verndartolla að mati Bændasamtakanna sem vilja að Ísland fái undanþágu frá reglum sambandsins. Formaður neytendasamtakanna segir að óbreyttir tollar muni þurrka út ávinning neytenda af aðild.
Verslun með landbúnaðarvörur er án tolla á innri markaði Evrópusambandsins og því gæti matvöruverð lækkað umtalsvert við inngöngu íslands í sambandið. Það er að segja ef tollar verða felldir niður.
Bændasamtökin telja hins vegar mikilvægt að viðhalda verndartollum. Sérstaklega var minnst á þetta atriði á rýnifundum um landbúnaðarmál í Brussel í síðasta mánuði.
Við höfum gert það alveg skýrt að við krefjumst þess að það verði áfram heimilt að leggja tolla á búvörur, komi til þess að hér verði ESB aðild," segir Erna Bjarnadóttir, fulltrúi BÍ í samningahóp um landbúnað.
Finnar sóttu um svipað ákvæði þegar þeir gengu í Evrópusambandið en á það var ekki fallist. Finnskur landbúnaður er hins vegar skilgreindur sem heimskautalandbúnaður en það felur í sér ákveðna framleiðslustyrki eða niðurgreiðslu. Það eitt og sér að mati bændasamtakanna myndi ekki duga hér á landi."
Í fréttinni er einnig talað við Jóhannes Gunnarsson, formann Neytendasamtakanna, sem segir að bændur ættu ekki að hræðast samkeppni og að íslenskar landbúnaðarvöru hafi möguleika á að verða að lúxusvörum á evrópskum mörkuðum. Hann segir einnig að ekki megi ganga framhjá hagsmunum íslenskra neytenda í ESB-málinu, en talið er að matvælaverð geti lækkað umtalsvert hér á landi við aðild.
Ritstjórn ES-bloggins les það út úr þessari afstöðu bænda gagnvart ESB að hér sé í raun aðeins sett fram eitt atriði: Óbreytt ástand.
Öll fréttin og myndskeið úr sjónvarpsfréttum Stöðvar 2
Í grein sem Össur Skarphéðinsson birti á sínum tíma segir: "....mega hvorki forystumenn í stjórnmálum né bændasamtökum, og alls ekki bændur sjálfir, horfa framhjá möguleikum íslensks landbúnaðar. Íslenskir bændur framleiða frábærar afurðir, sem batna með ári hverju. Íslendingar munu alltaf halda tryggð við þær...En aðild gæti jafnframt skapað íslenskum bændum nýja og sterka möguleika á hágæðamörkuðum Evrópu. Margt er að breytast okkur í hag. Krafan um gæði og vænleika afurðanna með tilliti til umhverfis og heilbrigðis neytenda eykst stöðugt. Þar stendur íslenskur landbúnaður afar sterkt að vígi."
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Birtum hér mjög áhugavert Kastljós-viðtal við einn reyndasta embættismann ESB, Jean Claude-Piris, sem flutt var í síðustu viku. Hann lætur nú af störfum eftir 23 ára starf hjá sambandinu.
Sjón er sögu ríkari!
(Mynd: Skjáskot frá RÚV)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir