27.11.2012 | 18:49
Göran Persson: Evran lifir ekki bara af - heldur eflist hún!
Göran Persson, fyrrum forsætisráðherra Svía var staddur á Íslandi þann 27.11 og hélt fjölmennan fyrirlestur í hátíðarsal Háskóla Íslands. Sama dag birtist viðtal við hann í Morgunblaðinu og þar barst talið meðal annars að Evrunni. Grípum aðeins niður í viðtalið, þar sem blaðamaður spyr:
"- Svíar felldu fyrir áratug í þjóðaratkvæðagreiðslu að taka upp evru, þvert gegn þínum ráðum. Lifir evran hremmingar sínar af?
»Ekki nóg með það heldur á hún eftir að eflast enn. Það er ástæðulaust að halda að áætlunin stöðvist vegna þess að þótt sum evruríkin eigi við vanda að stríða hafa önnur hagnast á samstarfinu. Af hverju ætti Þýskaland að binda enda á það? Það hefur reynst Þjóðverjum ákaflega vel.
Evran mun eflast. Lettar hafa nú sótt um aðild og þá bætist Svíum annar granni sem ætlar að nota þennan gjaldmiðil. Danir hafa lengi fest gengi krónunnar við evruna og í fyrra festu Svisslendingar gengi frankans við evru, ekki vegna þess að frankinn væri of lágur, gengi hans var of hátt! Kannski horfa fleiri lítil ríki með opið efnahagskerfi fram á sams konar vanda, sömu áhættu og þeir.«
- Hvað með Ísland?
»Krónan varð á sínum tíma of sterk og það olli ykkur erfiðleikum. Gjaldmiðill getur orðið vandamál í sjálfu sér og þá verðið þið að gera eitthvað."
Svona rétt til að minna á: Ísland er með minnsta sjálfstæða gjaldmiðil í heimi í gjaldeyrishöftum.
27.11.2012 | 18:44
Árni Páll í Silfri Egils

Evrópumál | Breytt 2.12.2012 kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.11.2012 | 19:43
Góð þáttaka á námskeiði Endurmenntunar um ESB
Á vef Evrópustofu sagði þann 22. nóvember:
" Í gær hófst námskeið um ESB í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands, þar sem farið er yfir Evrópumálin á aðgengilegan og áhugaverðan hátt út frá sjónarhóli Íslands.
64 einstaklingar skráðu sig á námskeiðið sem skiptist í þrjá hluta en áhugasamir geta enn skráð þátttöku sína.
Í fyrsta hlutanum var fjallað um Evrópusambandið sjálft, sögu þess og helstu stofnanir og hvernig ákvarðanir eru teknar innan sambandsins. Þá var staða smáríkja innan sambandsins sérstaklega skoðuð og hvernig aðkoma Íslands yrði að stofnunum og ákvarðanaferlinu innan sambandsins. 


Í næstu viku verður fjallað um aðildarumsókn Íslands og samningaviðræðurnar og hvernig það ferli gengur fyrir sig. Þá er farið yfir samninga annarra ríkja og farið yfir hvernig það ferli hefur gengið fyrir sig."
Fjölmargir Íslendingar vilja fræðast um ESB, það er alveg á hreinu!
26.11.2012 | 13:32
Já Ísland: Jólagleði á fimmtudaginn
Kæru félagar, vinir og velunnarar Já Ísland.
Þann 29. nóvember n.k. verður árleg jólagleði okkar haldin á Kaffi Reykjavík, Vesturgötu 2, 101 Reykjavík. Gleðin hefst klukkan 19.00 og mun standa fram eftir kvöldi. Dagskráin er hin glæsilegasta og veitingarnar ekki síðri. Boðið verður upp á jólalegt smurbrauð og jólalegt öl.
Dagskrá jólagleðinnar:
19.00 Mæting á Kaffi Reykjavík
19.30 Matur borinn fram
20.00 JólaPubQuiz með Semu Erlu
21.00 ESB uppistand með Berg Ebba
21.30 Bestu Jólalögin í flutningi Svavars Knúts
22.00 Evrópugleði fram eftir kvöldi
Veislustjóri er Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, leikkona
Aðgangseyrir eru 2000 kr. sem greiðast við innganginn. Við biðjum ykkur að skrá ykkur hið fyrsta með því að senda póst á jaisland@jaisland.is eða í síðasta lagi fyrir 27. nóvember.
25.11.2012 | 13:38
Hrafn Jökulsson í Viðskiptablaðinu:Þjóðin á það skilið
"Í sextán ár hafa Íslendingar þrefað um Evrópusambandið, þar af fóru nokkur ár í að ræða sérstaklega hvort málið væri á dagskrá.
Nú eru sextán ár síðan Alþýðuflokkurinn gerði aðildarumsókn að ESB að kosningamáli. Þetta var 1995 og Alþýðuflokkurinn var ekki beinlínis í aðstöðu til að marka stefnu í einu eða neinu lúskraður og lemstraður eftir að heilög Jóhanna hoppaði frá borði og stofnaði Þjóðvaka sáluga. Þar að auki tók Alþýðuflokkurinn út óvinsældir fyrstu ríkisstjórnar Davíðs (hlutskipti Framsóknar síðar) og hafði ofan í allt saman komist ítrekað í fréttir fyrir spillingarmál. Enda galt Alþýðuflokkurinn afhroð í kosningunum ´95 og var senn úr sögunni."
Þannig byrjar pistill efti Hrafn Jökulsson, sem hann ritar í Viðskiptablaðið, (www.vb.is) og heldur svo áfram:
"Í sextán ár hafa Íslendingar þrefað um Evrópusambandið, þar af fóru nokkur ár í að ræða sérstaklega hvort málið væri á dagskrá eða ekki. Davíð gaf eftirminnilega yfirlýsingu um að aldrei skyldi Ísland inn í þann arma klúbb, gott ef hann lagði ekki geðheilsu sína að veði.
Mánudagurinn 27. júní 2011 var því sögulegur dagur: Formlegar viðræður hafnar við Evrópusambandið og stefnt að niðurstöðu sem fyrst. Það hillir undir að Íslendingar geti loksins, loksins afgreitt rifrildi sem staðið hefur í sextán ár, rifrildi sem hefur einkennst af því að fæstir vita hvað verið er að tala um. Jafnvel harðsvíruðustu andstæðingar ESB ættu að fagna."
Lokaorð Hrafns eru meðal annars þess:
"Þjóðin á það skilið að þetta mál verði til lykta leitt, svo við þurfum ekki að þrasa í önnur sextán ár um hver niðurstaðan af aðildarumræðum hefði orðið. Þjóðin á líka skilið að allir sama hvað þeim finnst um ESB standi saman til að sem best niðurstaða fáist. Þá, en ekki fyrr, getum við öll tekið upplýsta ákvörðun um já eða nei."
(Mynd: Eyjafréttir)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.11.2012 | 13:18
Göran Persson: Heimur á krossgötum, evrópskar áskoranir og tækifæri Íslands
"Heimur á krossgötum, evrópskar áskoranir og tækifæri Íslands," er yfirskriftin á fyrirlestri sem einn farsælasti forsætisráðherra Svíþjóðar, Göran Persson, mun flytja í hátíðarsal H.Í næstkomandi þriðjudag, 27.11, kl. milli 12-12.
Göran Persson var bæði menntamálaráðherra og fjármálaráðherra áður en hann varð forsætsráðherra árið 1996, sem hann var til 2006. Þá töpuðu jafnaðarmenn völdum í hendur borgaralegrar stjórnar, sem enn situr við völd.
Allir velkomnir.
24.11.2012 | 18:33
Að gefnu tilefni....
...taka stjórnendur þessa bloggs sér það leyfi að hylja athugasemdir sem fara yfir almenn velsæmismörk.
Í guðana bænum; reynum að halda okkur Á MOTTUNNI
24.11.2012 | 09:47
Verðum að bregðast við breytingum á norðurslóðum
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, stjórnarmaður í Evrópusamtökunum, skrifaði grein um málefni norðurslóða á vef samtakanna Já Ísland. Greinin birtist hér með leyfi höfundar.
--------------
Séu orðin Kínverjar og Grænland slegin inn í hina margfrægu leitarvél Google koma upp fyrirsagnir á borð við Kínverjar seilast til áhrifa á Grænlandi, Kínverjar með augastað á Grænlandi eða Kínverjar vilja hraða námuvinnslu sinni á Grænlandi. Í frétt um hið síðastnefnda segir: Fjölmenn kínversk sendinefnd með auðlindaráðherra landsins í broddi fylkingar er nú stödd á Grænlandi. Þar ræða Kínverjarnir við grænlenska ráðamenn um starfsemi kínverskra námufyrirtækja í landinu en þeir vilja hraða framkvæmdum við ýmis námuverkefni.
Fimm kínversk námufyrirtæki hafa sótt um vinnsluleyfi á Grænlandi en þar ætla þau m.a. að vinna járn, gull, blý, kopar og sjaldgæfa jarðmálma.
Ekki eru allir Grænlendingar hrifnir af Kínverjunum og þannig hefur dregist verulega að eitt af námufyrirtækjunum hefjist handa við stærstu járnnámu sem fundist hefur á Grænlandi. (FRBL/Vísir.is, 27.apríl 2012).
En hvers vegna eru Kínverjar komnir alla leiðina til Grænlands? Jú, hin gríðarstóra kínverska efnhagsmaskína þarf hráefni og það er nánast sama hvar þau er að finna, Kínverjar sækja þau, hvert á land sem er. Sama hvort um er að ræða Angóla eða Grænland.
Síðan þarf að flytja allt heila klabbið og þar kemur Atlanshafið og Norðurslóðir til sögunnar. Svæðið norður af Íslandi er að verða heit kartafla í strategískum skilningi. Með opnun siglingaleiða í gegnum Norðurpólinn mun hafsvæðið í kringum Ísland gerbreyta um karakter ef þannig má að orði komast. Siglingar munu að öllum líkindum stóraukast, stór og gríðarlega öflug skip munu fara þar í gegn á leið frá Evrópu til Asíu og öfugt, að ógleymdum Bandaríkjunum.
Í skýrslu sem utanríkismálaskrifstofa ESB gaf út í lok júni á þessu ári segir að í kringum árið 2050 verði opið í gegnum norðurskautið, að minnsta kosti að sumri til. Þar kemur einnig fram að árin 2005-2010 hafi verið þau fimm heitustu á þessu svæði.
Greinilegt er að innan ESB taka menn þessi mál mjög alvarlega og í skýrslunni segir að um sé að ræða gríðarlega viðkvæmt svæði, þar sem búi um fjórar milljónir manna, þar af svokallaðir frumbyggjastofnar.
Í skýrslunni segir einnig að ESB hafi breytt forgangsröðun vegna þessara mála, til að meðal annars takast á við áskoranir á sviði umhverfisbreytinga, orkumála, fæðuöryggis og lýðfræðilegra breytinga. Stuðla á að auknum rannsóknum til þess að afla upplýsinga, svo hægt verði að vanda ákvarðanatöku.
En hvað með Ísland? Hvernig er Ísland í stakk búið til að takast á við áskoranir, sem eru e.t.v. nokkra áratugi fram í tímann? Ef við leyfum okkur að hugsa nokkra áratugi fram í tímann (eins og sagt er að Kínverjar geri!) eru þá til einhverjar hugmyndir um það, jafnvel áætlanir, hvernig þessi 320.000 manna þjóð (árið 2012) ætlar að taka á þessu stóra verkefni?
Alþingi Íslendinga samþykkti í mars í fyrra þingályktun um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða.
Í henni er rætt um að efla og styrkja Norðurskautsráðið, tryggja stöðu Íslands sem strandríkis, að efla skilning á hugtakinu norðurslóðir, byggja á hafréttarsáttmálum Sameinuðu þjóðanna, styrkja samstarf við Grænland og Færeyjar (er Kína inni í því þá?), styðja réttindi frumbyggja, vinna gegn loftslagsbreytingum, gæta öryggishagsmuna, að auka þekkingu og innlent samráð um málefni norðurslóða og svo framvegis.
Það er gott að Ísland sé búið að mynda sér stefnu. Þó hún sé ekki nema 12 atriði. Mjór er margs vísir, segir jú máltækið.
En það sem er vert að velta fyrir sér, er það hvort landið hafi efnhagslega burði til þess að framkvæma og innleiða þessa stefnu?
Væri e.t.v. betra að sækjast eftir auknu samstarfi við ESB á þessu sviði og þannig verða aðili að öflugasta starfi á þessu sviði á heimsvísu? ESB er öflugasti aðilinn á heimsvísu, sem berst gegn loftslagsbreytingum. Þær eru viðurkenndar sem staðreynd þar á bæ, en ekki dregnar í efa, eins og t.d. af áhrifmiklum mönnum í Bandaríkjunum.
Í skýrslunni sem vitnað er í hér að fram segir að ESB sé reiðubúið að auka samstarf við þá aðila sem málið snertir.
Fari svo að Ísland verði aðili að ESB, er hér að mínu mati komið eitt sviðið, þar sem Ísland gæti leikið lykilhlutverk í framtíðinni. Í góðu samstarfi við aðrar þjóðir sem málið snertir. Hitt er sjávarútvegur, verndun og skynsamleg nýting fiskistofna. Um það verður ekki rætt frekar í þessari grein.
Hvort tveggja eru þetta hinsvegar atriði sem skipta eyjuna úti í miðju Atlantshafi gríðarlegu máli. Breytingarnar eru að gerast og við verðum að bregðast við þeim. Of seint í rassinn gripið, verður einfaldlega of seint í rassinn gripið! Látum það ekki henda okkur. Hugsum langt fram í tímann, að hætti Kínverja
23.11.2012 | 20:19
Fengitími!
Það má varla á milli sjá hvort er meira bændablað, Morgunblaðið eða Bændablaðið. Um síðustu helgi var heil opna í Morgunblaðinu helguð hrútum og á undan umfjölluninni var heillar opnu auglýsing um mjólkurvörur frá MS.
Í "hrútaúttekt" Morgunblaðsins var fjallað m.a. um Stakk frá Kirkjubóli, Blakk frá Álftavatni og Kjark frá Ytri-skógum. Aðalgreinin fjallaði samt um að hrútar landsins, eiga nú "annatíma fyrir höndum" skv. Morgunblaðinu - fengitíminn er s.s. að fara í hönd og þá er hamagangur í öskjunni hjá hrútum landsins!
Og þetta þarf hinn borgaralegi fjölmiðill, Morgunblaðið, að sjálfsögðu að taka fyrir og fjalla um, með næstum vísindalegri nákvæmni.
Eiginkona ritara, rak augun í þetta einn morguninn og trúði vart sínum eigin augum: "Hvað kom fyrir Morgunblaðið," sagði hún og var næstum búin að hella öllum kaffibollanum yfir sig!
En upphaflega átti þessi færsla ekki að fjalla um þetta, heldur geðslag bænda, sem gengu víst á á dyr á fundi með samninganefnd Íslands gagnvart ESB um landbúnaðarmál. Skyndilegt brotthvarf bænda átti sér stað þegar upplýst var á fundinum að ekki yrði farið eftir kröfu Bændasamtakanna varðandi tollamál, eða eins og segir í frétt á vef Neytendasamtakanna, sem bændablaðið, afsakið Morgunblaðið segir frá og tekur beint úr frétt Neytendasamtakanna:
"Nýlega gengu fulltrúar bænda út af fundi starfshóps sem er að móta samningsafstöðu Íslands í aðildarviðræðum við ESB um landbúnaðarmál. Ástæðan er sú að formaður starfshópsins upplýsti að í samningsafstöðu Íslands verði ekki krafist áframhaldandi tollverndar fyrir landbúnaðarvörur frá ESB-löndum." (Gæsalappir vantar í frétt Morgunblaðsins)
Þetta kallast á mannamáli að fara í fýlu.
Við þessari umfjöllun Neytendasamtakanna (sem eru bara segja að frá staðreyndum) bregst einn helsti forsprakki Nei-sinna með því að stimpla samtökin sem "deild í Samfylkingunni" og fær þar með útrás fyrir botnlausa vanþóknun og jafnvel hatur sitt á Samfylkingunni. Eru Nei-samtök Íslands meira á móti ESB eða Samfylkingunni. Það má vart á milli sjá!
Bændur fara í fýlu og það er hrútalykt af Morgunblaðinu. Það er margt skrýtið í henni veröld!
23.11.2012 | 15:53
Límingarnar að fara vegna ESB?
Sumir eru hreinlega alveg að fara á límingunum yfir ESB-málinu og minnir þetta æ meira á einhverja gamaldags "kaldastríðsparanoju" (afsakið slettuna).
Í kostulegri frétt sem birtist á Smugunni krefst Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokks Framsóknar, að hreinsað verði til í ákveðinni háskólastofnun!
Æi, hvað þetta er eitthvað brjóstumkennanlegt.
"Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, krafðist þess á Alþingi í morgun að þrír einstaklingar segðu sig úr stjórn Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Ástæðuna sagði Gunnar vera þá að þeir ynnu að inngöngu Íslands í ESB.
Gunnar tók til máls á Alþingi undir liðnum umræður um störf þingsins. Hann að nýlega hefðu samtök með heitinu Þjóðráð sóst eftir því að halda málþing með Alþjóðastofnun háskólans, en því hefði verið hafnað."
Hvað næst? Ritskoðun? Maður bara spyr!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2012 | 15:01
Elliglöp eða "réttar útgáfur" af sannleikanum?
Stundum virðist vera svolítið erfitt fyrir suma fjölmiðla að fara algerlega satt og rétt með, þó það sé í sjálfu sér skylda (allavegana) alvöru fjölmiðla. Virðist þetta sér í lagi eiga við umfjöllun um Evrópumál.
Á Evrópuvefnum er athygLisverð spurning frá formanni Evrópusamtakanna, Andrési Péturssyni um frétt sem birtist í Morgunblaðinu fyrir skömmu:
"Í Morgunblaðinu birtist nýlega frétt um að Evrópusambandið hefði bannað ensku fyrirtæki að greiða hærra tímakaup en lágmarkslaun. Er þetta rétt?"
Í svari Evrópuvefisins segir:
"Eftir því sem Evrópuvefurinn kemst næst er frétt Morgunblaðsins að mestu rétt. Á hinn bóginn er ekki alveg rétt farið með efni hennar í spurningunni hér að ofan. Þannig hafa engar fréttir verið sagðar af því að Evrópusambandið hafi bannað ensku fyrirtæki að greiða hærra tímakaup en lágmarkslaun heldur hafi bresk stjórnvöld varað við því að hugsanlega brjóti það í bága við löggjöf Evrópusambandsins að setja sem skilyrði í samninga um opinber innkaup að fyrirtæki borgi starfsmönnum sínum það sem kallað er lífvænleg laun.
***
Í spurningunni hér að ofan er vísað til fréttar sem birtist á vefsíðunni Mbl.is þann 5. nóvember síðastliðinn undir fyrirsögninni Hærri laun hugsanlega lögbrot. Fréttin hefst á þessum orðum:
Bresk stjórnvöld hafa varað Boris Johnson, borgarstjóra London, við því að stefna hans að greiða starfsmönnum borgarinnar laun í samræmi við það sem teljist mannsæmandi brjóti hugsanlega í bága við löggjöf Evrópusambandsins. Hafa þau lagt fram tvö lögfræðiálit þess efnis samkvæmt fréttavef Daily Telegraph.
Vísindavefurinn heldur svo áfram sínu svari:
Þetta er að mestu leyti í samræmi við það sem fram kemur í frétt á vefsíðu Daily Telegraph frá sama degi, að því undanskildu að í frétt Morgunblaðsins er öllu sleppt sem er ætlað að útskýra málavexti." (Leturbreyting ES-bloggið)
aha...."öllu sleppt sem ætlað er að útskýra málavexti" !
Þetta er klassískt bragð til villa um fyrir lesendum - skilja þá eftir með þá útgáfu af málinu sem Morgunblaðið vill koma á framfæri - segja bara hálfan sannleikann.
Morgunblaðið verður 100 ára gamalt á næsta ári - eru þetta elliglöp eða bara viljandi verið að gefa út "réttar útgáfur" af sannleikanum?
23.11.2012 | 08:46
Kolbeinn Árnason: Hyggjumst tryggja varanlega hagsmuni Íslands í málefnum sjávarútvegs
Í sérblaði um sjávarútveg, "Sóknarfæri" sem kom nýlega út, er fjallað um íslenskan sjávarútveg. Þar er m.a. að finna fróðlegt viðtal við Kolbein Árnason, sem er formaður samninganefndar um sjávarútvegsmál í aðildarviðræðum Íslands við ESB.
Í viðtalinu segir Kolbeinn að markmið með allri þeirri vinnu sem fram fer í sambandi við sjávarútvegsmálin miði að einu: ,,Að tryggja hagsmuni Íslands í sjávarútvegsmálum," segir Kolbeinn.
Nei-sinnar þessa lands hamast á því eins og rjúpan við staurinn að alls ekki sé hægt fyrir Ísland að fá neinar varanlegar undanþágur (á neinu sviði!) í samningaviðræðum við ESB.
Fyrrverandi ráðherra sjávarútvegsmál, Jón Bjarnason var sennilega rétt nýstiginn út af fundi um þessi mál í Brussel í vikunni, þegar hann sagði við Morgunblaðið, (sem berst hatrammlega gegn ESB-aðild) að Ísland gæti ekki fengið neinar undanþágur.
En hvað segir Kolbeinn um þetta mál í sérblaðinu um sjávarútveginn? Hann er spurður um það hvort Ísland geti fengið sérlausn í sjávarútvegsmálum:
,,Já, ég tel svo vera. Staðreyndin er sú að íslenska efnahagslögsagan liggur ekki að lögsögu neins ríkis inna ESB...Langstærstur hluti af okkar aflaverðmæti kemur úr staðbundnum stofnum sem aðeins eru innan íslenskrar lögsögu og við stýrum án aðkomu annarra."
Síðar segir Kolbeinn: "Í öðru lagi er staðreyndin líka sú að ESB hefur aldrei áður samið við land sem er nálægt því að vera jafnháð sjávarútvegi. Það skapar okkur sérstöðu sem við byggjum á í samningaviðæðunum."
Fram kemur í viðtalinu að 12% af landsframleiðslu Íslands kemur úr hafi, en aðeins 01% innan ESB! Hvaða hagsmuni hefði ESB af því að trufla þessa undirstöðugrein íslensks efnahagslífs? Nánst enga, er hægt að fullyrða. Þvert á móti hefur ESB sterka hagsmuni af því að lát okkur sjálfum eftir umönnun auðlindarinnar, í því erum við, Íslendingar sérfræðingarnir! Einnig er vert að minnast á það að ESB hefur grandskoðað íslenska kerfið með endurskoðun sjávarútvegskerfis ESB í huga (sú vinna stendur yfir). Þá kemur einnig fram að verði af aðild, verði Ísland stærsta sjávarútvegsríki ESB og að það sé einnig styrkur í samningaviræðunum.
Í lok viðtalsins undirstrikar Kolbeinn að aðildarsamningur sé ígildi grundvallarsáttmála ESB og hafi undanþágur fengist sé mjög erfitt að snúa þeim við. Það gerist t.d. aðeins með samþykki Íslendinga. ,,Því er mikilvægt að hagsmunir okkar séu tryggðir í þeim samningi. Okkar markmið er að tryggja varanlega hagsmuni Íslands í þessum viðræðum og það hyggjumst við gera," sagði Kolbeinn að lokum.
Þess má geta að í frétt á RÚV að loknum sama fundi og Jón Bjarnason var á sagði stækkunarstjóri ESB, Stefan Füle, að tími væri kominn fyrir Ísland að "sýna spilin" í sambandi við stærstu málaflokkana, en þar eru sjávarútvegsmálin, sennilega það stærsta.
En þau "spil" eru kannski einmitt þau sem Kolbeinn segir hér: "Að tryggja varanlega hagsmuni Íslands" á sviði sjávaútvegsmála. Þetta er stórt "spil" !
En Nei-sinnarnir berja höfðinu við steininn og garga í sífellu "engar undanþágur", "engar undanþágur" ! eins og í ævintýrinu um úlfinn vonda. Vangeta þeirra til málefnalegrar umræðu er sláandi!
Náist þau markmið sem Kolbeinn ræðir er það nánsat borðleggjandi að ENN FLEIRI SÓKNARFÆRI skapist á sviði íslenskra sjávarútvegsmála! Á það vilja hinsvegar örfáir innlendir aðilar loka dyrunum!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.11.2012 | 23:28
Smá upprifjun
Eitt sem er svo skemmtilegt við okkur manneskjurnar er að við getum rifjað upp hluti, notað minnið með virkum hætti. Þá er t.d. hægt að rifja þetta upp til gamans:
"Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, hvetja til þess í grein sem birt er í Fréttablaðinu í dag að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið og að ákvörðun um inngöngu verði undir þjóðaratkvæði."
Svo segir: "Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, hvetja til þess...að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið og að ákvörðun um inngöngu verði borin undir þjóðaratkvæði."
Þetta stóð s.s. í Morgunblaðinu þann 13. desember 2008.
Í fréttinni segir ennfremur að...."sú ákvörðunin megi þó ekki eingöngu snúast um gjaldmiðilsmál heldur þurfi að kanna málið frá öllum hliðum."
Þá kemur einnig fram að þeir Illugi og Bjarni ...."telji hins vegar að til lengri tíma muni krónan reynast Íslendingum fjötur um fót og að þær aðstæður sem skapast hafi kalli á að ráðist verði í aðildarviðræður og að í kjölfar þess taki þjóðin ákvörðun um málið."
En Bjarna var ekki stætt á þessari skoðun, sérstaklega í ljósi þess að ákveðnum stað er ákveðinn maður í ákveðnum stól, með ákveðnar skoðanir í þessu máli. Og þær bara passa alls ekki við skoðun Bjarna á þessum tíma. Og því fór kannski sem fór?
Ps. Annars er sjálf frétt MBL ákaflega hroðvirknislega unnin.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.11.2012 | 20:53
Óðinn í Viðskiptablaðinu um (meðal annars) gjaldmiðilsmál
Pistlahöfundurinn "Óðinn" á Viðskiptablaðinu skrifar þann 21.11 pistil um peningastefnu, fasteignabólur og fleira. Í pistlinum er að finna nokkra áhugaverða punkta um gjaldmiðillsmál, kíkjum á nokkra:
"Með gjaldeyrishöftunum er Ísland ekki lengur hluti af alþjóðlegri verkaskiptingu og öll fjárfesting og viðskipti eiga sér stað í gjaldmiðli sem er ekki skiptanlegur í alþjóðlegar myntir. Viðskiptaákvarðanir á Íslandi taka mið af arðsemi í íslenskum krónum en ekki framboði og eftirspurn á heimsmarkaði. Hagkerfið leitar því smám saman jafnvægis sem byggist á óskhyggju valdsmanna en fjarlægist efnahagslegan raunveruleika."
"Sjálfsblekkingin er þó ekki ný af nálinni í íslenskri hagstjórn heldur er hún eðli þeirrar peningamálastefnu sem hefur verið rekin stærstan hluta þess tíma sem við höfum haft sjálfstæða peningastefnu. Talsmenn fljótandi gengis halda því fram að Ísland geti unnið á móti hagsveiflum með því að láta gengið sveiflast eftir því hvernig árar í hagkerfinu. Reynslan hefur að vísu verið sú að sveiflur krónunnar hafa magnað upp hagsveiflur fremur en að milda þær, en ímyndum okkur að þetta væri hægt. Væri þetta þá jafn æskilegt og talsmenn fljótandi gjaldmiðils segja? Svarið er nei því hagkerfið er ekki ein eining heldur mörg mismunandi fyrirtæki. Með því að gengið sveiflast eftir meðaltalinu eða sterkustu atvinnugreininni þá bjagast hlutfallslegt verð í hagkerfinu í stað þess að þau fyrirtæki sem illa árar hjá lagi sig að breyttum kringumstæðum."
"Afleiðingin af fljótandi gengi og losaratökum í ríkisfjármálum hefur verið langvarandi verðbólga. Ef fyrsti áratugur þessarar aldar er skoðaður sést að peningamagn í umferð jókst langt umfram hagvöxt, hins vegar tókst að fela verðbólguna með því að gengi gjaldmiðilsins var spennt upp með háum vöxtum. Hátt gengi gjaldmiðilsins lækkaði innflutt vöruverð og kom þannig í veg fyrir að almenningur áttaði sig á því að það var verið að rýra verðgildi peninga hans."
21.11.2012 | 17:30
Ásmundur Einar úti að aka!
Þeir Andrés Pétursson (mynd), formaður Evrópusamtakanna og Ásmundur Einar Daðason, þingmaður og formaður samtaka Nei-sinna, mættust á Bylgjunni þann 20.nóvember og ræddu Evrópumálin (í síma-ekki stúdíósamtal).
Þar bar margt á góma, en tíminn var að sjálfsögðu of stuttur fyrir þetta mikilvæga mál, sem, Ásmundur Einar vill draga til baka.
Hann er nefnilega einn af þeim mönnum hér á landi sem vill taka af þjóðinni þann rétt að fá að kjósa um málið, að fá að kjósa um aðildarsamning, þegar hann liggur fyrir! Lýðræðisástin er mikil!
Samtal Andrésar og Ásmundar barst að EES-samningnum, sem Ísland er aðili að. Í honum felst að Ísland þarf að taka upp lög og reglur frá ESB, sem eiga við hér á landi. Ísland hefur hinsvegar ekkert um setningu þessara laga að segja.
Í viðtalinu fullyrti hinsvegar Ásmundur að Ísland gæti hæglega haft áhrif á setningu, án þess þó að útskýra það! Sem er nokkuð dæmigert fyrir málflutning Nei-sinna.
Ásmundur er hinsvegar alveg úti að aka í þessu - staðreyndin er sú að Ísland hefur hverfandi lítil áhrif á þetta. Ísland á engan rétt á setu á þeim fundum þar sem þessi lög eru samin, vegna þess að landið er ekki aðili að ESB.
Norðmenn gáfu nýlega út þykka skýrslu um EES-samninginn, þar sem ÞETTA ATRIÐI, er einmitt nefnt sem einn stór galli við EES-samninginn. Í frétt frá Aftenposten.no segir: "Norske politikere er ikke representert i de beslutningsprosessene som får direkte betydning for Norge....Norge har ingen mulighet til å påvirke EUs politikk."
Á íslensku þýðir þetta: Norskir stjórnmálamenn eru ekki með (fulltrúar) í þeim ákvörðunum sem hafa beina þýðingu fyrir Noreg....Noregur hefur enga möguleika til þess að hafa áhrif á stefnu ESB." Á fleiri stöðumí fréttinni er þetta undirstrikað enn frekar!
Veit Ásmundur Einar þetta ekki? Og hvernig ætlar hann þá að breyta þessu? Vill hann gera einhvern sér samning við bandalag sem hann er hvetja til að umsókn að verði dregin til baka? Eða vill hann kannski segja upp EES-samningnum, sem almennt samþykki er um að hafi gagnast landinu vel? En er með þennan "demókratíska" galla fyrir Ísland og hin EES-ríkin, Noreg og Lichtenstein.
Þetta er alveg með ólíkindum!
Það er nauðsynlegt að ræða ESB-málið af skynsemi, en ekki með einhverjum fullyrðingum, sem síðan standast bara ekki skoðun!
(Feitletrun: ES-bloggið)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir