9.8.2012 | 09:24
Evrópusamtökin í Staksteinum MBL
Evrópusamtökin eru bara þó nokkuð upp með sér! Ekki áttum við von á því að um okkur væri fjallað í hinum merka dálki Morgunblaðsins, Staksteinum, en svo bregðast krosstré sem önnur tré. Þetta gerðist þann 8.ágúst.
Staksteinar eru sá staður í Morgunblaðinu þar sem vitnað er í helstu öfgamenn þessa lands, sem teljast til andstæðinga ESB og svo er þetta náttúrlega sá staður blaðsins, sem einnig notaður er til almenns skítkasts!
Að sjálfsögðu notar ritari Staksteina tækifærið til þess að kasta smá skít í Evrópusamtökin og sakar þau meðal annars um að vera ófrumleg og að það mesta sem komi hér fram, komi frá einhverju Brussel-liði (sem ritari Staksteina sér náttúrlega rautt yfir!). Við hér á þessu bloggi erum t.d. svo "ófrumleg" að við leyfum umræður um mál þau sem borin eru hér á borð. Það er annað en samtök Nei-sinna, sem keyra sitt lokaða blogg og loka fyrir alla almenna umræðu.
Þau vilja nefnilega líka loka fyrir þann möguleika að landsmenn fái að kjósa um aðildarsamning að ESB, þegar hann liggur fyrir!
Því má hinsvegar bæta við þetta að langmest af því sem hér birtist er úr hinni íslensku ESB-umræðu og úr helstu fjölmiðlum þessa lands, þar á meðal Morgunblaðinu. Það getur þó verið að ritari Staksteina hafi ekki tekið eftir því, er kannski bara upptekinn við að kasta skít á einhverja aðra.
Þetta er allt hinsvegar tilkomið vegna smá hnútukasts vegna einhverra anti-ESB límmiða sem Nei-samtökin eru að selja bændum á niðursettu verði. Oft veltir lítil þúfa stóru hlassi!
Svo ásaka Staksteinar Evrópusamtökin fyrir að vera á móti íslenskum bændum, sem er alrangt. Við hjá Evrópusamtökunum trúum því hinsvegar að margt gæti breyst til betri vegar í íslenskum landbúnaði, með aðild að ESB; t.d. í formi lægri vaxta, minni verðbólgu, stöðugri gjaldmiðils, aukinni nýsköpun og samkeppni og þess háttar.
En þetta eru væntanlega bara "smáhnetur" í huga Staksteina-ritara, þar er skítkastið jú í aðalhlutverki!
Ps. Kannski fór það eitthvað fyrir hjartað á mönnum í Hádegismóum að við sögðum í gær að Morgunblaðið væri "kvótafjármagnað" - en er það ekki þannig?
7.8.2012 | 21:57
Bara tímaspursmál!

Höfundur myndarinnar er Helgi Sig en myndin birtist í fjögurra dálka plássi á blaðsíðu 8 í blaðinu í dag.
Myndin sýnir Evrópusambandið liggja á sófa í sálfræðiviðtali hjá sálgreini. Evrópusambandið er hauslaust en heldur á höfði Adolfs Hitlers í kjöltu sinni.
Adolf, tákngervingur Evrópusambandsins samkvæmt myndinni, er látinn segja: Þetta byrjaði sem tollabandalag og þróaðist út í alræði evrunnar. Nú þegar þetta er allt að liðast í sundur er ég meira sorgmæddur en reiður. Myndirðu segja að aukin samþjöppun valds mundi hjálpa.
Síðan segir á Eyjunni: "Það hefur löngum verið tabú í rökræðum og þjóðfélagsumræðu á Vesturlöndum eftir stríð að grípa til Hitlers-líkinga í málflutningi. Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, skrifar af öðru tilefni um Hitlers-líkingar á vef Evrópuvaktarinnar í dag og segir: þegar andstæðingi er líkt við Adolf Hitler brestur grundvöllur málefnalegra umræðna."
Evrópu-andúðin ristir djúpt á hinu kvótafjármagnaða Morgunblaði!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.8.2012 | 18:08
Meira af límmiðum!
Hvernig á ritari að vita að hvort það eru Bændasamtökin eða Nei-samtökin sem framleiða heyrúllulímmiða, sem nú eru seldir með næstum 50% afslætti?
Þetta eru hvort eð er næstum sömu samtökin!
Sitt lítið af hverju getur nú farið framhjá manni.
En það eru víst samtök Nei-sinna á Íslandi sem framleiða herlegheitin!
Kannski koma bændur með sína eigin límmiða þegar fram í sækir? Hver veit?
7.8.2012 | 17:04
Gunnar Alexander um ESB og neytendamál
Hagfræðingurinn Gunnar Alexander Ólafsson, skrifaði grein um ESB-málið þann 7.ágúst í FRBL og segir til að byrja með: "Um þessar mundir standa yfir aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Neytendasamtökin (NS) hafa ekki tekið afstöðu með eða á móti aðild Íslands að ESB en í nokkur ár hafa NS skoðað kosti og galla mögulegrar aðildar. Að mati NS væri aðild að ESB í mörgu mjög góður kostur fyrir íslenska neytendur. Ef Ísland gerist aðili mun það styrkja fjárhag heimilanna. Hagur neytenda myndi batna vegna þess að Ísland yrði aðili að mun stærra markaðssvæði og samkeppni myndi því aukast. Að vera utan ESB gerir það að verkum að Íslendingar njóta þess ekki til fulls að vera fullir aðilar að innri markaðnum. Viðskiptakostnaður er mun hærri nú vegna tollafgreiðslu og umsýslukostnaðar ýmiss konar. En almennt verður að taka fram að áður en hægt er að taka afstöðu til aðildar að ESB verður aðildarsamningur að liggja fyrir.
Ef skoðaðir eru þrír þættir sem skipta neytendur mestu máli; húsnæðislán, matarkostnaður og neytendavernd, þá er ljóst að aðild að ESB hefur verulega þýðingu fyrir neytendur. Við aðild Íslands að ESB myndi vaxtakostnaður neytenda lækka töluvert og þar hafa húsnæðislánin mesta þýðingu. Húsnæðiskostnaður er einn stærsti kostnaðarliður í bókhaldi hvers neytanda. Í könnun sem NS gerðu árið 2005 kom fram að kostnaður íslenskra neytenda vegna húsnæðislána er umtalsvert hærri en á öðrum Norðurlöndum og löndum sem hafa evru sem gjaldmiðil. Lántökukostnaður, kostnaður við greiðslu afborgana og uppgreiðslugjald var almennt hærra á Íslandi en í þeim löndum sem könnunin náði til. Í sömu könnun kom fram að vextir á íslenska húsnæðismarkaðnum voru þeir hæstu meðal þeirra landa sem könnunin náði til og raunvextir voru að jafnaði 2 til 5 prósentustigum hærri hér á landi en á hinum löndunum í könnuninni."
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
7.8.2012 | 10:16
Franskt smjör er fyrir alla!
Munið þið eftir "smjörmálinu" í fyrra, rétt fyrir jólin?
Norðmenn urðu uppiskroppa með smjör og leituðu hingað til Íslands í von um smjör.
En var snúið til baka með þeim rökum að ..."íslenskt smjör væri fyrir Íslendinga." Á vef Bændablaðsins má hinsvegar lesa að nú eru Norðmenn farnir að kaupa franskt smjör.
Frakkar eru grenilega með opnari huga gagnvart þeim sem vilja kaupa franskt smjör, en við! Franskt smjör er greinilega fyrir alla!
Franska smjörið er búið til samkvæmt þeirri uppskrift sem norska Tine-smjörið er gert úr. Snilld!
6.8.2012 | 13:36
Dauf heyrúlluherferð!
Sumarið 2012 fer í sögubækurnar sem eitt það hlýjasta síðan mælingar hófust og var meðalhitinn í júlí heilum 1.9 gráðum hærri en í meðalári.
Sólríkt hefur verið með afbrigðum og þurrt, svo mikið að bændur hafa kvartað - laxveiðiár eru margar hverjar sem sprænur.
Ritari, sem kominn er af léttasta skeiði og man mörg sumrin, er á þeirri skoðun að sumarið 2012 sé eitt það albesta sem hann hefur upplifað.
Sá hinn sami hefur líka flandrað um landið og keyrt fram hjá mörgum íslenskum sveitabæjum. Og þar hefur t.d. verið í gangi heyskapur.
Eitt af því sem Bændasamtökin, sem eru jú alfarið á móti ESB-aðild (að mestu leyti eftir að hafa kynnt sér reynslu EINS ESB-ríkis, Finnlands), brugðu á það ráð að gera rúllubaggaáróðursmiða með boðskap gegn ESB. Rúllubaggamiðana á s.s. að líma á rúllubaggana (svona til að auka aðeins á plastið!!).
Sumir forsprakka Nei-samtakanna hafa hoppað hæði sína af gleði og telja þetta mjög vel heppnaða herferð.
Ritari, sem eins og áður sagði, hefur flandrað helling um landið í sumar, hefur hinsvegar aðeins séð þessa and-ESB-límmiða á örfáum bæjum. Og hefur þó keyrt um mikil landbúnaðarhéruð eins og Borgarfjörð, Skagafjörð og um sveitir Norðurlands! Kannski fór þetta allt saman á Suðurlandið og Austur
Samkvæmt opinberum upplýsingum kostar stykkið 3000 íslenskar krónur eða um 20 Evrur.
En hver borgar fyrir framleiðsluna á þessu og auglýsingarnar? Eru það hin skattafjármögnuðu Bændasamtök Íslands?
Ef svo er, þá eru það almennir skattborgarar sem eru að borga þennan brúsa!
Já, Bændasamtök Íslands fara sínu fram - það er engin spurning!
Ps. En eins og myndin ber með sér má skapa list úr heyrúllum!
2.8.2012 | 12:05
Grikkir eða bankakallar?
"Bandaríski bankinn Citigroup telur það mun líklegra en áður að Grikkland segi skilið við evruna. Spáir bankinn því núna að 90% líkur séu á því að Grikkir segi sig frá evrunni á næstu 12-18 mánuðum og að 75% líkur séu á því að það gerist á næstu 6 mánuðum."
Þessu segir MBL.is frá. Hljómar þetta ekki eins og veðmál?
Hinsvegar eru Grikkir sjálfir ekkert á þeim buxunum að yfirgefa Evruna. Er ekki eðlilegra að taka freka mark á því en bandarískum bankaköllum?
2.8.2012 | 09:02
Evrunni fylgdi stöðugleiki í Þýskalandi - hefur tryggt jafnt verðlag
Í Speglinum var nýlega fjallað um Evruna og áhrif hennar á þýskt efnahagslíf. Þar segir meðal annars:
"Samkvæmt tölum sem nýlega voru birtar í Þýskalandi hefur verð fyrir vörur og þjónustu hækkað um 43 af hundraði síðustu tvo áratugina, eða frá árinu 1991. Á sama tíma hefur kaup þýskra launþega hækkað um 45 af hundraði, eða um tveimur prósentum meira en almenn þjónusta og neysluvara. Þetta eru að mati tölvísra manna meðmæli með evrunni sem gjaldmiðli. Hún hefur í það minnsta ekki leitt til lakari kjara almennings hér í Þýskalandi, nema síður væri. Í skýrslu sem Þýska efnahagsstofnunin, Institut der deutschen Wirtschaft, sendi frá sér fyrir skömmu kemur líka fram, að töluverðar breytingar hafa orðið á því, hversu lengi menn þurfa að vinna fyrir hinum ýmsu neysluvörum. Þar er tekið sem dæmi að enn sem fyrr tekur það skrifstofu- eða iðnaðarmann að meðaltali 3 mínútur að vinna fyrir einu bjórglasi. Það má fastlega reikna með að þetta taki Íslending í sambærilegu starfi ívið lengri tíma."
Gjörgæslugjaldmiðillin okkar, Krónan, hefur verið að braggast að undanförnu, enda landið fullt af túristum. Einnig hefur verið bent á að Seðlabanki Íslands hafi hert á gjaldeyrishöftunum.
Vonir hafa vaknað um að þessi (sennilega tímabundna) styrking geti haft áhrif á verð vöru og þjónustu fyrir landsmenn, sem væri óneitanlega skemmtilegt. Þannig segir í MBL.is í gær: "Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur krónan styrkst um nærri 8% á þremur mánuðum og um rúm 4% síðustu tvær vikur. Gengisvísitala krónunnar hélt áfram að lækka í gær.
Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir Sigurður Markússon, framkvæmdastjóri innkaupasviðs hjá Krónunni, sterkari krónu vera að koma fram í verðlaginu og muni gera það í meira mæli á næstunni. Bendir hann á að um 65% af því sem Krónan selji sé íslensk vara. Þar hafi gengið einnig sín áhrif en annar kostnaður þó fyrirferðarmeiri."
Það verður því virkilega spennandi að fylgjast með þessu á næstunni og eru Neytendasamtökin á vaktinni. Morgunblaðið fullyrðir hreinlega í fyrirsögn með fréttinni að þetta muni skila sér út í verðlagið!
Um þetta er fjallað í leiðara FRBL í dag og þar segir Óli Kr. Ármannsson meðal annars:
..."hafandi reynsluna af sveiflum í gengi krónunnar þá hverfur gleðin yfir styrkingu hennar nú næstum alveg þegar upp rennur fyrir manni það ljós að vitanlega dragi úr gjaldeyrisinnstreyminu þegar líður á haustið og líklega verði þeir sem þannig eru þenkjandi ekki lengi að finna nýjar glufur í varnarmúr Seðlabankans til að stelast með peninga úr landi. Þá segir reynslan manni að tímabundin gengisstyrking hafi að mjög litlu leyti skilað sér í lægra vöruverði og líklegast sé að þeir sem selja okkur hinum innfluttar vörur noti næstu veikingu krónunnar sem fyrirslátt til að auka enn á dýrtíð í landinu.
Meirihluti landsmanna virðist hins vegar kunna ágætlega við þetta ástand og er það miður. Í öllu falli virðist ekki nema tiltölulega litlum hluta landsmanna hugnast að leita raunhæfra leiða úr úr þessari hringavitleysu gengissveiflna. Raunhæfu leiðinni fylgir nefnilega aðild að Evrópusambandinu, stuðningur við gjaldmiðilinn frá Seðlabanka Evrópu og upptaka evru þegar fram líða stundir."
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2012 | 13:34
Forsetinn: Össur á erfitt verk fyrir höndum - virðir rétt þjóðarinnar að kjósa um aðildarsamning
Forseti íslands, dr. Ólafur Ragnar Grímsson birtist í viðtali við Frönsku sjónvarpsstöðina France 24 þann 25. júlí og ræddi þar meðal annars ESB-málið. En eins og kunnugt er hefur hann tekið afdráttarlausa afstöðu gegn Evrópusambandinu og aðild Íslands að því. Sem "ópólitískur" forseti.
En ummæli hans um hrun krónunnar haustið 2008 vekja athygli. Það má nefnilega skilja eða túlka orð Ólafs þannig að krónan hafi verið felld handvirkt. Sem er að sjálfsögðu ekki rétt. Hér varð stjórnlaust gjaldmiðilshrun. Það var ekki í áætlunum stjórnvald að gengisfella krónuna, þó ýmsir hafi bent á að gengi hennar hafi verið allt of hátt skráð. En forsetinn bendir á að við gátum fellt krónuna, sem er alveg rétt. Það var bara enginn sem felldi hana - hún sá alveg sjálf um að falla!
Ólafur segir þetta vera áhrifamesta þáttinn í leið til efnahagsbata, en hann minnist ekkert á gríðarlega verðbólgu, ofurvexti og kaupmáttarrýrnun sem fylgdi þessu og sem landinn er enn að glíma við. Þá er verið að tala um tölur á bilinu 30-40% (fer nokkuð eftir hópum).
Hann segist einnig vera þeirrar skoðunar að þetta sé meginorskök þess mikla straums ferðamanna til landsins, en tekur t.d. ekki fram að á Íslandi urðu tvö eldgos með skömmu millibili og vöktu þau gríðarlega athygli um allan heim, sérstaklega gosið í Eyjafjallajökli. Það var ókeypis auglýsing sem er erfitt að meta til fjár.
Í viðtalinu segist Ólafur virða lýðræðislegan rétt Alþingis og vilja þjóðarinnar í sambandi við ESB-málið (..."have a final say on this issue") og segist EKKI ætla að tefja málið með neinum hætti. Sem er áhugavert að heyra.
Hann segir einnig að vinur sinn, utanríkisráðherra, dr. Össur Skarphéðinsson, eigi erfitt verk fyrir höndum í að koma heim með góðan aðildarsamning og ekki laust við að örli á smá glotti í andliti forsetans.
Þetta er rétt mat, það er (og verður) erfitt að ná fram góðum samningi við ESB, en það er líka hin mikla áskorun fyrir samninganefnd Íslands!
Það gerir málið líka mjög spennandi, þ.e. hvernig niðurstaðan verður. Og það er einmitt um hana sem þjóðin á að fá að kjósa. Og það er einmitt það sem öfgafyllstu andstæðingar ESB vilja hindra - að þjóðin fái að kjósa um samninginn.
Það kallast frekja og yfirgangur!
27.7.2012 | 15:21
Andlát: Björn Friðfinnson
Björn Friðfinnson, lögfræðingur, ráðuneytisstjóri og fyrrum stjórnarmaður í Evrópusamtökunum, lést þann 12.júlí síðastliðinn. Hann var jarðsunginn þann 19. júlí.
Með þessum stutta pistli vilja Evrópusamtökin votta aðstandendum Björns dýpstu samúð, heiðra minningu hans og þakka fyrir vel unnin störf í þágu Evrópusamtakanna.
Í frétt sem birtist á Visir.is segir:
"Björn átti að baki langan og farsælan starfsferil í opinberri stjórnsýslu. Hann starfaði sem ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneyti, sameinuðu viðskipta- og iðnaðarráðuneyti og í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Hann var einn af framkvæmdastjórum ESA (EFTA Surveillance Authority) í Brussel, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar og framkvæmdastjóri lögfræði-og stjórnsýsludeildar borgarinnar, fjármálastjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit og bæjarstjóri á Húsavík, formaður Almannavarnaráðs og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Björn gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum, var stundakennari og prófdómari í opinberri stjórnsýslu og Evrópurétti við lagadeild Háskóla Íslands og skrifaði meðal annars kennslubók í opinberri stjórnsýslu. Þá hélt hann fjölda fyrirlestra um Evrópurétt og skrifaði greinar í blöð og tímarit um fræði- og þjóðfélagsmál. Hann átti einnig sæti í stjórn Norræna fjárfestingabankans."
Með virðingu,
Stjórn Evrópusamtakanna
18.7.2012 | 16:34
Listir og lýðræði - Evrópa unga fólksins
Unga fólkið lætur ekki að sér hæða í sambandi við listsköpun og á Fésbókinni er sagt frá verkefninu Listir og lýðræði, sem fékk styrk frá ESB fyrr í vetur.Virkilega skemmtilegt!
Evrópa unga fólksins er íslenska heitið á Ungmennaáætlun Evrópusambandsins, Youth in Action.
Áætlunin veitir styrki fyrir ungt fólk á aldrinum 13-30 ára. Á hverju ári veitir Evrópa unga fólksins á Íslandi um 1.000.000 í styrki til góðra verkefna sem skipulögð eru af ungu fólki og/eða fyrir ungt fólk.
Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur áhuga á að skapa og taka þátt í verkefni sem þú telur að við getum styrkt!
18.7.2012 | 09:44
Landslagið og mikilvægi þess
Vekjum athygli á mjög áhugaverðri grein eftir Auði Sveinsdóttur, landslagsarkitekt í FRBL í dag, sem hefst svona:
"Fyrir tilstilli Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra varð Ísland 40. Evrópuþjóðin af 47 til að undirrita Evrópska landslagssamninginn (The European Landscape Convention) þann 29. júní síðastliðinn. Henni tókst það sem fjórum forverum hennar lánaðist ekki á þeim tólf árum frá því samningurinn var samþykktur í Flórens 20. október árið 2000.
Upphaflega var hvatinn að samningnum sá, að talið var nauðsynlegt að vekja athygli á landslaginu sem umlykur okkur og hversu mikilvægt það er hvað varðar lífsgæði fólks; í þéttbýli jafnt sem dreifbýli. Samningurinn snýst ekki aðeins um verndun landsvæða heldur ekki síst notkun, skipulag og meðferð á okkar daglega umhverfi hversdagslandslaginu."
Þetta kemur frá Evrópuráðinu/ESB og má lesa meira hér.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 09:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2012 | 18:01
Jón og makríllinn

Það er eins og sumir bara fatti ekki hvernig ESB vinnur og starfar. Eða neiti að viðurkenna vinnubrögðin.
Jón Bjarnason fyrrum ráðherra virðist vera einn þeirra. Í grein í Morgunblaðinu þann 16.júlí skrifar hann um deilu nokkurra ríkja við Atlantshaf um makríl.
Jón ýjar að því að um verulegar eftirgjafir af hálfu Íslandi verði að ræða og nota orðið "undirlægjuháttur" reglulega í greininni og talar um hótanir ESB í garð okkar Íslendinga.
Það sem hinsvegar er mikilvægt að hafa í huga að ESB líkar ekki að semja við ríki um aðild, þegar það deilir um einhverja hluti við önnur ríki.
Gott dæmi um slíkt voru landmæradeilur Slóveníu og Króatía, á meðan Króatía var að semja um aðild.
Ríkin náðu hinsvegar samkomulagi og Króatía hefur nú gerst aðildarríki að ESB. Engir lausir endar voru skildir eftir. Þannig vinnur ESB.
Sem er mjög skynsamlegt. Þessvegna verða menn að reyna til hins ítrasta að ná samningum um makrílinn líka.
Það er ekki gott til afspurnar að hrifsa til sín auðæfi bara eftir hentugleikum, sama hvort um er að ræða Ísland eða einhver önnur ríki.
Slíkt heitir rányrkja og þannig gengur maður ekki um náttúruna!
Ps. Svo er það einfalega rangt hjá Jóni að aðildarsinnar vilji eingöngu sem mestan hraða á aðildarviðræðunum. Flestir vilja sem bestan samning fyrir Íslands hönd, sem síðan verður kosið um. Það eru hinsvegar margir skoðanabræður Jóns sem vilja ekki að íslenska þjóðin fái að kjósa um aðildarsamning yfirhöfuð! Slík er lýðræðisást þeirra!
16.7.2012 | 22:36
Titringurinn í VG!
Morgunblaðið skrifar í dag að það sé titringur innan VG útaf ESB-málinu. Það þýðir aðeins eitt: "It is alive!"
Sem er bara fínt :)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir