Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011

Sjón á hádegisfundi

SjónÍ gær talaði skáldið Sjón á hádegisfundi Samfylkingarinnar um Evrópumál og á heimasíðu segir:

"Rithöfundurinn Sjón velti upp spurningunni hvort Ísland verði áfram í hlutverki ísbjarnarins sem dansar í reykpásum í evrópsku menningarveislunni á hádegisfundi Evrópuvaktar Samfylkingarinnar. Að lokinni framsögu urðu fjörugar umræður um áhrif ESB-aðildar á menningar- og listalífið og þátttöku Íslands í Evrópskum menningarverkefnum.

Sjón fjallaði um evrópsk samskipti útfrá sjónarhóli rithöfundarins í framsögu sinni. Hann væri af kynslóð sem hefði lært íslenskar bókmenntir í barnaskóla með Skólaljóðum og öllu tilheyrandi. Þessi sama kynslóð leitaði síðan til útlanda og varð fyrir erlendum áhrifum sem ögruðu þeim hugmyndum sem hún aldist upp við. Sjón sagðist hafa komist að þeirri niðurstöðu eftir nokkurn tíma að íslenskar bókmenntir væru í raun ekki til, frekar væri hægt að segja að evrópskar bókmenntir væru stundaðar á Íslandi. Til Íslands hafi þjóðin siglt árið árið 870 með evrópska menningu í farteskinu. Ísland hafi því frá upphafi verið útvörður evrópskrar menningar í norðri . Skýr evrópsk áhrif megi greina í gegnum bókmenntasöguna hér á landi; t.d. í Egilssögu, í verkum Hallgríms Péturssonar, hjá Jónasi Hallgrímssyni og Fjölnismönnum og Halldóri Kiljan Laxness. „Íslensk menning er ekki til“ sagði Sjón „meira að segja Framsóknarflokkurinn er evrópskur frekar en Íslenskur“."

Áhyggjur af einstrengingslegum röddum

Jórunn FrímannsdóttirJórunn Frímannsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, skrifar pistil í aðdraganda landsfundar flokksins, um ESB-málið og segir meðal annars:

"Ég las mér til um stefnur stjórnmálaflokkanna ung að árum, eða í kring um 1983. Á þeim tíma komst ég að þeirri niðurstöðu að ég gæti aldrei verið annað en sjálfstæðismanneskja. Ég er enn sömu skoðunar. Hjarta mitt er sjálfstæðishjarta, ég trúi á frelsi einstaklingsins, einkaframtakið, frjáls viðskipti, atvinnusköpun, lága skatta og svona mætti lengi telja.

Ég hef áhyggjur af þeim einstrengingslegu röddum sem hafa haft hátt innan flokksins míns. Röddum sem telja nauðsynlegt fyrir flokkinn að beita sér fyrir því að aðildarviðræðum Íslands við ESB verði hætt, umsóknin dregin til baka og talað er um að Íslendingar þurfi að einbeita sér að „okkar málum“. Að mínu mati eru samningaviðræðurnar hluti af „okkar málum“ og eru í ágætum farvegi. Lýðræðislegur meirihluti Alþingis samþykkti að ganga til þessara samningaviðræðna og ekki útlit fyrir annað en að við getum náð viðunandi samningum í flestum atriðum. Þjóðin mun dæma um samninginn þegar hann liggur fyrir. Þá getum við öll vegið og metið kosti og galla þess að verða hluti af Evrópusambandinu eða standa utan þess, þá fyrst getum við tekið afstöðu sem byggir á staðreyndum."

Töluverð umræða er um pistilinn í athugasemdakerfinu.

Allur pistill Jórunnar


Ný skýrsla um Ísland/Írland

Háskóli ÍslandsÍ tilkynningu á vef H.Í. segir: "

"Nýverið kom út skýrslan „Fjármálakreppa á Íslandi og Írlandi: Skiptir aðild að Evrópusambandinu og evrunni máli?“ eftir dr. Baldur Þórhallsson, prófessor við Stjórnmálafræðdeild Háskóla Íslands, og Írann dr. Peadar Kirby, nýráðinn gistiprófessor við sömu deild.

Í skýrslunni er fjallað um stöðu Írlands og Íslands í efnahagskreppunni. Löndin tvö eru borin saman með hliðsjón af því að Írland er aðili að Evrópusambandinu með evru sem gjaldmiðil en Ísland er utan sambandsins með eigin gjaldmiðil. Greint er hvaða áhrif þetta hefur haft á umfang efnahagskreppunnar í löndunum og getu ríkjanna til að bregðast við afleiðingum hennar.

Í skýrslunni er notast er við greiningarramma smáríkjafræða um mikilvægi bandalagamyndunar fyrir smáríki. Reynsla Íslands og Írlands í bankakeppunni staðfestir að nokkru leyti staðhæfingar um mikilvægi þess að hafa efnahagslegt og pólítískt skjól þó að í því geti einnig falist umtalsverðar þvinganir.

Rannsóknin sýnir einnig að góð efnahagsstjórn og eftirlit með fjármálastofnunum er grunnforsenda þess að smáríki geti varist efnahagslegum áföllum. Kenningar um mikilvægi skjóls eða bandalagamyndunar fyrir smáríki verða því að taka tillit til innviða ríkja þegar lagt er mat á stöðu þeirra í alþjóðahagkerfinu.

Skýrslan er á ensku og er að finna á vef Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki. Financial crises in Iceland and Ireland: Does EU and Euro membership matter? "


Benedikt Jóhannesson fyrir norðan þann 25.11

Benedikt JóhannessonÍ tilkynningu segir: "Föstudaginn 25. nóvember verður haldinn hádegisfundur á Hótel KEA á Akureyri þar sem Benedikt Jóhannesson hjá Talnakönnun fjallar um efnahagsmál, evruna, krónuna og áhrif mögulegrar aðildar Íslands að ESB." Benedikt Jóhannesson er formaður Sjálfstæðra Evrópumanna.


Kanadakróna?

Frétt Evrópusamtakanna í gær um málefni Kanadadollars vakti talsverða athygli í gær og tók Eyjan meðal annars upp málið.

Margir eru að fjalla um gjaldmiðilsmál um þessar mundir og Guðmundur Gunnarsson er þar á meðal. Bendum á pistil hans, en þar segir:

"Eins og fram hefur komið í pistlum hér á þessari síðu undanfarna daga, er það sem sett er fram svo geggjað að maður veit eiginlega ekki hvort verið sé að tala í alvöru, þar má benda á "hagfræðinga?" sem stíga fram og stinga upp á því að taka t.d. upp Kanadískan dollar og Kanadamenn vilji það endilega og sumir virðast taka þetta alvarlega. Stundum hafa aðrar myntir verið nefndar. Augljóslega er þetta í raun allt sama tóbak og skipta um nafn á krónunni, við þyrftum eftir sem áður að standa straum af rekstrarkostnaði þess gjaldmiðils.

Eru Kanadamenn virkilega tilbúnir í að spandera á okkur þeim fjármunum sem sem hlýst af því að verja okkar hagkerfi? Eða hitti sá hagfræðingur sem setur þetta fram, einhverja Kanadamenn á bar, datt í það með þeim og þeir urðu voru bestu vinir Íslands. Hér er ég augljóslega að vitna til umtalaðs ferðalags formanns Framsóknar til Noregs á bar í Osló til þess að tala við "norskan spesíalista" í beinni útsendingu RÚV. Mesta drykkjuflopp ever eins og krakkarnir mínir segja gjarnan.

Eru Kanadamenn virkilega til í að kaupa allar krónur sem eru í umferð, allt lausafé og skuldabréf, og greiða það upp í topp með kanadískum dollurum. Og henda svo öllu sem fylgdi krónunni í ruslið. Fyrirfinnst enn í heiminum slík gjafmildi og hjartahlýja, eða er þetta bara menn sem smella á sig nokkrum tvöföldum og faðmast á eftir?
"


Evrópumálaráðherra Íra í heimsókn

Á vefnum JáÍsland stendur:

"Þann 23. nóvember mun Evrópumálaráðherra Írlands, Lucinda Creighton, halda opinn fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík, milli klukkan 12.05 og 13, í sal M101 (fyrrum Bellatrix).

Lucinda Creighton er lögfræðingur að mennt og þingmaður Fine Gael stjórnmálaflokksins á Írlandi, en Lucinda er fædd árið 1980 og var yngsti þingmaður Írlands þegar hún var fyrst kosin á þing árið 2007. Hún hefur vakið mikla athygli fyrir skýran og sjálfstæðan málflutning.

Hér er viðtal við Lucindia um Lisbon sáttmálann og samstarfið innan Evrópusambandsins: https://www.youtube.com/watch?v=yb9_b_lsNoE&feature=player_embedded"

Skráning: Með tölvupósti til skraningar@ru.is


Um "himbrimadollar" : Vinnur Sigmundur Davíð og Framsókn að upptöku Kanadadollars?

Sigmundur Davíð GunnlaugssonUmræðan um gjaldmiðils-mál magnast nú í aðdraganda landsfundar Sjálfstæðisflokksins, en samkvæmt þeim sem eru í framboði, er krónan bara toppgjaldmiðill og allt í sóma! Þrátt fyrir verðrýrnun upp á næstum 100% á undanförnum áratugum gagnvart dönsku krónunni.

Umræðan um kanadískan himbrimadollar (það er mynd af himbrima á honum!) er enn sérkennilegri. Ritari rakst á grein frá 2.nóvember á vef Canadian Business (elsta viðskiptatímarit Kanada), þar sem athyglisverðir hlutir standa. Hér er tilvitnun þar sem rætt er um það sem blaðamaðurinn kallar ,,sérkennilegustu rökin" fyrr upptöku Íslands á Kanadadollar af þeim sem það aðhyllast:

"The strangest reason for adopting the loonie is Arctic sovereignty. There are eight countries in the Arctic Council, including Canada and Iceland. A common currency could help Canada gain clout in the council, the group argues, and it could gain even more if Greenland comes on board, which they recommend. (To think that Canada, Iceland and Greenland can hold sway over the U.S. and Russia might be, well, very 2007.)

For now, the idea remains exactly that. The Progressive Party does not have a big presence in parliament, and the coalition government wants to complete the EU application process. Gunnlaugsson, the Progressive leader, is hoping for a nod of approval from Canada. “If there were some signs from Canada of willingness to look into this issue seriously, it would mean that the government cannot ignore the idea,” he says.

Help probably isn’t forthcoming. The group approached the Canadian Embassy in Reykjavik to ask how Canada would feel about a switch, and earlier this year the question was relayed to the Bank of Canada. According to a Canadian official who requested anonymity, the central bank answered that a unilateral currency switch wouldn’t mean much for Canada—all it has to do is supply the notes and coins purchased by Iceland—and the country was welcome to do it. However, it emphasized Iceland would have zero input into policy decisions. "

Snarað: Rætt er um átta heimskautalönd og sameiginlegt myntsvæði myndi auka áhrif Kanada, sérstaklega ef Grænland yrði með! Í greininni segir einnig að Sigmundur Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ,,vonist eftir samþykki" og vitnað er beint í hann þar sem hann segir: "Ef Kanadamenn eru viljugir til að skoða þetta, geta íslensk stjórnvöld ekki horft framhjá þessari hugmynd," er haft eftir Sigmundi.

Því vaknar spurningin: Er Sigmundur Davíð að vinna að því að Ísland taki upp Kanadadollar og er það ekki algerlega á skjön við hans eigin málflutning hér heima? Er spil á bakvið tjöldin? Er stuðlað að því að Kanada styrki stöðu sína á Noðurslóðum með þessu?

Í síðustu ensku málsgreininni kemur svo fram að upptaka Íslands á Kanadadollar myndi ekki þýða mikið fyrir Kanada, Ísland mætti gera slíkt, en svo er lögð rík áhersla á að Ísland myndi ENGIN ÁHRIF hafa á stjórnmálalegar ákvarðanir. Með öðrum orðum, landið myndi afsala sér fullveldisrétti á sviði gjaldeyrismála!

Taki Ísland upp Evruna, verður landið hinsvegar formlega aðili að Evru-samstarfinu, sem er lýðræðislegt samstarf. Þar myndi landið starfa með öðrum ríkjum með eðlilegum og lýðræðislegum hætti, en ekki nota mynt með samþykki annarrar þjóðar. Hvað ef sú þjóð myndi hætta að skaffa okkur peninga? 

Þau nöfn sem nefnd eru í greininni á þeim aðilum sem eru að vinna að því að Ísland taki upp Kanadadollar eru Ársæll Valfells og Magnús Skúlason, náinn kunningi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og félagi í InDefence-hópnum, eins og Sigmundur.

Einnig er fullyrt í greininni að Framsóknarflokkurinn styðji hugmyndina um upptöku Kanadadollars: "One political party, the Progressive Party, is supportive. “If we are going to adopt another currency, then the Canadian dollar looks very promising,” says leader Sigmundur Gunnlaugsson. They’re not after a currency union, but a unilateral adoption similar to El Salvador’s 2001 switch to the U.S. dollar."

Árið 2001 var El Slavador í rúst eftir grimmilegt borgarastríð milli herforingjastjórnar(studd dyggilega af USA) og skæruliða kommúnista, þar sem 75.000 manns létu lífið. Og það er kannski skiljanlegt að El Salvador taki upp dollara, þar sem stórir hlutar Mið og S-Ameríku eru dollaravæddir og viðskipti mest við Bandaríkin.  Hinsvegar nemur útflutningur Íslands til Kanada aðeins um 2,4% af heild!

En er þetta sem sagt stefna Framsóknarflokksins: Að Ísland taki upp Kanadadollar? Og getur þá Sjálfstæðisflokkurinn unnið með Framsókn með sína krónu?


Björgvin G. um "Kandískar krónur"

Björgvin G. SigurðssonBjörgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar skrifar pistil á Pressuna um gjaldmiðilsmál, sem hann kallar "Kandískar krónur" og segir þar meðal annars:

"Nú þegar heimsbyggðin siglir í gegnum brimskafla skuldakreppu og fjármálaerfiðleika ágerist umræðan um framtíðarstefnu Íslendinga í gjaldmiðils- og peningamálum. Þorra landsmanna er ljóst að ekki er búandi til lengdar við núverandi ástand. Það ógnar fullveldi landsins til lengri tíma litið og það er með engum hætti réttlætanlegt að afhenda komandi kynslóðum landið án þess að skjóta traustum stoðum stöðugs gjaldmiðils undir samfélagið.

Þá hefur hávær þögnin í efnahagstillögum sjálfstæðis- og framsóknarmanna um framtíðarfyrirkomulag peningamála vakið enn meiri athygli á verkefninu.

Verðtryggð króna í höftum og sífelldri verðmætarýrnun er valkosturinn við upptöku evru að mati flestra. Einhliða upptaka annarra þjóða mynta hefur alltaf verið slegin út af borðinu. Enda fylgja því margvíslegar og meiriháttar skuldbindingar að hleypa einu samfélagi inn á myntsvæði annars. Skuldbindinga sem er varða fjármálakerfið og efnahagsmálin almennt.

Til dæmis um þessa staðreynd er svar Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs frá því fyrir tveimur árum. Þá aðspurður um hvort Íslendingum byðist að taka upp norska krónu í stað þeirrar íslensku.

Nei, hún er okkar gjaldmiðill Norðmanna, sagði forsætisráðherrann. Meti Íslendingar það svo að þeir þurfi annan gjaldmiðil er evran svarið. Til þess er hún. Myntbandalag þjóða með sameiginlegan markað og mikil viðskipti sín á milli, var efnislega svar hans."

Allur pistill Björgvins


Við treystum þjóðinni!

Já-Ísland-framtíðinSamtökin Já-Ísland birtu í kvöld áhugaverða auglýsingu, en á vef samtakanna stendur:

"Næstu daga mun þessi auglýsing birtast landsmönnum. Við teljum það skipta mestu máli þegar þjóðin tekur ákvörðun um hvort hún vilji að Ísland gangi í Evrópusambandið að sú ákvörðun sé byggð á staðreyndum. Við treystum þjóðinni fyllilega til að taka réttu ákvörðunina fyrir Ísland þegar samningurinn liggur fyrir."

Horfið hér eða hér


Meira um SA og ESB-málið

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum samþykktu Samtök Atvinnulífsins (SA) á fundi að halda bæri áfram aðildarumsókn Íslands að ESB og ljúka aðildarviðræðum með því að greiða atkvæði um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Fréttablaðið sagði frá þessu í morgun og rataði málið á vef Eyjunnar, en þar stendur:

"Atkvæði fulltrúa fyrirtækja í verslun, iðnaði og ferðaþjónustu réðu því að stjórn Samtaka atvinnulífsins samþykkti stuðning við að ljúka aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins á fundi sínum í gær.

Þrjú af sex mótatkvæðum voru frá fulltrúum sjávarútvegsins en forstjóri N1, ja.is og Norvik voru einnig á móti.

Tveir sátu hjá, annar þeirra er forstjóri ríkisfyrirtækisins Rarik.

Fréttablaðið í dag greinir frá þeim átökum sem urðu í stjórn Samtaka atvinnulífsins út af ályktuninni."

Svona gekk atkvæðagreiðslan samkvæmt Fréttablaðinu og Eyjan vitnar í:

"Já sögðu:
Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins
Hjörleifur Pálsson, Össur hf.
Aðalheiður Héðinsdóttir, Kaffitár,
Loftur Árnason, Ístak hf.
Grímur Sæmundsen, varaformaður SA, Bláa lónið hf.
Árni Gunnarsson, Flugfélag Íslands hf.
Finnur Árnason, Hagar hf.
Margrét Kristmannsdóttir PFAFF hf.
Kristín Pétursdóttir Auður Capital hf.

Nei sögðu:

Adolf Guðmundsson Gullberg ehf. Nei
Friðrik Jón Arngrímsson LÍÚ Nei
Arnar Sigurmundsson Samtök fiskvinnslustöðva Nei
Guðmundur H. Jónsson Norvik hf. Nei
Hermann Guðmundsson N1 hf. Nei
Sigríður Margrét Oddsdóttir Já upplýsingaveitur ehf. Nei

Þessir sátu hjá
Sigurður Viðarsson Tryggingamiðstöðin hf.
Tryggvi Þór Haraldsson RARIK ohf.

Þrír stjórnarmenn sátu ekki fundinn, þau Birna Einarsdóttir, Íslandsbanka, Ólafur Rögnvaldsson, Hraðfrystihúsi Hellissands hf. og
Rannveig Rist, Rio Tinto Alcan á Íslandi hf."

Ennfremur segir á Eyjunni: "Hjáseta forstjóra Rafmagnsveitna ríkisins, hlýtur að vekja athygli í ljósi þess að fyrirtækið er í eigu ríkisins og rekið á ábyrgð ráðherra í ríkisstjórninni sem hefur aðildarviðræðurnar á sinni stefnuskrá og ber á þeim ábyrgð."

Samantekið: Samtök atvinnulífins taka mjög skynsamlega afstöðu í málinu, sem gengur þvert á hugmyndir Nei-sinna í ESB-málinu, sem vilja neita íslenskri alþýðu um þann lýðræðislega rétt að greiða atkvæði um þetta veigamikla mál!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband