Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010

Viltu 30% launalækkun til frambúðar? Guðmundur Gunnarsson spyr

Guðmundur GunnarssonÁ bloggi sínu segir Guðmundur Gunnarsson: "Umræðan um ESB aðild kosti hennar og galla virðast vekja upp hræðslu við breytingar, þjóðernisrembing og ofsafengin viðbrögð sérhagsmunahópa. Þeir þola ekki að bent sé á hvaða hag við hefðum að samstarfi við önnur Evrópulönd. Þeir þora ekki að láta reyna á samninga við ESB og vilja að tryggja óbreytt ástand í efnahags-og stjórnmálum þjóðarinnar.

Ein helsta orsök Hrunsins var sú að hingað flæddi ódýrt lánsfé sem átti að ávaxtast á okurvöxtum á Íslandi. Uppgjör bankana á árinu 2008 leit vel út m.a. vegna gengishagnaðar. Hefði þjóðin haft nothæfa mynt í stað krónunnar, árin fyrir hrun, hefði líklega hvorugt átt sér stað. “Lífskjarabatinn” sem rekja má til óeðlilega sterks gengis krónunnar hefði ekki orðið. Íslenskur almenningur býr við stökkbreytingar á skuldum og um 25 þús. heimili liggja í valnum. Á meðan ekkert slíkt gerðist á hinum Norðurlandanna.

Kostnaðurinn íslendinga við að hafa krónuna kemur fram í hærri vöxtum hér á landi og verðtryggingu, því enginn fjármagnseigandi, hvorki innlendur né erlendur vill lána krónur án verðtryggingar. Skoðum kostnað við 20 milljón króna íbúðarláni hér á landi annarsvegar og í öðru Evrópulandi: 

Dæmi um lán á Íslandi.
Íbúðarlán hjá Íbúðarlánasjóði 20 milljónir til 25 ára með 5% vöxtum verðtryggt.
Endurgreiðsla, vextir, verðbætur og annar kostnaður 64,2 milljónir króna.

Dæmi um lán í Evrópulandi innan ESB.
Íbúðarlán hjá evrópskum banka 20 milljónir til 25 ára með nú 3,79% til 4,24% vextir, en mjög fjölbreytileg kjör eru í boði og finna mátti hagstæðari kjör en þessi.
Endurgreiðsla, vextir og annar kostnaður kr. 32,6 milljónir króna. Engar verðbætur.

Mismunurinn er 31,6 milljónir króna eða að meðaltali 105 þúsund krónur á mánuði, hvern mánuð í 25 ár.

Mest munar þar um að verðbætur á tímabilinu eru 29,1 milljón eða 9,1 milljón króna umfram upphaflegan höfuðstól lánsins."

Öll færsla Guðmundar 


Jólakveðja frá Evrópusamtökunum!

Evrópusamtökin óska öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Það hafa verið miklar sviptingar í Evrópuumræðunni á árinu. Fyrri hluti ársins einkenndist af miklum tilfinningum vegna Icesave og annarra mála. ESB-jólaskraut 

En sem betur fer hafa skynsamir menn og konur tekið þátt í umræðunni af meiri krafti á síðari hluta ársins. Það hefur því komið meira jafnvægi á umræðuna.

Gott innlegg í þennan mikilvæga málaflokk nú í lok árs er Evrópublað Vísbendingar, sem sagt hefur verið frá hér á blogginu.

Ritstjórn bloggsins vill þakka góðan lestur og viðbrögð við blogginu. Aldrei hafa fleiri lesið Evrópubloggið en á þessu ári, heimsóknir á bloggið eru um 80.000 það sem af er ári! Líflegar umræður hafa skapast, þetta blogg er lifandi, nokkuð sem ekki er hægt að segja um hliðstæðar síður Nei-samtakanna!

Það er markmið okkar að segja frá helsta sem um er að vera í  ESB-umræðunni. Því fleiri og fjölbreyttari "raddir" sem birtast, því betra!

Hvetjum við fólk til þess að kynna sér ESB, þannig er hægt að nálgast málið á skynsamlegan og rökrænan hátt, en ekki með sleggjudómum og upphrópunum!Fyrir liggur að þjóðin muni greiða atkvæði um ESB-aðild, þegar aðildarsamningur liggur fyrir.

Upplýsing er því lykilatriði í þessu máli. Það er vilji meðal Íslendinga að klára samningaferlið og að fá síðan að greiða atkvæði um málið. Það eru hinsvegar sterk öfl í samfélaginu sem hafa hagsmuni af því að svo verði ekki! Gegn þeim berjumst við!

Gleðileg jól! 

 


Löndunarbann?

makrill_1025282.jpgDV skrifar: "Maria Damanaki, fiskveiðistjóri Evrópusambandsins, undirbýr nú löndunarbann á íslenskan fisk innan Evrópusambandsins og ætlar að beita fyrir sig ákvæði í samningum um Evrópska efnahagssvæðið til þess samkvæmt heimildum DV í Brussel.

Hugsanlega verður gefin út yfirlýsing um málið í dag. Málið tengist makrílstríðinu en Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra gaf út 147 þúsund tonna makrílkvóta fyrir skemmstu í trássi við vilja Evrópusambandsins, Norðmanna og annarra."

Öll fréttin  Einnig hér


Vísbending um ESB-málið í jólatölublaði

Jólablað Vísbendingar, vikulegs tímarits um viðskipti og efnahagsmál, fjallar að stórum hluta um ESB-málið. Farið er yfir helstu "átakalínur" í þessi viðamikla máli. Þá er einnig fjallað um nokkrar "goðsagnir" og vitleysur sem grassera um ESB, fjallað um Lissabon-sáttmálann og fleira. Hvetjum þá sem geta til þess að ná sér í eintak!

Í blaðinu segir m.a.: " Margar af rangfærslum um Evrópusambandið koma frá
breskum síðdegisblöðum sem eiga það sameiginlegt að vera á móti
sambandinu og þurfa að selja blöð. Þar finnst mönnum óþarfi að láta
staðreyndir skemma góða sögu. En vafasamar fullyrðingar koma
líka fram á Íslandi, stundum af vanþekkingu en furðu oft þjónar
rangfærslan áróðurshagsmunum þess sem skrifar. Skoðum nokkrar
fullyrðingar: Sumar þeirra eru nýlegar, en aðrar býsna gamlar. Það er
þó athyglisvert að rangfærslur ganga oft aftur, hversu oft sem þær eru
kveðnar niður. Lyndon B. Johnson fyrrverandi Bandaríkjaforseti vissi
hvað hann söng þegar hann sagði: „Látum hann neita því,“ eftir að
hann bar ótrúlega ósmekklega lygi upp á andstæðing sinn."


MBL pirrast út í ESB - ekki í síðasta sinn!

MBLSífellt fleiri gera að umtalsefni hinn "pirraða tón" sem berst úr Hádegismóum, sem ekki síst brýst út í heilagri reiði og vandlætingu á ESB og öllu því sem sambandinu tilheyrir.

Leiðarahöfundur Mogga reitir hár sitt enn og aftur yfir ESB í dag, nú vegna þess að fyrir liggur að kynna ESB fyrir Íslendingum, vegna þess að jú, Ísland hefur sótt um aðild að sambandinu.

Meginhluti leiðarans fer í að segja frá grein eftir fyrrum leiðtoga Nei-sinna á Íslandi, Frosta Sigurjónsson, þar sem hann fjallar um lýðræðishallann í ESB og þátttöku almennings í kosningum til Evrópuþingsins.

Hér er eitt brot úr leiðaranum: "Því er stundum haldið fram að Ísland eigi heima í hópi lýðræðisríkja og þess vegna sé aðild að ESB eðlileg. Hið rétta er að Ísland á vissulega heima í hópi lýðræðisríkja, en ESB hefur ekkert með lýðræði að gera og Ísland getur aldrei gerst aðili að sambandinu á þeim fölsku forsendum."

Þetta er dæmi um þá ótrúlegu einföldun og sleggjudóma sem ráðferðinni á toppi valdapýramídans í Hádegismóum..."en ESB hefur ekkert með lýðræði að gera"!

ESB tekur virkan þátt í lýðræði og þróun þess, völd Evrópuþingsins voru styrkt með Lissabon-sáttmálanum, en kannski veit leiðarahöfundur Moggans það ekki? ESB tekur þátt í kosningaeftirliti nánast út um allan heim,   svo dæmi sé tekið.

Leiðarhöfundur notar líka tækifærið til að gera lítið úr nýafstöðnu stjórnlagaþingi, sem til kom, vegna...krafna frá almenningi. Það er jú lýðræði. Í leiðaranum segir: "Hér á landi fékkst ágæt vísbending í kosningum til hins áhrifalausa stjórnlagaþings hver kosningaþátttakan gæti orðið til áhrifalítils Evrópuþings."

Í lok leiðarans segir svo þetta: "Íslendingar geta verið ánægðir með að hér er óvenjulega virkt lýðræði og tiltölulega stutt á milli valdhafanna og almennings, ólíkt því sem gerist í Evrópusambandinu. Enginn skyldi þó láta sér detta annað í hug en að áróðursmeistarar Evrópusambandsins og útsendarar þeirra muni halda hinu gagnstæða fram í umræðum vegna aðlögunarviðræðnanna hér á landi."

En var þá stjórnlagaþingið ekki hluti af þessu "óvenju virka lýðræði" ? 

Og það er einfaldlega rangt það sem gefið er í skyn að "að lagasetning ESB er aðallega í höndum 27 manna framkvæmdastjórnar..."

Framkvæmdastjórnin hefur FRUMKVÆÐI að lagasetningu, en semur ekki lögin! Það er gert sameiginlega af Evrópuþinginu og Ráðherraráðinu og er útskýrt hér!

Vandlæting Mogga á ESB er takmarkalaus! Og málflutingurinn er svo óvandaður og á skjön við oft á tíðum vönduð skrif blaðsins.

Án kynningar á ESB geta Íslendingar ekki tekið lýðræðislega afstöðu til málsins. Þetta veit sjálfsagt leiðarahöfundur MBL, en hann vill ekki sjá þessa kynningu.

Slík er lýðræðisástin! 


Seðlabankinn: Mælir með evrutenginu

Seðlabanki ÍslandsÍ Fréttablaðinu og á visir.is er sagt frá nýrri skýrslu Seðlabankans um peningamál:

"Í skýrslunni er fjallað um árangurinn af peningastefnu bankans og fljótandi gengi síðastliðin níu ár. Taldar eru nokkrar hugsanlegar ástæðu fyrir slökum árangri peningastefnunnar; gerð íslensks þjóðarbúskapar geri sjálfstæða peningastefnu erfiða viðfangs, óvenjulegar aðstæður á bæði alþjóðlegum og innlendum efnahagsmálum og fjármálamörkuðum og misbrestur í framkvæmd peningastefnunnar, sem hafi ekki tekist að ávinna sér nægilegan trúverðugleika.

Þá hafi vaxandi alþjóðavæðing innlends fjármálakerfis og ofvöxtur þess orðið til þess að veikja miðlun peningastefnunnar, skapa áhættu í fjármálakerfinu og magna gengissveiflur.

Ofan á allt var stefna í opinberum fjármálum á skjön við stefnu Seðlabankans í peningamálum og það hefur þyngt róðurinn, að sögn Seðlabankans.

Seðlabankinn telur að verði fallið frá fljótandi gengi sé heppilegast að tengja krónuna við gengi evru. Fasttenging við evru eða einhliða upptaka hennar sé ekki ákjósanlegur kostur. Fremur verði upptakan að koma í framhaldi af aðild Íslands að Evrópusambandinu og inngöngu í myntbandalagið."

Í Morgunblaðinu er einnig fjallað um málið og þar segir m.a. í frétt:

"Ef ákvörðun verður tekin um að falla frá sjálfstæðri peningamálastefnu hér á landi væri affarasælast að taka upp evru í kjölfar aðildar að Evrópusambandinu. Þetta er mat sérfræðinga Seðlabankans en bankinn gaf í gær út skýrslu um valkosti á peningamálastefnu eftir að gjaldeyrishöftum verður aflétt. Niðurstaða skýrsluhöfunda er að í aðild að evrusvæðinu fengjust kostir trúverðugrar fastgengisstefnu með minni tilkostnaði en með fastgengisstefnu myntráðs eða þá einhliða upptöku evru. Segir í skýrslunni að með inngöngu í Myntbandalagið áynnust kostir trúverðugrar fastgengisstefnu með minni tilkostnaði en bæði upptaka myntráðs og einhliða upptaka evru." 

Fréttin í Fréttablaðinu 


FæNoGrÍs!

Það má með sanni segja að Ísland hafið verið í kastljósi fjölmiðla undanfarin misseri: Kreppan, ESB-umsóknin, Eyjafjallajökull og IceSave hafa gert það að verkum.

Öll þessi mál hafa verið mjög fyrirferðferðamikil, svo sumum þykir nóg um.

Í ESB-málinu hafa íslenskir Nei-sinnar sótt innblástur til Noregs, sem er eina landið sem fellt hefur aðildarsamning við ESB tvisvar sinnum.

Íslenskir Nei-sinnar starfa með norskum nei-sinnum og um daginn héldu hinir fyrrnefndu ráðstefnu um strandríki hér á landi.

Ásmundur Einar Daðason skrifar m.a. um þetta á heimasíðu norsku Nei-sinnanna og skrifar þar m.a. um þá hugmynd að stofnað verði nýtt smáríkjasamband hér á norðurhveli jarðar.

Í því eiga að vera; Noregur, Ísland, Færeyjar og Grænland. Hann vill meina að sterkir hagsmunir á sviði landbúnaðar og sjávarútvegsmála sameini þessar þjóðir.

En hann bendir einnig á að að vegna mikils stærðarmunar verði vandmál með dreifingu valds og að Í, G. og F. gætu allteins verið "kommúnur" í Noregi.

En gallinn við þessa hugmynd er að þessar þjóðir verða ekki sjávarútvegsþjóðir og landbúnaðarþjóðir að eilífu! Til að mynda Ísland er miklu "alþjóðlegra" en það nú þegar.Sama á við um Noreg, en hlutfall sjávarútvegs og landbúnaðar í landsframleiðslu er mjög lítið, en aðeins um 3% af landrými Noregs er notað til landbúnaðar. Hlutfall sjávarútvegs af landsframleiðslu er í kringum 5%.

Almennt hefur þessi hugmynd ekkert verið útfærð, er því enn bara hugmynd og verður sennilega ekkert annað en hugmynd.

En ritstjórn þessa bloggs er með eitt á hreinu og það er nafn á þetta mögulega smáríkjasamband/hugmynd, sem er: FæNoGrÍs! 


Svartfellingar opinberlega orðnir "kandídatar" að ESB

Fáni SvartfjallalandsÁ visir.is segir þann 18.des: "Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu í gær að veita Svartfjallalandi stöðu umsóknarlands, en búast má við að fjögur til fimm ár líði áður en aðildarviðræðum getur lokið með aðildarsamningi.

Á fundinum, sem stóð í tvo daga, tókst einnig samkomulag um frekari aðgerðir í efnahagsmálum til að verjast kreppunni sem nú herjar illilega á nokkur aðildarlandanna.

Samið var um nýtt kerfi til að bjarga ríkjum úr efnahagsvanda en ekki náðist samkomulag um að stækka neyðarsjóðinn sem settur var á laggirnar fyrr á þessu ári.

„Svartfjallaland er fyrsta landið á vestanverðum Balkanskaga sem fær stöðu umsóknarlands í fimm ár," segir Slavica Milacic, ráðgjafi Milo Djukanovic forseta, en hún var sendiherra landsins hjá Evrópusambandin þar til fyrir skömmu. „Þetta er líka mjög mikilvægt fyrir þennan heimshluta vegna þess að með þessu er gefið skýrt merki um að aðlögunarferlið að ESB muni halda áfram."

Af löndunum á vestanverðum Balkanskaga hefur aðeins Slóvenía fengið aðild að ESB til þessa, en auk Svartfjallalands hafa Króatía og Makedónía stöðu umsóknarlands."

Frétt á vef ríkistjórnar Svartfjallalands um málið og uppl. um landið sjálft á Wikipedia

Í október 200 voru tæp 77% Svartfellinga hlynnt aðild að ESB. Landið notaði lengi þýskt mark sem gjaldmiðil, en skipti (einhliða) yfir í Evru árið 2002.

Í landinu búa um 670.000 manns og er hér því enn eitt smáríkið að sækja um aðild að ESB.


The Economist um Írland og Ísland: Tími fyrir Íra að vera hörkutól?

iceland_a2004028_1355_1km_704895.jpgEyjan birtir frétt um grein í hinu virta tímariti The Economist, þar sem Ísland og Írland eru borin saman.

Þar er m.a. sagt að Ísland sé að standa sig betur en Írland í að glíma við kreppuna, m.a. vegna þess að bankarnir fóru á hausinn, vegna þess að þar var ekki um neitt  val að ræða.

Þá er einnig sagt að Íslendingar séu nauðbeygðir til að hafa krónuna vegna gjaldeyrishafta og það verði "flókið" (ens: tricky) að losna við þau (enginn veit í raun hvað gerist, innskot ES-blogg).

Nú eru rúm tvö ár liðin frá því að Ísland fór á hliðina, fékk á sig hrikalegan brotsjó, sem næstum sökkti landinu.

Í framhaldinu verður áhugavert að sjá hvernig ástandið verður á Írlandi að tveimur árum liðnum, en eins og menn vita fengu Írar "björgunarpakka" frá ESB og AGS, eftir að hafa farið illa að ráði sínu í fjármálum og fjárfestingum (hljómar þetta ekki kunnuglega?).

The Economist bendir á að skuldir á Íslandi séu gífurlegar og að mikil "eignabruni" hafi átt sér stað. Þá telur blaðið að framtíðarhorfur Írlands varðandi útflutning, séu jákvæðari en Íslands:

"Four-fifths of exports are either fish or metals, such as aluminium, whose production relies on Iceland’s cheap energy. Both industries are constrained by capacity: fishing by quotas and metals by lumpy investments in smelters and power plants. Ireland’s export prospects are better."

Írland-eyjan grænaÍ lokin segir svo "Even so, that Iceland’s economy has done little worse than Ireland’s is still a triumph. It has been tough with its creditors and disregarded some international norms—and recovered. Ireland has stood by its banks to the benefit of the wider European banking system. Its reward has been “rescue” loans at an interest rate that makes it hard to fix its finances. The next Irish government may look at Iceland and decide to play hardball with Europe."

Að hlutirnir haf ekki gengið verr en á Írlandi er talinn sigur, segir blaðið og stingur svo upp á því hvort það sé ekki reynandi fyrir Íra að vera hörkutól, eins og Íslendingar hegðuðu sér gagnvart erlendum kröfuhöfum.

En þá er það spurningin: Hvernig kemur það niður á trúnaðartrausti erlendra aðila hvaða "aðferð" við beittum?

Hvernig er minni þeirra? Er það t.d. lengra heldur minni kjósenda, sem menn segja að stundum sé stutt?

 


Krónan rýrnað um næstum 100%!

KrónurÍ Morgunblaðinu í dag kemur fram: "Fram til ársins 1920 var íslenska krónan á pari við dönsku krónuna en á því ári var ákveðið að skrá gengi hennar sérstaklega. Gengi dönsku krónunnar er nú um 20 íslenskar krónur.

Ef tekið er tillit til myntbreytingarinnar árið 1981 er gengi dönsku krónunnar u.þ.b. 2.000 gamlar íslenskar krónur. Verðgildi krónunnar gagnvart hinni dönsku er því aðeins 0,05% af því sem það var árið 1920, sem jafngildir rýrnun um 99,95% á þessu 90 ára tímabili. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Seðlabanka Íslands.

Kaupmáttur krónunnar gagnvart neysluvörum og þjónustu hefur rýrnað enn meir. Miðað við vísitölu neysluverðs í heild (VNV) nam virði hverrar krónu í júní árið 1944 7.147 gömlum krónum (71,47 nýkrónum) í ágúst sl.

Ef miðað er við VNV án húsnæðis er hlutfallið hins vegar 10.337 gamlar krónur (103,37 nýkrónur) sem jafngildir því að verðgildi krónunnar hafi rýrnað um 99,99%."

Í fréttinni segir að saga peningastefnu og gjaldmiðlamála sé hér á landi hafi verið "þyrnum stráð", óháð því hvernig gengis- og peningastefnan hefur verið útfærð.

 



« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband